Staðan verður endurmetin í fyrramálið Stefán Árni Pálsson skrifar 2. febrúar 2014 21:53 Ákveðið hefur verið að fresta frekari leit að sinni og verður staðan endurmetin í fyrramálið.
Víðtæk leit sem staðið hefur yfir frá því í dag á Faxaflóa hefur ekki borið árangur. Ákveðið hefur verið að fresta frekari leit að sinni og verður staðan endurmetin í fyrramálið. Varðstjórar í stjórnstöð Landhelgisgæslunnar heyrðu kl. 14:54 aðstoðarbeiðni á rás 16 sem er neyðar og uppkallsrás skipa og báta. „Okkur vantar aðstoð – við erum úti við Faxaflóa – Yfir - Báturinn er farinn að leka mikið og við erum að fara í flotgallana“. Skilaboðin voru 20 sekúndur að lengd og ítrekaðar tilraunir varðstjóra Landhelgisgæslunnar við að ná sambandi við bátinn að nýju báru ekki árangur. Samstundis var hafin víðtæk leit en skilaboðin heyrðust einnig í harðbotna björgunarbát Slysavarnarfélagsins Landsbjargar á Akranesi. Samstundis voru þyrlur Landhelgisgæslunnar kallaðar út auk kafara og björgunarskipa Slysavarnarfélagsins Landsbjargar. Finnskar björgunarþyrlur sem taka þátt í æfingunni Iceland Air Meet 2014 voru einnig við leit og Samhæfingarstöð almannavarna var virkjuð. Allt að tvö hundruð manns tóku þátt. Reiknað var út leitarsvæði miðað við senda á Bláfjöllum og Fróðárheiði. Var með þeim hætti hægt að minnka leitarsvæðið sem náði allt frá Malarrifi að Garðskaga. Landhelgisgæslan og Slysavarnarfélagið Landsbjörg leituðu ítarlega á austanverðum Faxaflóa meðan finnskar björgunarþyrlur leituðu á norðan og vestanverðum Faxaflóa en einnig var Björg, björgunarskip Slysavarnarfélagsins Landsbjargar á Rifi þar við leit. Engin tilkynning hefur borist frá sjálfvirku tilkynningaskyldunni eða neyðarsendum og ekki hafa sést neyðarblys á lofti. Ekki hefur verið samband vegna báta sem er saknað.
Mest lesið Þúsundir hermanna kallaðir heim frá Þýskalandi Erlent „Slátrarinn frá Bosníu“ við dauðans dyr Erlent Fjöldi viðbragðsbíla kom á vettvang falsboðs Innlent „Dapurlegt pólitískt útspil“ Innlent Höfðinginn átti sig ekki á lokuninni Innlent Meirihlutinn fallinn og VG á þingi Innlent Lífið umturnaðist í kjölfar slyssins Innlent Þetta sé bæjarstjórn Kópavogs til skammar Innlent Farfuglar koma marktækt fyrr til landsins en áður Innlent Gengur í suðvestan stinningskalda með stöku skúrum eða éljum Veður Fleiri fréttir Beittir lögreglutökum eftir ógnandi tilburði í miðbæ Fjöldi viðbragðsbíla kom á vettvang falsboðs Meirihlutinn fallinn og VG á þingi Farfuglar koma marktækt fyrr til landsins en áður „Dapurlegt pólitískt útspil“ Höfðinginn átti sig ekki á lokuninni Myndaveisla: Verkalýðsdagurinn haldinn hátíðlegur Sinueldur í Grafarvogi Þetta sé bæjarstjórn Kópavogs til skammar Framboðum Miðflokksins fjölgar um átta milli kosninga Lífið umturnaðist í kjölfar slyssins Bein útsending: Verkalýðsdagurinn haldinn hátíðlegur Sendi ekki reikning og fær því ekki greitt Langhæsti styrkurinn fer til Eyja Vasaþjófnaður aukist að undanförnu „Bjóða fram“ Biðlistann í Reykjavík Ofurölvi reyndi að opna bíla í akstri „Við erum með lengri óskalista heldur en þetta“ Segist ekkert hafa fengið greitt: „Pólitískur hráskinnaleikur“ „Þetta er bara eins og að missa vini sína“ Andar köldu milli Viðreisnar- og Miðflokksmanna Föst í umferð í tæpa fjóra sólarhringa á ári og kostnaðurinn yfir hundrað milljarðar Banaslys í Skorradalsvatni Glæný könnun gæti varpað ljósi á meirihlutamyndun Hlaðvarpsstjórnendur fá nýjar leiðbeiningar Urðu eftir í Flatey á meðan Baldur sigldi suður Halla fagnaði áttræðum Karli Gústafi Sömdu um stækkun á Fylkisseli Kannast ekki við meint rán í Lágafellskirkju Ákærður fyrir að eitra fyrir samstarfsfélaga með kannabis Sjá meira