Innlent

Ekki sannað að nágranni með njósnamyndavél hafi brotið lög

Kjartan Atli Kjartansson skrifar
Njósnavélin var með innbyggðum hreyfiskynjara. Myndin tengist fréttinni ekki.
Njósnavélin var með innbyggðum hreyfiskynjara. Myndin tengist fréttinni ekki.
Stjórn Persónuverndar taldi íbúa í fjölbýlishúsi ekki hafa sannað að nágranni hans væri að brjóta lög um persónuvernd með því að koma fyrir stafrænni „njósnamyndavél“ í garði sem íbúar á annari hæð fjölbýlishússins nota.

Íbúinn sem kvartaði býr á annari hæð hússins kvartaði yfir því að nágranni hans á jarðhæð hafi komið fyrir öflugri stafrænni myndavél með hreyfiskynjara sem beint væri út í hluta garðsins fyrir utan fjölbýlishúsið sem aðeins íbúarnir á efri hæð þess hafa aðgang að. Íbúinn sem kvartaði skilaði að auki inn undirskriftum tólf annarra íbúa hússins, en þessi stafræna „leynilega njósnavél“ vakti með þeim óhug.

Í bréfi sem íbúinn, sem kvartaði undan nágranna sínum, sendi stjórnar Persónuverndar segir meðal annars að nágranninn sem kom myndavélinni fyrir „brást ókvæða við spurningum þess efnis hvort hann væri að taka okkur íbúa efri hæðar upp í garðinum eða í hvaða tilgangi þessum búnaði væri beint útí garð okkar.“

Íbúinn sem kvartaði til Persónuverndar sagði ennfremur að ljóst væri að „við [íbúar á efri hæð] mundum ekki sætta okkur við slíka háttsemi, því lítum við svo á að um mjög skýran brotavilja sé að ræða, þ.e.a.s að verða sér útum búnað sem samkvæmt upplýsingum okkar fæst ekki á landinu og gengur undir nafninu spycam og nýta í tilgangi sem okkur er hulin ráðgáta.“

Þessu svaraði nágranninn með njósnabúnaðinn meinta: „Einnig skal kvartari bara gjöra svo vel að framreiða hver önnur gögn sem styðja fullyrðingar hans um aðrar meintar „njósnir“ og vera ekki að láta ímyndunaraflið hlaupa með sig í gönur og ljúga öllu illu uppá kvörtunarþola.“

Til þess að sanna mál sitt lagði íbúinn til ljósmyndir af meintri njósnamyndavél nágranna síns.

Stjórnar Persónuverndar þótti ekki sannað að nágranninn hafi í raun notað þessa stafrænu vél til „ leynilegrar, rafrænnar vöktunar og söfnunar persónuupplýsinga í tengslum við hana.“ Því var ekki hægt að fullyrða að nágranninn hafi brotið lög. Málið kom inn á borð persónuverndar í maí í fyrra og var úrskurðað í málinu í síðasta mánuði




Fleiri fréttir

Sjá meira


×