Heilsa

Píkan

Sigga Dögg kynfræðingur skrifar
Píkan er svo miklu meira en margir halda.
Píkan er svo miklu meira en margir halda.
Píkan getur virst flókin og sveipuð dulúð en ef þú bara kemur þér vel fyrir með lítinn spegil í hönd þá sérðu að hún er afskaplega vinaleg. Þó er gott að kynna sér hana aðeins svo þú vitir hvað þú sért að skoða.

 

10 staðreyndir um píkuna

  1. Píkur eru ólíkar. Barmarnir eru missíðir, snípurinn misstór og píkan sjálf mis ofarlega

  2. Snípurinn er sérhannaður fyrir kynferðislega ánægju 

  3. Leggöng eru um 7,6 cm til 12,7 cm löng

  4. Leggöngin blotna til þess að jafna efnasamsetningu legganganna til að auðvelda kynmök, auka kynferðislega ánægju og í tilfellum sem það á við, svo sæði svo það geti synt hraðar og lifað lengur

  5. Sumar píkur finna fyrir g-blettinum, og þær sem finna fyrir honum finna bara stundum fyrir honum en ekki alltaf

  6. Á meðan á óléttu stendur þá fá innri barmarnir dekkri lit

  7. Barmar eru misstórir, frekar teygjanlegir og þeir innri oft stærri en þeir ytri.

  8. Kegel æfingar eru æfingar fyrir grindarbotnsvöðvana til að halda píkunni í formi. Þessar æfingar eru sérstaklega mikilvægar fyrir píkuna til að jafna sig eftir fæðinguna. Þá geta æfingarnar einnig aukið á kynferðislegan unað

  9. Lykt er einstaklingsbundin og því verður þú að meta fyrir þig hvað er „vond" (öðruvísi en vanalega) lykt og hvenær þú gætir þurft að leita til læknis

  10. Ef þér finnst útferðin vera meiri en vanalega þá gæti verið gott að leita til læknis

  11. Pissaðu eftir samfarir til að minnka líkurnar á þvagfærasýkingu

Hjá Betty Dodson má skoða bæði teiknaðar myndir og ljósmyndir af allskyns píkum.

Það er einnig mjög áhugavert að skoða ljósmyndir af leghálsinum

Og mundu, við höfum einnig talað saman um snípinn.


Tengdar fréttir

Kynfærakrullur

Háreyðing líkamshára er umdeilt mál.

Ólík kynlöngun

Mörg pör glíma við ólíka kynlöngun en eins og með allt þá er til lausn.

Snípurinn

Allt sem þú vilt og þarft að vita um snípinn.

Sexsomnia

Heimildamynd um kynferðislega svefnröskun sem kallast sexsomnia.

Sexí smáskilaboð

Kynferðisleg smáskilaboð, jákvæð eða neikvæð?








×