Vonandi risastórt skref Freyr Bjarnason skrifar 12. febrúar 2014 14:26 Gunnar Bragi Sveinsson ásamt kollegum sínum frá Norðurlöndum. Fréttablaðið/GVA „
Ég er mjög bjartsýnn á að þetta sé risastórt skref í frekari samstarfi á milli þessara þjóða,“ segir Gunnar Bragi Sveinsson, utanríkisráðherra. Utanríkis- og varnarmálaráðherrar Norðurlanda funda á Íslandi um aukið samstarf í öryggis- og varnarmálum. Í morgun hittust þeir í Reykjavík og í hádeginu voru þeir mættir á gamla varnarsvæðið í Keflavík á fund sem ber yfirskriftina Iceland Air Meet 2014. Á sama tíma stunda flugsveitir Norðmanna, Svía og Finna flugæfingar á Íslandi. „Menn heimsóttu í morgun sitt fólk og sínar flugsveitir og það var mikil ánægja með allt saman,“ segir Gunnar Bragi. „Í dag höfum við fyrst og fremst rætt um hvernig við getum unnið betur saman þegar kemur að öryggis- og varnarmálum. Við ræddum hvað við getum lagt af mörkum til að koma í veg fyrir átök. Norðurlandaþjóðirnar hafa gott orðspor um allan heim og þar getum við lagt töluvert af mörkum,“ segir hann. „Við ræddum líka öryggismálin á norðurskautinu. Þar eru allir sammála um að beina athyglinni að umhverfismálum og öryggi borgaranna. Við sjáum ekki fyrir okkur í náinni framtíð einhvers konar hernaðarógn eða hernaðarspennu þar.“ Gunnar Bragi bætti við að rætt hafi verið um að auka norrænt samstarf í friðargæsluverkefnum á vegum Sameinuðu þjóðanna. „Þar geta þjóðirnar nýtt alla þá þekkingu sem þær hafa.“
Mest lesið Einhuga um að lengja gildistíma ökuskírteina Innlent Baldur til Eyja Innlent Seltjarnarnes heldur áfram að tapa Innlent Endurráða alla 300 starfsmennina og setja þrjá milljarða í endurbætur Viðskipti innlent Stefni í sömu átt og Svíþjóð Innlent Gripu til sinna ráða og settu Starlink í skólarútuna Innlent „Hún er skrifuð af mér“ Innlent „Þetta er gríðarlegt högg fyrir þessi minni bæjarfélög“ Innlent Viðreisn upp fyrir Sjálfstæðisflokk og Framsókn bætir við sig Innlent „Það er mikið verið að suða“ Innlent Fleiri fréttir Einhuga um að lengja gildistíma ökuskírteina Baldur til Eyja „Þetta er gríðarlegt högg fyrir þessi minni bæjarfélög“ „Það er mikið verið að suða“ Stefni í sömu átt og Svíþjóð Gripu til sinna ráða og settu Starlink í skólarútuna „Hún er skrifuð af mér“ Ísland stefni í sömu átt og Svíþjóð Fjórir í varðhaldi vegna Dettifossmálsins Rafgeymar gátu ekki fætt dælur þegar Ormurinn langi sökk Mega hjóla gegn einstefnu Greiða hundruð þúsunda fyrir heimsókn Tinna til Íslands Bein útsending: Oddvitar í Reykjavík á kosningafundi Viðskiptaráðs Viðreisn upp fyrir Sjálfstæðisflokk og Framsókn bætir við sig Leiðir áfram unga miðflokksmenn Batahorfur betri eftir umferðarslys við Skógarveg „Það var reynt að fá þá fyrr að verkinu“ Algengt að krafa sé gerð í sambandi um að deila stöðugt staðsetningu Verðbólgan hjaðnar og vandræði í Landeyjahöfn Halda til Svíþjóðar í afmælisveislu Atli og Sunna nýir fréttastjórar og Árni varafréttastjóri Kosningapallborð fréttastofu: Glæný skoðanakönnun kynnt fyrir Hafnarfjörð Sænska lögreglan reynir að uppræta „glæpamenn til leigu“ Systkinaforgangur og heimgreiðslur á lista margra framboða í Reykjavík „Mögulegt heimilisofbeldi“ reyndist tölvuleikur Kölluð út á efsta forgangi vegna báts í vanda á Kópaskeri Að óbreyttu muni umferðin halda áfram að þyngjast Hitaveitur gætu orðið veruleiki á Grænlandi „Ég veit ekkert hvenær þeir komast aftur heim“ Bó kvaddur í hinsta sinn Sjá meira