Viðvörun vegna svifryksmengunar - Fólk ætti að halda sig inni Hanna Rún Sverrisdóttir skrifar 11. febrúar 2014 14:03 Mynd úr safni. Heilbrigðiseftirlit Reykjavíkur hefur sent út viðvörun vegna svifryksmengunar. VÍSIR/GVA
Svifryk verður líklega yfir heilsuverndarmörkum í Reykjavík í dag en hægur vindur verður og engar líkur á úrkomu og götur eru þurrar. Heilbrigðisbrigðiseftirlit Reykjavíkur fylgist náið með loftgæðum borgarinnar og hefur nú sent frá sér viðvörun vegna þessa. Hálftímagildi svifryks var 153 míkrógrömm á rúmmetra í morgun við mælistöðina á Grensásvegi en sólarhrings heilsuverndarmörkin eru 50 míkrógrömm á rúmmetra. Þar sem búist er við þurrvirðri næstu daga og auknum vindi getur ryk þyrlast upp af þurri jörðunni og valdið rykmengun. „Viðvaranir eru sendar út ef mælistöðvarnar mæla svifryk yfir heilsuverndarmörkum. Það þýðir fyrst og fremst að þeir sem eru viðkvæmir fyrir, til dæmis með astma eða öndunarfærasjúkdóma ættu að halda sig inni,“ segir Bjarni Brynjólfsson, upplýsingastjóri Reykjavíkurborgar. Fullfrískt fólk finni kannski ekki fyrir neinu en ljóst sé að engum sé hollt að vera úti við þegar svifryk mælist yfir heilsuverndarmörkunum. Nagladekkin eru talinn vera skaðvaldur í þessum efnum því dekkin spæna upp malbikið og agnirnar skolast ekki í burtu nema í mjög mikilli rigningu eða þær séu þvegnar burtu en göturnar eru hreinsaðar á vorin. „Þetta ástand er frekar óvenjulegt og þetta gerist ekki oft á ári að svifrykið mælist yfir mörkunum,“ segir Bjarni. Hægt er að fylgjast með styrk svifryks á vefsíðu Reykjavíkurborgar en þar má sjá kort yfir mælistaði í Reykjavík meðal annars mælistöð á Grensásvegi. Önnur loftgæðafarstöðva Heilbrigðiseftirlits Reykjavíkur er að þessu sinni staðsett við leikskólann Hólaborg við Suðurhóla.
Mest lesið Einhuga um að lengja gildistíma ökuskírteina Innlent Baldur til Eyja Innlent Seltjarnarnes heldur áfram að tapa Innlent Endurráða alla 300 starfsmennina og setja þrjá milljarða í endurbætur Viðskipti innlent Stefni í sömu átt og Svíþjóð Innlent Gripu til sinna ráða og settu Starlink í skólarútuna Innlent „Hún er skrifuð af mér“ Innlent „Þetta er gríðarlegt högg fyrir þessi minni bæjarfélög“ Innlent „Það er mikið verið að suða“ Innlent Viðreisn upp fyrir Sjálfstæðisflokk og Framsókn bætir við sig Innlent Fleiri fréttir Einhuga um að lengja gildistíma ökuskírteina Baldur til Eyja „Þetta er gríðarlegt högg fyrir þessi minni bæjarfélög“ „Það er mikið verið að suða“ Stefni í sömu átt og Svíþjóð Gripu til sinna ráða og settu Starlink í skólarútuna „Hún er skrifuð af mér“ Ísland stefni í sömu átt og Svíþjóð Fjórir í varðhaldi vegna Dettifossmálsins Rafgeymar gátu ekki fætt dælur þegar Ormurinn langi sökk Mega hjóla gegn einstefnu Greiða hundruð þúsunda fyrir heimsókn Tinna til Íslands Bein útsending: Oddvitar í Reykjavík á kosningafundi Viðskiptaráðs Viðreisn upp fyrir Sjálfstæðisflokk og Framsókn bætir við sig Leiðir áfram unga miðflokksmenn Batahorfur betri eftir umferðarslys við Skógarveg „Það var reynt að fá þá fyrr að verkinu“ Algengt að krafa sé gerð í sambandi um að deila stöðugt staðsetningu Verðbólgan hjaðnar og vandræði í Landeyjahöfn Halda til Svíþjóðar í afmælisveislu Atli og Sunna nýir fréttastjórar og Árni varafréttastjóri Kosningapallborð fréttastofu: Glæný skoðanakönnun kynnt fyrir Hafnarfjörð Sænska lögreglan reynir að uppræta „glæpamenn til leigu“ Systkinaforgangur og heimgreiðslur á lista margra framboða í Reykjavík „Mögulegt heimilisofbeldi“ reyndist tölvuleikur Kölluð út á efsta forgangi vegna báts í vanda á Kópaskeri Að óbreyttu muni umferðin halda áfram að þyngjast Hitaveitur gætu orðið veruleiki á Grænlandi „Ég veit ekkert hvenær þeir komast aftur heim“ Bó kvaddur í hinsta sinn Sjá meira