Aron Rafn góður þegar Guif vann tvíframlengdan leik Óskar Ófeigur Jónsson skrifar 2. maí 2014 19:32 Aron Rafn Eðvarðsson. Mynd/HSÍ/Hilmar Þór Guðmundsson
Lærisveinar Kristjáns Andréssonar í Eskilstuna Guif eru komnir í 1-0 í undanúrslitaeinvígi sínu á móti Alingsås HK eftir þriggja marka sigur í æsispennandi fyrsta leik seríunnar í kvöld. Eskilstuna var á heimavelli og vann Alingsås 34-31 eftir tvíframlengdan leik en það lið sem fyrr vinnur þrjá leiki kemst í lokaúrslitum um sænska meistaratitilinn. Aron Rafn Eðvarðsson stóð sig vel í marki Eskilstuna Guif og varði 15 af 45 skotum (33 prósent markvarsla) þar af var eitt víti. Línumaðurinn Heimir Óli Heimisson skoraði eitt mark í leiknum en markahæstur hjá Guif-liðinu var Viktor Östlund með áttamörk. Guif var 11-10 yfir í hálfleik og var með forystuna allan seinni hálfleikinn. Guif missti niður þriggja marka forskot á lokamínútunum og Alingsås kom leiknum í framlengingu. Aron Rafn átti mikinn þátt í að Guif kom leiknum í aðra framlengingu þegar hann varði tvö síðustu skot Alingsås í fyrstu framlengingunni en Alingsås-liðið var þá komið tveimur mörkum yfir. Guif tók síðan forystuna í seinni framlengingunni og tryggði sér nauðsynlegan sigur og 1-0 forystu í undanúrslitaeinvíginu. Eskilstuna-liðið vann Redbergslids 3-0 í átta liða úrslitunum og hefur því unnið fyrstu fjóra leiki sína í úrslitakeppninni.
Handbolti Mest lesið Þjóðverjar busuðu fámennustu þjóð í sögu HM með rassskelli Fótbolti Ísak Bergmann trúlofaður Fótbolti „Þetta er eins og aftanákeyrsla“ Íslenski boltinn Uppgjörið: Keflavík-FH 1-2 | Fyrsti sigur FH-inga í sumar Fótbolti Uppgjör: Þór-ÍBV 1-4 | Eyjamenn með annan stórsigurinn í röð Fótbolti Forseti FIFA móðgaði Ítali Fótbolti Basile yfirgefur Stólana og semur við Álftanes Körfubolti Viktor Gísli vann Meistaradeildina með Barcelona Handbolti Klopp segir þá halda fótboltanum í gíslingu Fótbolti Hulda Clara fagnaði sigrinum með því að hoppa út í vatnið Golf Fleiri fréttir Viktor Gísli vann Meistaradeildina með Barcelona Magdeburg fékk bronsið Viktor Gísli í úrslitaleik Meistaradeildarinnar Magdeburg tapaði í undanúrslitum Strákarnir okkar stálheppnir með riðil á HM Benedikt verður lærisveinn Arnórs Engin Ungverjagrýla á HM Orri Freyr hetjan og Sporting bikarmeistari Valskonur styrkja sig Markakóngurinn endaði tímabilið með látum Lið Blæs bjargaði lærisveinum Rúnars „Hann breytti kúlturnum“ Örn tekur við karlaliði Selfoss Guðjón Valur þjálfari ársins í Þýskalandi Löðrandi sveittur Donni þurfti að sætta sig við silfur Silfurdrengurinn Ingimundur þjálfar Aftureldingu ásamt Hrannari Stórt tap tryggði sæti í Meistaradeildinni Lovísa og Arnór Snær best í Olís deildinni Missti af dýrmætum stigum gegn meisturunum Jafnir leikir hjá Íslendingunum Guðjón Valur ósáttur því lið gæti grætt á tapi Ráða Svíann sem var einu sinni orðaður við íslenska landsliðið „Þetta hefði ekki getað endað betur“ Bjarki Már ungverskur meistari fjórða árið í röð Hættur og farinn í meistaranám til Bandaríkjanna Hættir með vefinn sinn Handbolti.is Íslendingalið Melsungen er Evrópudeildarmeistari Íslenska þríeykið þýskur meistari Donni lék Landin grátt en mátti þola sárt tap í fyrsta leik um titilinn Óðinn fékk silfrið í fyrsta sinn Sjá meira