Enn beðið eftir Hverfisgötu Jón Júlíus Karlsson skrifar 4. febrúar 2014 20:00
Íbúar og verslunareigendur við Hverfisgötu bíða í ofvæni eftir að umfagnsmiklum endurbótum við götuna ljúki. Framkvæmdir hafa dregist um nokkra mánuði með tilheyrandi fjártjóni fyrir verslunareigendur. Verslun lítil sem engin á framkvæmdatímanum segir verslunareigandi. Upphaflega átti framkvæmdum við endurbætur á Hverfisgötu að ljúka í nóvember. Í dag er fjórði febrúar, gatan lokuð og framkvæmdir enn í fullum gangi. Gert er ráð fyrir að framkvæmdum ljúki eftir um tvær vikur, þremur mánuðum seinna en gert var ráð fyrir í upphafi. „Það hafa verið mjög margir dagar þar sem ekki hefur verið hægt að hleypa neinum inn,“ segir Anna Þóra Björnsdóttir, verslunareigandi. Anna Þóra rekur gleraugnaverslunina Sjáðu á horni Hverfisgötu og Vatnsstígs. Hún hefur orðið fyrir verulegu rekstartjóni og segir aðra kaupmenn í sömu stöðu. „Þetta er rosalega erfitt. Það hefur ekki verið hægt að reka verslun í þessu umhverfi,“ bætir Anna Þóra við.Tímafrekt að skipta um lagnir Ámundi Brynjólfsson, skrifstofustjóri á umhverfis- og viðhaldssviði Reykjavíkurborgar segir að framkvæmdir hafi tafist verulega vegna skiptingar lagna í götunni. Það hafi reynst mun tímafrekari framkvæmd en gert var ráð fyrir í upphafi. „Við hjá Reykjavíkurborg gerum okkur fulla grein fyrir því að það skapast af þessu veruleg óþægindi á meðan framkvæmdum stendur en erum fullviss um það að þegar þeim er lokið þá verði mikil ánægja á Hverfisgötu,“ sagði Ámundi.Ekkert vatn á rakarastofunni Einn þeirra sem hafa orðið fyrir barðinu á framkvæmdunum er rakari á Klapparstíg. Skrúfað hefur verið fyrir vatn með skömmum fyrirvara sem skapar vandræði. „Það kemur sérstaklega illa fyrir mig þegar vatn er tekið af. Það er oft með stuttum fyrirvara og þá verð ég að hringja í þá sem eiga pantaða tíma í lit og strípur,“ segir Sigurpáll Grímsson, hárskeri á Rakarastofunni á Klapparstíg. „Það hefur oft komið fyrir á undanförnum dögum.“ Framkvæmdum við Hverfisgötuna er raunar hvergi nærri lokið. Búið er að bjóða út framkvæmdir frá Vitastíg að Snorrabraut sem hefjast í vor. Kaupmenn horfa til bjartari tíma að framkvæmdum loknum. „Þetta verður flottasta gatan í bænum, það er ekki spurning,“ segir Anna Þóra. „Það eiga allir eftir að koma hingað.“
Mest lesið Ekki 270 ferkílómetrar heldur 26 Erlent Fái að ráðast í húsleit og spyrja svo Innlent Ætluðu að vinna skemmdarverk í Danmörku Erlent Vonast til að geta haldið árásum í lágmarki fram yfir kosningar Erlent Trump um Harry og Meghan: „Ég var enginn aðdáandi“ Erlent Stúlkan frá Írlandi en búsett hér á landi Innlent Segir skattahækkun á baðlón bíta fastast á landsbyggðinni Innlent Rúmur helmingur flugmannanna hafi sofnað við störf Innlent Stytta gjaldskyldu og opna bílahús allan sólarhringinn Innlent Líklega á yfir tvö hundruð kílómetra hraða Innlent Fleiri fréttir Eldur í þaki Rimaskóla í nótt Þjófnaður í þremur verslunum Fái að ráðast í húsleit og spyrja svo Bændum brugðið og skoði frekari öryggisbúnað Segir skattahækkun á baðlón bíta fastast á landsbyggðinni Rúmur helmingur flugmannanna hafi sofnað við störf Svona voru aðstæður við svínabú Stjörnugríss Stytta gjaldskyldu og opna bílahús allan sólarhringinn Sonur þingmannsins í áframhaldandi gæsluvarðhald Rúvarar verði einir eftir í Efstaleitinu Stefnan tengist ekki þjóðaratkvæðagreiðslu Talsvert tjón og týndar tennur Eigendur Santé neita sök Samfélagið syrgir ungmennin sem létust Sex svín drápust eftir annað innbrot „Þetta er smjörklípa“ Minningarstundir og ESA undirbýr dómsmál Stúlkan frá Írlandi en búsett hér á landi Skoða að stefna Íslandi vegna bókunar 35 Aðild að ESB hafi aldrei verið markmið í sjálfu sér Einn grunaður um íkveikju á Center Hotel Skjaldbreið Bruninn mikið áfall og tjónið líklega verulegt í versluninni Um þriðjungur þjóðarinnar horfði á síðasta fréttatímann Flúði hótelherbergið vegna brunans og gleymdi tönnunum Vinnuframlag Skúla Tómasar afþakkað Eldri borgarar fái sanngjarnari tekjur þrátt fyrir aukin gjöld Gestir fluttir á önnur hótel vegna skemmda eftir brunann Enginn handtekinn vegna hótana í garð Þorgerðar Lægð nálgast og hviður geta orðið bílum skeinuhættar Líklega á yfir tvö hundruð kílómetra hraða Sjá meira