Þið verðið myrtir ef þið tapið leik 27. mars 2014 23:15 Myndin tengist fréttinni ekki beint. vísir/afp
Serbneskir fjölmiðlar greina í dag frá ótrúlegri sögu serbnesks handboltamanns sem mátti þakka fyrir að sleppa lifandi heim frá Líbýu þar sem hann var að spila. Hinn 21 árs gamli Nikola Mitrovic samdi við lið Al Naser í Líbýu en það átti eftir að reynast afdrifarík ákvörðun í lífi hans. Hann var nýlentur er bandarískur þjálfari liðsins gerði vegabréf hans upptækt. Hann tjáði honum líka að liðinu væri hollast að vinna sína leiki. Annars ættu þeir á hættu að vera myrtir. "Þjálfarinn sagði mér að það kæmi einfaldlega ekki til greina að tapa leik. Það gæti þýtt að við yrðum drepnir. Svo sá ég hina svokölluðu stuðningsmenn félagsins og þeir voru allir vopnaðir AK-47 hríðskotabyssum," sagði Mitrovic er hann var beðinn um að rifja upp dvöl sína í landinu. Serbinn var alls sjö mánuði hjá liðinu og fékk aldrei greitt eina einustu krónu. "Ég hefði dáið úr hungri ef ekki hefði verið fyrir nágranna mína sem voru frá Sýrlandi. Þeir áttu matvörubúð og gáfu mér mat. Þau hjálpuðu mér einnig að flýja." Það var það eina sem komst að hjá leikmanninum. Að komast úr landinu. Hann var reyndar ekki einn um það því bandaríski þjálfarinn og samlandi hans sem spilaði með liðinu reyndi það líka. Áður en þjálfaranum tókst að flýja land lét hann Mitrovic fá vegabréfið sitt. Hann komst úr landi mánuði síðar og ætlar víst ekki aftur til Líbýu. Mitrovic heldur því fram að annar Bandaríkjamaður, sem hafi einnig spilað með liðinu, hafi verið myrtur meðan þeir spiluðu báðir með Al Naser.
Handbolti Mest lesið Brotinn Gylfi Þór fórnar sér: „Brynja, ég elska þig“ Fótbolti Ákvörðun Vals algjörlega galin og það sýnir sig núna Íslenski boltinn Allt á suðupunkti: Saka Ísraela um að hrækja á aðstoðarmann Heimis Fótbolti „Þetta er ástæðan fyrir því að allir hata Bandaríkin“ Fótbolti Ökuþórar hrista hausinn: „Eins og Lego kappakstur“ Formúla 1 Meiddist í Portúgal Enski boltinn Ráða nýjan yfirþjálfara eftir líkamsárás forverans Sport Gylfi með til Eistlands Fótbolti Bakgarðsáskorunin: Hroturnar heyrðust í beinni útsendingu Sport Sveindís til Króatíu eftir dramatík gegn toppliðinu Fótbolti Fleiri fréttir Dýrmætur sigur HK-inga Ómar markahæstur í öruggum sigri FH hélt Selfossi á botninum Sættast eftir lætin á Ísafirði og allt dregið til baka Elín Klara í ham í Austurríki | Sveinar Guðjóns misstu Kiel fram úr sér Eyjakonur juku á raunir HK Brynjar sé Lamine Yamal handboltans: „Hef aldrei séð annað eins“ Mögnuð Jóhanna með yfir helming marka Hauka í sigri Fyrsti sigur lærisveina Arnórs kom í spennutrylli Gunnar með ellefu mörk í sigri Vals Haukur skoraði sjö í Íslendingaslag Viktor og Janus fengu silfur á HM eftir að gamall félagi stal senunni Hákon Daði Styrmisson: „Standardinn þarf að vera hærri“ Haukar halda sigurgöngunni áfram KA með sannfærandi sigur á Eyjamönnum Uppgjörið: Fram - Afturelding 24-42 | Niðurlæging í Úlfarsárdal Markmenn beggja liða áttu stórleik í sigri Fram Guðjón Valur fær Orra óstöðvandi til Þýskalands Svekkjandi tap FH eftir góðan lokasprett Ellefu marka Ómar kom Magdeburg á toppinn Kannast ekki við krísufund á Hlíðarenda Danir fjalla um niðurlæginguna á Hlíðarenda „Held að fólk átti sig ekki á því sem við vorum að gera í kvöld“ Uppgjörið: Valur - Mors-Thy 39-28 | Þar lágu Danir í þvi Hörður svarar: „Svo alvarlegar ásakanir eiga ekki heima í opinberri umræðu“ Veittist að þjálfara í 3. flokki og málið á borð HSÍ Elvar með sex mörk í toppslagnum Lið Viggós á hvínandi siglingu í Þýskalandi Minden keypti Erling af ÍBV Guðjón Valur hafði betur gegn Arnóri Sjá meira