Innlent

Oddvitaáskorunin - Skila fjármunum í menntakerfið

Samúel Karl Ólason skrifar
Ég er...til vinstri.
Ég er...til vinstri.

Vísir stendur fyrir Oddvitaáskoruninni 2014 þar sem skorað er á oddvita allra flokka í kjördæmum um land allt að taka þátt.

Ólafur Þór Gunnarsson leiðir lista Vinstri grænna og félagshyggjufólks í Kópavogi í sveitarstjórnarkosningunum í vor.

Vinstri græn og félagshyggjufólk vilja að Kópavogur sé samfélag þar sem allir geta lifað með reisn á öllum æviskeiðum. Við viljum að virðing sé borin fyrir margbreytileikanum og að íbúar séu þátttakendur í ákvörðunum er varða samfélagsleg málefni.

VGF leggja áherslu á forgangsröðun í þágu barna og fjölskyldna þeirra. Það á að vera eftirsóknarvert fyrir barnafólk að búa í Kópavogi og Kópavogsbær á að vera eftirsóknarverður vinnustaður í mennta- og velferðarmálum. Því þarf að skila aftur þeim fjármunum sem teknir hafa verið úr menntakerfinu frá hruni og efla velferðarkerfið.

VGF eru með sjónarmið félagshyggju, velferðar, umhverfisverndar og kvenfrelsis að leiðarljósi  allri stefnumótun. Við viljum efla samstarf sveitarfélaga á höfuðborgarsvæðinu, því við teljum að allir íbúar höfuðborgarsvæðisins eigi rétt á sambærnilegri þjónustu. Vinstri græn of félagshyggjufólk  er nýr valkostur fyrir Kópavogsbúa. Við bjóðum fram gott fólk til þjónandi forystu fyrir bæjarbúa Samfélag fyrir alla!

YFIRHEYRSLAN

Hver er fallegasti staðurinn á Íslandi?

Hornbjarg og svæðið þar í kring, einnig suðausturhornið með glæsilegri jöklasýn.

Hundar eða kettir?

Hundar (er með ofnæmi fyrir köttum).

Hver er stærsta stundin í lífinu?

Fæðing barnanna minna.

Hver er uppáhaldsmaturinn þinn?

Fiskur í öllum regnbogans litum.

Ég og sonurinn Helgi Hrafn. Man ekki hvort hann kom á undan í mark.

Hvernig bíl ekur þú?

Renault Megane með mikla reynslu, og er kominn með kosningarétt.

Besta minningin?

Fyrsti dansinn við konuna mína á Borginni haustið 1984.

Hefur þú verið tekinn af lögreglunni?

Já af lögreglunni í Archangelsk fyrir að brjóta útgöngubann (ég var 17 ára).

Hverjum sérðu mest eftir?

Móður minni.

Ég og Grímur eins og Össur Skarp kallar hann.

Draumaferðalagið?

Óbyggðir Alaska og norður Kanada (helst á reiðhjóli)

Hefur þú migið í saltan sjó?

Já ég var messagutti hjá Sambandinu tvö sumur.

Hvað er það skrýtnasta sem þú hefur gert?

Að draga reiðhjólið mitt á handafli yfir stærstu eyðimörk Evrópu, Dyngjusand. Það tók 12 tíma að komast 15 kílómetra.

Hefur þú viðurkennt mistök?

Já iðulega, flest smá en sum stærri. Og lært af þeim öllum.

Hverju ertu stoltastur af?

Fjölskyldunni minni.

Fram að sveitarstjórnarkosningunum 31. maí munum við birta kynningu á oddvitum víðsvegar um landið. Allir oddvitar geta tekið þátt í Oddvitaáskorun Vísis. Nánari upplýsingar er hægt að nálgast á netfanginu samuel@365.is.


Tengdar fréttir




Fleiri fréttir

Sjá meira


×