"Ég hefði sætt mig við að tapa lýðræðislega en ekki svona“ Stefán Ó. Jónsson skrifar 14. febrúar 2014 16:39 Pétur Ólafsson, bæjarfulltrúi í Kópavogi. „
Ef maður eða kona með meiri reynslu af bæjarpólitíkinni og öðrum störfum hefði lent í fyrsta sætinu þá hefði ég mögulega sætt mig við þriðja sætið,“ segir Pétur Ólafsson í samtali við Vísi. Pétur sóttist eftir að leiða lista Samfylkingarinnar í bæjarstjórnarkosningunum sem framundan eru í Kópavogi. Hann hlaut ekki náð fyrir augum uppstillingarnefndar sem birti niðurstöður vinnu sinnar í gærkvöldi. Meðal þeirra sem lýst hafa óánægju sinni eru Margrét Júlía Rafnsdóttir og Pétur en þau sóttust bæði eftir fyrsta sæti listans. Uppstillingarnefndin bauð Margréti að skipa níunda sæti listans og Pétri það þriðja sem þau höfnuðu bæði. Pétur segist vera vonsvikinn með vinnu nefndarinnar en tekur þó fram að hin meinta vargöld sem ríki innan flokksins sé fyrst og fremst meðal þeirra sem ekki hlutu náð fyrir augum uppstillingarnefndarinnar. Tillögur nefndarinnar voru samþykktar með miklum meirihluta, með rúmlega 50 atkvæðum gegn 22. Pétur er þeirrar skoðunar að uppstillingarfyrirkomulagið sé meingallað og hvað þurfi mikið til að fella tillögur nefndanna sem iðulega eru skipaðar af stjórnum flokkana. „Uppstilling er agaleg leið til að velja fólk á lista, þar sem flokksfélagar stilla upp hvor öðrum, enda kaus ég með prófkjöri á fundi í nóvember,“ segir Pétur. Hann bætir við að með uppstillingu séu meiri líkur á særindum meðal flokksmanna. „Ég hefði sætt mig við að tapa lýðræðislega en ekki svona.“ Aðspurður hvers vegna hann hafi ekki þegið boð nefndarinnar um að skipa þriðja sæti listans segir Pétur hafa tekið það til athugunar en að lokum hafnað því. Hann hafi einfaldlega ekki getað sætt sig við útnefningar nefndarinnar í sætin fyrir ofan hann. Pétri þótti miður að hafa ekki fengið að setjast niður með uppstillingarnefndinni til að ræða framtíðarásýnd flokksins eftir að niðurstöðurnar lágu fyrir. Hann er þeirrar skoðunar að flokkurinn þurfi að stilla upp öðrum prófíl fyrir kosningarnar í vor.
Mest lesið Bein útsending: Marco Rubio heimsækir Ísland Innlent Rubio: Ísland í miðjunni Innlent Umdeildur metsöluhöfundur látinn Erlent Skora á borgina að bæta ekki við beygjuvasa Innlent Afgerandi niðurstaða um að slíta kjarasamningum Innlent Bjarni segir ekkert hæft í að verið sé að úthýsa Aþenu Innlent Portúgalsfarinn á bak við lás og slá Innlent Þurfa að hætta við mótorakaup fáist ekki fé frá ríkinu Innlent Ætlar að borga fyrir umdeildar auglýsingar úr eigin sjóðum Erlent Aðskilnaðarsinnar unnu í Quebec Erlent Fleiri fréttir Segir gjald fyrir túlkun eftir þrjú ár sanngjarna kröfu „Viljum ekki að það sé verið að leika sér að fullveldi Íslands“ Ný skýrsla Umhverfis- og orkustofnunar: Hverfandi líkur á að olía finnist á Drekasvæðinu Rubio farinn af landi brott Verði að gera fyrirvara við rannsókn um karlmennsku Leit að eftirmanni Harðar hefði hafist í haust eða vetur Bjarni segir ekkert hæft í að verið sé að úthýsa Aþenu Samtalið efnismeira en áður þó talsverð gjá sé á milli Einn í framboði til varaformanns enn sem komið er Ögurstund í kjaramálum og Marco Rubio í heimsókn Skora á borgina að bæta ekki við beygjuvasa Rubio: Ísland í miðjunni Þurfa að hætta við mótorakaup fáist ekki fé frá ríkinu Bein útsending: Marco Rubio heimsækir Ísland Tvær líkamsárásir á borði lögreglu Brotist inn í fjóra bíla í þremur hverfum Afgerandi niðurstaða um að slíta kjarasamningum Auglýsingatekjur Rúv undir fyrirhuguðu þaki þrjú ár í röð Fengu heimild til þess að segja upp kjarasamningum Öflugur jarðskjálfti í Bárðarbungu Meiri líkur en minni á að kjarasamningum verði sagt upp Rubio lentur á Íslandi Hafna ásökunum um svik og benda á stjórnvöld Portúgalsfarinn á bak við lás og slá Opnuðu Arnarnesveg að hluta Tvöföld árekstrarhætta þegar flugumferðarstjóri missti yfirsýn Meirihlutinn sprakk aftur vegna vallarmála Segir Aþenu í andarslitrunum Rubio spenntur að hitta Þorgerði Skakkur á stolnum strætó Sjá meira