Ekki sannað að nágranni með njósnamyndavél hafi brotið lög Kjartan Atli Kjartansson skrifar 10. febrúar 2014 11:29 Njósnavélin var með innbyggðum hreyfiskynjara. Myndin tengist fréttinni ekki.
Stjórn Persónuverndar taldi íbúa í fjölbýlishúsi ekki hafa sannað að nágranni hans væri að brjóta lög um persónuvernd með því að koma fyrir stafrænni „njósnamyndavél“ í garði sem íbúar á annari hæð fjölbýlishússins nota. Íbúinn sem kvartaði býr á annari hæð hússins kvartaði yfir því að nágranni hans á jarðhæð hafi komið fyrir öflugri stafrænni myndavél með hreyfiskynjara sem beint væri út í hluta garðsins fyrir utan fjölbýlishúsið sem aðeins íbúarnir á efri hæð þess hafa aðgang að. Íbúinn sem kvartaði skilaði að auki inn undirskriftum tólf annarra íbúa hússins, en þessi stafræna „leynilega njósnavél“ vakti með þeim óhug. Í bréfi sem íbúinn, sem kvartaði undan nágranna sínum, sendi stjórnar Persónuverndar segir meðal annars að nágranninn sem kom myndavélinni fyrir „brást ókvæða við spurningum þess efnis hvort hann væri að taka okkur íbúa efri hæðar upp í garðinum eða í hvaða tilgangi þessum búnaði væri beint útí garð okkar.“ Íbúinn sem kvartaði til Persónuverndar sagði ennfremur að ljóst væri að „við [íbúar á efri hæð] mundum ekki sætta okkur við slíka háttsemi, því lítum við svo á að um mjög skýran brotavilja sé að ræða, þ.e.a.s að verða sér útum búnað sem samkvæmt upplýsingum okkar fæst ekki á landinu og gengur undir nafninu spycam og nýta í tilgangi sem okkur er hulin ráðgáta.“ Þessu svaraði nágranninn með njósnabúnaðinn meinta: „Einnig skal kvartari bara gjöra svo vel að framreiða hver önnur gögn sem styðja fullyrðingar hans um aðrar meintar „njósnir“ og vera ekki að láta ímyndunaraflið hlaupa með sig í gönur og ljúga öllu illu uppá kvörtunarþola.“ Til þess að sanna mál sitt lagði íbúinn til ljósmyndir af meintri njósnamyndavél nágranna síns. Stjórnar Persónuverndar þótti ekki sannað að nágranninn hafi í raun notað þessa stafrænu vél til „ leynilegrar, rafrænnar vöktunar og söfnunar persónuupplýsinga í tengslum við hana.“ Því var ekki hægt að fullyrða að nágranninn hafi brotið lög. Málið kom inn á borð persónuverndar í maí í fyrra og var úrskurðað í málinu í síðasta mánuði
Mest lesið Trump segist vera að íhuga að draga saman seglin í Þýskalandi Erlent Rifjaði upp erfitt augnablik frá 1994 til að skjóta á mótherja Innlent Einhuga um að lengja gildistíma ökuskírteina Innlent Stefni í sömu átt og Svíþjóð Innlent Baldur til Eyja Innlent Mamdani vill að Bretar skili Koh-i-Noor Erlent Bútaði líkið í sundur í uppblásinni sundlaug Erlent Seltjarnarnes heldur áfram að tapa Innlent „Þetta er gríðarlegt högg fyrir þessi minni bæjarfélög“ Innlent Gripu til sinna ráða og settu Starlink í skólarútuna Innlent Fleiri fréttir Helmingur gæti ekki mætt 100 þúsund króna útgjöldum Bein útsending: Svarar fyrir skipulagsbreytingar á framhaldsskólum Bein útsending: Ræða markmiðadrifði hagkerfi í þaula Rifjaði upp erfitt augnablik frá 1994 til að skjóta á mótherja Einhuga um að lengja gildistíma ökuskírteina Baldur til Eyja „Þetta er gríðarlegt högg fyrir þessi minni bæjarfélög“ „Það er mikið verið að suða“ Stefni í sömu átt og Svíþjóð Gripu til sinna ráða og settu Starlink í skólarútuna „Hún er skrifuð af mér“ Ísland stefni í sömu átt og Svíþjóð Fjórir í varðhaldi vegna Dettifossmálsins Rafgeymar gátu ekki fætt dælur þegar Ormurinn langi sökk Mega hjóla gegn einstefnu Greiða hundruð þúsunda fyrir heimsókn Tinna til Íslands Bein útsending: Oddvitar í Reykjavík á kosningafundi Viðskiptaráðs Viðreisn upp fyrir Sjálfstæðisflokk og Framsókn bætir við sig Leiðir áfram unga miðflokksmenn Batahorfur betri eftir umferðarslys við Skógarveg „Það var reynt að fá þá fyrr að verkinu“ Algengt að krafa sé gerð í sambandi um að deila stöðugt staðsetningu Verðbólgan hjaðnar og vandræði í Landeyjahöfn Halda til Svíþjóðar í afmælisveislu Atli og Sunna nýir fréttastjórar og Árni varafréttastjóri Kosningapallborð fréttastofu: Glæný skoðanakönnun kynnt fyrir Hafnarfjörð Sænska lögreglan reynir að uppræta „glæpamenn til leigu“ Systkinaforgangur og heimgreiðslur á lista margra framboða í Reykjavík „Mögulegt heimilisofbeldi“ reyndist tölvuleikur Kölluð út á efsta forgangi vegna báts í vanda á Kópaskeri Sjá meira