Formúla 1

Mercedes á meira inni

Kristinn Ásgeir Gylfason skrifar
W05 bíllinn hefur reynst Mercedes vel en gæti á meira inni.
W05 bíllinn hefur reynst Mercedes vel en gæti á meira inni. Vísir/Getty
Sam Bird, fyrrverandi þróunarökumaður Mercedes liðsins í Formúlu 1 telur að liðið eigi enn eftir að sýna fulla hæfni W05 bílsins.

Þrátt fyrir að liðið hafi unnið allar keppnir tímabilsins sannfærandi telur Bird að enn búi óvirkjað afl í Mercedes bílnum.

„Ég held að þeir hafi svo mikið svo mikið forskot í augnablikinu að þeir séu ekki að sýna fulla getu,“ sagði Sam Bird.

„Ef það kemur til þess að einhver fer að nálgast, þá muntu sjá að þeir geta auðveldlega fundið meiri hraða ef þeir þurfa,“ sagði Formúlu E ökumaðurinn Sam Bird.

Formúla E er eins konar rafmagns útgáfa af Formúlu 1 sem hefur verið að ryðja sér rúms í ár.

Bird segir að hugmyndavinna hafi byrjað í hermum, sem lið notast við til að prófa nýjar uppfærslur og útfærslur, árið 2011. Mercedes liðið hefur því lengi verið með augun á W05 bílnum. Það hefur greinilega borgað sig.

Heimsmeistari ökumanna virðist nánast öruggt að verður annar Mercedes ökumannanna.

„Þeir eru mjög ólíkir ökumenn. Nico (Rosberg) er sérstaklega öflugur í að vinna mjög, mjög hart að því með strákunum að hann sé einn sá besti í heimi tæknilega séð,“ bætti Bird við.

„Lewis (Hamilton) hefur augljóslega gríðarlega mikla náttúrulega hæfileika og líður vel í bílnum og hvernig hann er að standa sig. Þetta gæti orðið mjög tæpt á milli þeirra tveggja í lok ársins. Það veltur á formi Lewis og skapi Lewis en Nico veðrur þarna líka það má ekki gleyma því,“ saðgi Bird að lokum.


Tengdar fréttir

Hamilton stundar ekki sálfræðihernað

Lewis Hamilton ökumaður Mercedes liðsins í Formúlu 1 neitar að hafa stundað sálfræðihernað gegn liðsfélögum sínum með ásettu ráði.

Nico Rosberg vann aftur í Mónakó

Þjóðverjinn Nico Rosberg leiddi hvern einasta hring í keppninni eftir að ná ráspól á umdeildan hátt í gær. Liðsfélagi Rosberg hjá Mercedes, Lewis Hamilton varð annar og Daniel Ricciardo á Red Bull varð þriðji.

Hakkinen: Hamilton þarf að læra að tapa

Mika Hakkinen og John Surtees, fyrrum heimsmeistarar í Formúlu 1 telja að viðbrögð Lewis Hamilton eftir Mónakó kappaksturinn hafi verið röng.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×