Enski boltinn

Allardyce ætlar að eyðileggja teiti Man. City

Sam Allardyce.
Sam Allardyce. vísir/getty
Man. City verður Englandsmeistari með því að næla í stig gegn West Ham á sunnudag. Stjóri West Ham, Sam Allardyce, vill ólmur eyðileggja teitið hjá City.

"Ég held að hinir hlutlausu vilji sjá Liverpool vinna titilinn. Ég persónulega vil sjá Steven Gerrard lyfta bikarnum," sagði Stóri Sam.

"Þetta er síðast titillinn sem hann á eftir að vinna með Liverpool. Maðurinn hefur verið hjá Liverpool allan sinn feril. Auðvitað hefur Liverpool misst titilinn úr höndum sér.

"Það vita allir hversu erfitt er að spila gegn City þegar liðið spilar á fullu. Við munum fara út á völlinn og fórna öllu til þess að koma í veg fyrir að City lyfti bikarnum."

Allardyce gerir sér þó grein fyrir því hversu erfitt sé að leggja City. City er búið að vinna alla þrjá leiki liðsins gegn West Ham í vetur og skora tólf mörk í þeim leikjum.

"Þetta lið hefur aðeins tapað einum heimaleik á tímabilinu og það gegn Chelsea. Það þýðir samt ekki að við munum ekki selja okkur dýrt. Við ætlum að reyna að eyðileggja partíið."




Fleiri fréttir

Sjá meira


×