Íslendingar þamba hvalabjórinn Jakob Bjarnar skrifar 3. febrúar 2014 11:53 Hinir umdeildu bruggarar, Dagbjartur og Svanhildur Valdimarsdóttir, eigendur Steðja, segja einkum erlenda hvalverndarsinna ósátta við bjórinn.
Þorrabjórinn Hvalur sem Brugghús Steðja framleiðir seldist upp hjá framleiðanda á innan við viku frá því að heimilt var að selja bjórinn. Íslendingar hafa tekið ölinu opnum örmum. Hinn umdeildi bruggari í Borganesi heitir Dagbjartur Arelíusson. „Við brugguðum í heildina fimm þúsund lítra og erum búnir að tappa á og selja þrjúþúsund og fimmhundruð lítra, þannig að það er uppselt frá okkur í dag og ÁTVR líka. Við förum í lítillega átöppun í þessari viku og komum restinni inn vonandi í ÁTVR seinnipartinn í þessari viku. En, það er búið að panta mikið hjá okkur þannig að ég veit ekki alveg hvernig þetta verður,“ segir Dagbjartur. Hann annar ekki eftirspurn og segir viðbrögðin hafa farið fram úr hans björtustu vonum. „Jájájá, við lögðum upp með að vera kannski með 3,500 lítra í heildina. En, lögðum í eina aukalögun eftir áramót. Við hefðum getað lagt í þó nokkuð meira ef við hefðum bara vitað að þessar yrðu viðtökurnar.“ Mjög hefur færst í aukana að landsmenn teygi mjöðinn yfir Þorra og gera bruggarar mjög út á þetta. Hvalabjórinn hefur hins vegar reynst umdeildur. Eins og fram hefur komið bannaði Heilbrigðiseftirlit Vesturlands sölu og dreifingu á bjórnum þar sem talið var að innihald bjórsins stæðist ekki reglur samkvæmt matvælalögum. Sigurður Ingi Jóhannsson, ráðherra umhverfis-og auðlindamála heimilaði aftur á móti sölu á bjórnum á fyrsta degi Þorra. Viðbrögðin hafa verið upp og ofan og hafa ýmsir lýst yfir því að þeim hugnist lítt bjór unninn úr hvalaafurðum. Dagbjartur segir spurður að hin neikvæðu viðbrögð hafi einkum komið erlendis frá. „Það eru þá fyrst og fremst hvalverndarsinnar sem hafa verið mjög ósáttir við okkur. En, í öllum þeim viðtölum sem við höfum verið í, höfum við reynt að kynna Þorrann fyrir útlendingum – þetta er íslenskur kúltúr sem við erum að fylgja með þessum bjór. Það hefur verið gríðarleg auglýsing fyrir okkur og landið í heildina líka.“
Mest lesið Stríðsyfirlýsing sem gæti leitt til nýrra kosninga Erlent Samtökin séu ekki í baráttu gegn einkabílnum Innlent Ráðgjöf Heiðu Kristínar kostaði fjórtán milljónir Innlent Rúmlega eitt og hálft ár fyrir ítrekaðan akstur undir áhrifum Innlent Möguleg tengsl við heilabilun Innlent Sjálfstæðisflokkurinn tapar fylgi Innlent Fresta haustfundi vegna alvarlegs slyss Innlent Lögmenn fagna niðurstöðu EFTA-dómstólsins Innlent „Ég hélt að svefnlyfin væru að hjálpa henni“ Innlent Úrskurðaður í fjögurra vikna gæsluvarðhald Innlent Fleiri fréttir Rúmlega eitt og hálft ár fyrir ítrekaðan akstur undir áhrifum Úrskurðaður í fjögurra vikna gæsluvarðhald Lögmenn fagna niðurstöðu EFTA-dómstólsins Samtökin séu ekki í baráttu gegn einkabílnum Sjálfstæðisflokkurinn tapar fylgi Ráðgjöf Heiðu Kristínar kostaði fjórtán milljónir Umferðarslys við Nýbýlaveg í Kópavogi Gæsluvarðhald sonar þingmannsins aftur framlengt Fresta haustfundi vegna alvarlegs slyss Hló að svari sambýliskonunnar Tilboð hrikalega hátt yfir kostnaðaráætlun Kona með alvarlega áverka eftir líkamsárás Brast í grát þegar hún lýsti aðkomu að látnum bróður Möguleg tengsl við heilabilun Skora á borgina að afturkalla uppsagnir á samningum við listamenn Brynhildur nýr formaður og Gísli Marteinn í stjórn „Enn ein vondu tíðindin af þessu máli“ Kókaínið hafi verið lykilþáttur í vinskapnum Verðbólga, uppsagnir og mikil notkun svefnlyfja Forstjórar leita lausna Fulltrúi prentara vill verða forseti ASÍ Sýklalyfjanotkun í dýrum jókst um rúm tuttugu prósent „Ég held ég keyri þetta ekkert aftur í bráð“ Aðalmeðferð hafin vegna meints manndráps á Kársnesi „Ég hélt að svefnlyfin væru að hjálpa henni“ „Dýr geta augljóslega ekki sjálf leitað réttar síns“ Segir upp eftir tvær vikur í starfi Lægð upp að landinu og önnur dýpri á morgun Tólf með réttarstöðu sakbornings vegna andláts á Stuðlum Einn stöðvaður sem var að „drifta“ á hringtorgi Sjá meira