Innlent

Flugvirkjar boða verkfall

visir/anton
Flugvirkjar hjá Icelandair hafa boðað til sólarhringsverkfalls sem á að hefjast klukkan sex að morgni þann 16. júní næstkomandi. Ótímabundið verkfall hefst svo 19. júní. ef ekki verður búið að leysa kjaradeilu þeirra við Icelandair fyrir þann tíma.

Deiluaðilar hafa fundað í húsnæði ríkissáttasemjara frá því klukkan tíu í morgun. Fram kemur í tilkynningu frá Icelandair til Kauphallarinnar að flugáætlun félagsins muni raskast komi til verkfalls.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×