Farið fram á tveggja og hálfs árs fangelsisdóm Samúel Karl Ólason skrifar 27. febrúar 2014 13:15 Algirdas Vysnauskas á leið í dómsal. Vísir/Daníel
Aðalmeðferð í máli íslenska ríkisins gegn Litháanum Algirdas Vysnauskas fór fram í Héraðsdómi Reykjaness í Hafnarfirði í dag. Vísir fylgdist með málflutninginum. Vysnauskas var handtekinn í kjölfar tollskoðunar á Keflavíkurflugvelli í október síðastliðið haust. Aðspurður sagði hann að rauðvín væri í flöskunni sagði það í lagi að tollverðir opnuðu flöskuna. Á meðan tollvörður náði í tappatogara kastaði hann flöskunni í gólfið svo hún brotnaði og innihaldið skettist um herbergið. Saksóknari fór fram að Algirdas yrði dæmdur fyrir stórfellt fíkniefnalagabrot. Að hann yrði dæmdur í tveggja og hálfs árs fangelsi, eða jafnvel þriggja ára. Salsóknari sagði hann hafa verið margsaga við skýrslutökur og framburður hans væri ótrúverður. Algirdas sagðist hafa hitt mann að nafni Tómas í líkamsræktarstöð sem sagðist ætla að koma honum í samband við mann á Íslandi sem gæti útvegað honum vinnu. Í staðinn þyrfti hann einungis að koma flöskunni til mannsins. Þegar hann var svo hvers vegna hann braut flöskuna sagðist hann fyrst hafa snöggreiðst. Tollverðir sögðu að lyktin sem hefði komið upp þegar Algirdas braut flöskuna hafi greinilega verið rauðvínslykt. Hann mun þó ekki hafa sýnt því nein viðbrögð og setið áfram rólegur í stól sínum samkvæmt tollvörðum. Þá lagði Isavia einnig fram bótakröfu vegna atviksins. Margsinnis var reynt að þrífa herbergið til að losna við lyktina en á endanum þurfti að rífa af veggjum og gólfi. Verjandi Algirdas segir það hvort hann hafi haft vitneskju um hvað væri í flöskunni ekki vera aðalmálið. Að ákæran sjálf væri aðalmálið. Í henni sagði að hann væri ákærður fyrir að hafa flutt um þúsund millilítra af metafmetamínbasa til landsins. Verjandinn sagði það ekki verk dómsins að ákveða magnið, en sýnið sem tekið var af vökvanum var 70 millilítrar og var það eina sem náðist. Þá benti verjandinn á að tollverðir hafi sagt flöskuna fulla upp í háls, en að það væri ekki næg sönnun fyrir magni. Þá var tekist á í dómsalnum um hve sterkur amfetamínbasinn var, en ákæruvaldið sagði 71 prósent. Verjandinn benti á að efnið lá á gólfinu í allt að klukkustund og yfirgnæfandi líkur séu á því að hann hafi ekki verið 71 prósent við komuna til landsins. Verjandinn gerði einnig út á rannsókn lögreglunnar á fullyrðingum Algirdas um atburðina erlendis og sagði enga rannsókna hafa verið gerða. Algirdas hafi verið gerður ótrúverður með einu pennastriki.Tweets by @visir_is
Mest lesið Bein útsending: Marco Rubio heimsækir Ísland Innlent Rubio: Ísland í miðjunni Innlent Skora á borgina að bæta ekki við beygjuvasa Innlent Umdeildur metsöluhöfundur látinn Erlent Bjarni segir ekkert hæft í að verið sé að úthýsa Aþenu Innlent Afgerandi niðurstaða um að slíta kjarasamningum Innlent Portúgalsfarinn á bak við lás og slá Innlent Þurfa að hætta við mótorakaup fáist ekki fé frá ríkinu Innlent Verði að gera fyrirvara við rannsókn um karlmennsku Innlent Leit að eftirmanni Harðar hefði hafist í haust eða vetur Innlent Fleiri fréttir Guðmundur Fertram og Fanney opna nýsköpunarsetur Segir gjald fyrir túlkun eftir þrjú ár sanngjarna kröfu „Viljum ekki að það sé verið að leika sér að fullveldi Íslands“ Ný skýrsla Umhverfis- og orkustofnunar: Hverfandi líkur á að olía finnist á Drekasvæðinu Rubio farinn af landi brott Verði að gera fyrirvara við rannsókn um karlmennsku Leit að eftirmanni Harðar hefði hafist í haust eða vetur Bjarni segir ekkert hæft í að verið sé að úthýsa Aþenu Samtalið efnismeira en áður þó talsverð gjá sé á milli Einn í framboði til varaformanns enn sem komið er Ögurstund í kjaramálum og Marco Rubio í heimsókn Skora á borgina að bæta ekki við beygjuvasa Rubio: Ísland í miðjunni Þurfa að hætta við mótorakaup fáist ekki fé frá ríkinu Bein útsending: Marco Rubio heimsækir Ísland Tvær líkamsárásir á borði lögreglu Brotist inn í fjóra bíla í þremur hverfum Afgerandi niðurstaða um að slíta kjarasamningum Auglýsingatekjur Rúv undir fyrirhuguðu þaki þrjú ár í röð Fengu heimild til þess að segja upp kjarasamningum Öflugur jarðskjálfti í Bárðarbungu Meiri líkur en minni á að kjarasamningum verði sagt upp Rubio lentur á Íslandi Hafna ásökunum um svik og benda á stjórnvöld Portúgalsfarinn á bak við lás og slá Opnuðu Arnarnesveg að hluta Tvöföld árekstrarhætta þegar flugumferðarstjóri missti yfirsýn Meirihlutinn sprakk aftur vegna vallarmála Segir Aþenu í andarslitrunum Rubio spenntur að hitta Þorgerði Sjá meira