Mjög umfangsmikil leit Stefán Árni Pálsson skrifar 2. febrúar 2014 16:29
Landhelgisgæslunni barst tilkynning um leka í bát sem var á siglingu á Faxaflóa á þriðja tímanum í dag. Skipverjar tilkynntu um lekann á neyðarrás og að þeir væru allir komnir í flotgalla. Samkvæmt upplýsingum frá Landhelgisgæslunni var allt tiltækt lið kallað út og er leitin gríðarlega umfangsmikil. Ekki liggur fyrir hversu margir voru um borð í bátnum og hvort báturinn sé sokkinn. Þyrla Landhelgisgæslunnar leitar nú stöðugt á Faxaflóanum sem og sex björgunarskip. Fjöldi minni báta tekur einnig þátt í leitinni en þetta staðfesti Ólöf Snæhólm Baldursdóttir, upplýsinga- og kynningarfulltrúi Slysavarnafélagsins Landsbjörg. „Það hefur enginn bátur fundist en mjög umfangsmikil leit stendur nú yfir,“ segir Ólöf í samtali við Vísi. „Ekki er vitað hvaða bátur þetta er en allir bátar sem vitað er um á sjónum hafa tilkynnt sig inn. Nokkuð erfiðar aðstæður eru á svæðinu og veðrið slæmt.“Uppfært: Nú eru tvær björgunarþyrlur Landhelgisgæslunnar, TF-GNÁ og TF-LÍF, við leit að báti á Faxaflóa. Auk þess eru tvær finnskar björgunarþyrlur, sem staddar voru hér á landi vegna loftrýmisgæslu, nýttar við leitina en þær fljúga nú yfir norðanverðan flóann. Björgunarskip Slysavarnafélagsins Landsbjargar frá Grindavík, Sandgerði, Hafnarfirði, Reykjavík og Rifi eru einnig við leit auk nokkurra minni björgunarbáta. Björgunarsveitir og lögregla á svæðinu eru með eftirgrennslan frá landi. Upphaflega neyðarkallið kom frá báti við Akranes og í kerfi LHG og þar kom fram að leki væri komin að bátnum og að menn væru að fara í björgunargalla. Engar frekari upplýsingar hafa borist síðan og ekki vantar skip inn í tilkynningaþjónustuna hjá Vaktstöð siglinga. Leitarsvæðið er víðfemt, en segja má að það nái frá Reykjanestá að austasta hluta Snæfellsness, en áhersla er lögð á að leita innarlega í Faxaflóa þar sem báturinn sem heyrði neyðarkallið var staddur rétt utan við Akranes. Veðurspá á leitarsvæðinu gerir ráð fyrir norðaustan 10-20 m/sek, skýjuðu með köflum og hita í kringum frostmark. Hér að neðan má sjá hvar björgunarskipin eru að leita á svæðinu.
Mest lesið Bein útsending: Marco Rubio heimsækir Ísland Innlent Rubio: Ísland í miðjunni Innlent Umdeildur metsöluhöfundur látinn Erlent Skora á borgina að bæta ekki við beygjuvasa Innlent Bjarni segir ekkert hæft í að verið sé að úthýsa Aþenu Innlent Afgerandi niðurstaða um að slíta kjarasamningum Innlent Portúgalsfarinn á bak við lás og slá Innlent Þurfa að hætta við mótorakaup fáist ekki fé frá ríkinu Innlent Ætlar að borga fyrir umdeildar auglýsingar úr eigin sjóðum Erlent Leit að eftirmanni Harðar hefði hafist í haust eða vetur Innlent Fleiri fréttir Segir gjald fyrir túlkun eftir þrjú ár sanngjarna kröfu „Viljum ekki að það sé verið að leika sér að fullveldi Íslands“ Ný skýrsla Umhverfis- og orkustofnunar: Hverfandi líkur á að olía finnist á Drekasvæðinu Rubio farinn af landi brott Verði að gera fyrirvara við rannsókn um karlmennsku Leit að eftirmanni Harðar hefði hafist í haust eða vetur Bjarni segir ekkert hæft í að verið sé að úthýsa Aþenu Samtalið efnismeira en áður þó talsverð gjá sé á milli Einn í framboði til varaformanns enn sem komið er Ögurstund í kjaramálum og Marco Rubio í heimsókn Skora á borgina að bæta ekki við beygjuvasa Rubio: Ísland í miðjunni Þurfa að hætta við mótorakaup fáist ekki fé frá ríkinu Bein útsending: Marco Rubio heimsækir Ísland Tvær líkamsárásir á borði lögreglu Brotist inn í fjóra bíla í þremur hverfum Afgerandi niðurstaða um að slíta kjarasamningum Auglýsingatekjur Rúv undir fyrirhuguðu þaki þrjú ár í röð Fengu heimild til þess að segja upp kjarasamningum Öflugur jarðskjálfti í Bárðarbungu Meiri líkur en minni á að kjarasamningum verði sagt upp Rubio lentur á Íslandi Hafna ásökunum um svik og benda á stjórnvöld Portúgalsfarinn á bak við lás og slá Opnuðu Arnarnesveg að hluta Tvöföld árekstrarhætta þegar flugumferðarstjóri missti yfirsýn Meirihlutinn sprakk aftur vegna vallarmála Segir Aþenu í andarslitrunum Rubio spenntur að hitta Þorgerði Skakkur á stolnum strætó Sjá meira