Innlent

Vilja fylgja kröfu um launaleiðréttingu eftir með aðgerðum

Hanna Rún Sverrisdóttir skrifar
VÍSIR/VILHELM
Kennarar í Kennarafélagi Framhaldsskólans á Húsavík lýsa yfir vonbrigðum sínum með gang samningaviðræðna Félags Framhaldsskólakennara (FF) og ríkisins. Þeir héldu fund í dag og niðurstaða fundarins var að skora á samninganefnd FF að hvika hvergi frá kröfunni um nauðsynlega launaleiðréttingu strax. Kennararnir lýsa yfir stuðningi við að fylgja kröfunni eftir með aðgerðum. Þetta kemur fram í tilkynningu frá félaginu.

Reynsla framhaldsskólakennara sé að samningar um launaleiðréttingar til jafns við viðmiðunarhópa hafi aldrei skilað sér. Því krefjist félagið þess að launaleiðréttingin komi strax við undirritun samninga. Enn fremur að tryggt verði í samningum að laun kennara verði sambærileg við viðmiðunarhópa til frambúðar.

Stofnsamningar eins og þeir eru núna telur félagið að þjóni ekki hagsmunum kennara og vilja að þeim fjármunum verði varið til launagreiðslna til kennara samkvæmt miðlægum kjarasamningum.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×