Heilsa

Sexí smáskilaboð

Sigga Dögg kynfræðingur skrifar
Smáskilaboð geta verið ansi krassandi
Smáskilaboð geta verið ansi krassandi Vísir/Getty
Ég hef alltaf verið hrifin af smáskilaboðum. Stundum nenni ég ekki að tala í símann og ef ég þarf að koma stuttum og hnitmiðuðum upplýsingum á framfæri þá finnst mér sms kjörið til þess.

Það er hinsvegar ýmislegt sem virðist geta misfarist þegar kemur að sms-um, sérstaklega fyrir þá sem eru með „auto - correct“ sem breytir orðum í einhverja vitleysu og þar með innihaldi skilaboðanna (reyndar eru fjölmörg dæmi þess sprenghlægileg).

Eitt form af sms hefur valdið titringi hjá mörgum og það eru kynferðisleg smáskilaboð eða svokölluð sexting. Það er gjarnan talað um þau í samhengi við unglinga og þá hversu slæmt það getur verið ef ljósmynd af t.d. kynfærum viðkomandi leki um netið.

Sigga Dögg
Rannsóknir hafa sýnt að sexting er alls ekki einungis bundið við unglinga heldur eru þó nokkrir sem nota það sem krydd í sambandið sitt.

Auðvitað er þetta alltaf vandmeðfarið þegar fólk deilir ljósmyndum því þessar myndir geta farið á flakk en þetta er samt hlið málsins sem lítið er rædd. Þá gjarnan gengur þetta í báðar áttir, sá sem endir, fær einnig skilaboð tilbaka. Tækninni fleygir fram í þessu sem öðru.

Það er hægt að fikra sig rólega áfram í þessu og byrja bara á orðum áður en, og ef viðkomandi færir sig yfir í ljósmyndir.


Tengdar fréttir

Kynfærakrullur

Háreyðing líkamshára er umdeilt mál.

Ólík kynlöngun

Mörg pör glíma við ólíka kynlöngun en eins og með allt þá er til lausn.

Snípurinn

Allt sem þú vilt og þarft að vita um snípinn.

Sexsomnia

Heimildamynd um kynferðislega svefnröskun sem kallast sexsomnia.

Píkan

Allt sem þú þarft að vita um píkuna.








×