Leikjavísir

QuizUp komið út á Android

Samúel Karl Ólason skrifar
Mynd/Plain Vanilla
Spurningaappið QuizUp var gefið út fyrir Android stýrikerfi í morgun. Appið er framleitt af fyrirtækinu Plain Vanilla, en það kom út fyrir iOs hjá iPhone í byrjun nóvember. Upprunalega stóð til að gefa QuizUp út á Android í janúar, en það hefur dregist þar til nú.

QuizUp hefur notið gífurlegra vinsælda um heim allan og varð í öðru sæti á Crunchies verðlaunahátíðinni í síðasta mánuði.


Tengdar fréttir

Quiz Up vinsælast í 30 löndum

Spurningaleikurinn Quiz Up er eitt vinsælasta smáforrit heims um þessar mundir. Leikurinn er í þriðja sæti í flokki ókeypis smáforrita á Bandaríkjamarkaði. "Algjört ævintýri,“ segir forstjóri Plain Vanilla sem framleiðir leikinn. Þessi uppgangur leiksins er ævintýri líkast.

Stefnt að því að gefa QuizUp út á Android í janúar

Smáforritafyrirtækið Plain Vanilla finnur nú hörðum höndum að því að koma QuizUp leiknum út fyrir tæki með Android stýrikerfi en hingað til hefur aðeins verið hægt að spila spurningaleikinn á tæki frá Apple.

Plain Vanilla sakar keppinauta um rangfærslur

Plain Vanilla segir ekki allt rétt í grein sem birtist á vef Techcrunch. Gallar hafi þó fundist sem búið sé að laga. Forsvarsmenn Plain Vanilla segja keppinaut hafa skrifað greinina og saka hann um rangfærslur.

Íslendingar til að kjósa QuizUp

Þorsteinn B. Friðriksson, stofnandi fyrirtækisins Plain Vanilla, segist á Facebook síðu sinni vera stoltur yfir tilkynningu QuizUp til hinna árlegu Crunchies verðlauna og biðlar til Íslendinga að kjósa spurningaleikinn.

240 milljón króna hlutafjáraukning hjá Plain Vanilla vegna QuizUp

Bandaríski fjárfestingasjóðurinn Sequoia Capital leiðir nýja fjárfestingu upp á tvær milljónir dollara í tölvuleikjaframleiðandanum Plain Vanilla. Það gera um 240 milljónir íslenskra króna. Sequoia óskaði eftir þessu daginn áður en að leikurinn kom út.

QuizUp örast vaxandi leikur í sögu App Store

Smáforritaleikurinn QuizUp hefur aðeins verið á markaðnum í þrjár vikur og hafa þrjár og hálf milljón manna halað niður leiknum. Íslenska fyrirtækið Plain Vanilla framleiðir QuizUp.

Virði Plain Vanilla hefur aukist tífalt

Verðmæti íslenska leikjafyrirtækisins Plain Vanilla hefur átt- til tífaldast, samkvæmt heimildum Fréttablaðsins. Talið er að fyrirtækið sé í dag metið á um tólf milljarða króna






Fleiri fréttir

Sjá meira


×