Innlent

Slógust á Hótel Örk

Lögregla var kvödd til eftir að tveir karlmenn fóru að slást á Hótel Örk í Hveragerði í nótt. Hvorugan þurfti að flytja á slysadeild eftir átökin, en annar var fluttur til Reykjavíkur til öryggis.

Líkt og í fyrrinótt , þegar tveir hófu slagsmál á Hótel Selfossi, voru þetta samstarfsmenn af veitingahúsi í Reykjavík, sem höfðu haldið árshátíð um kvöldið. Og líkt og í fyrrinótt, hófust slagsmálin í nótt út af kvennamálum.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×