Innlent

Eldur kviknaði í húsnæði Símans í Ármúla

Samúel Karl Ólason skrifar
Mynd/Aðsend
Slökkvilið höfuðborgarsvæðisins var kallað út að húsnæði Símans við Ármúla 25 þar sem kviknað hafði í neyðarljósi. Rýma þurfti hluta húsnæðisins en neyðarljósið var nálægt inngangi hússins.

Gunnhildur Arna Gunnarsdóttir, upplýsingafulltrúi Símans, segir allt hafa gengið vel og engum hafi orðið meint af. Starfsmenn Símans eru komnir aftur inn í húsið og slökkviliðið að klára reykræstinguna. Enn er þó mikil lykt í húsnæðinu.

Mynd/Aðsend



Fleiri fréttir

Sjá meira


×