Hugmyndir menntamálaráðherra slæmt innlegg í samningaviðræður Heimir Már Pétursson skrifar 5. febrúar 2014 13:01 Formaður Félags framhaldsskólakennara segir menntamálaráðherra á villigötum. Hugmyndir hans um hagræðingu og breytingar í framhaldsskólunum séu slæmt innlegg í samningaviðræðurnar. vísir/stefán
Formaður Félags framhaldsskólakennara segir hugmyndir menntamálaráðherra um breytingar á grunnskólakerfinu ekki til þess fallnar að leysa úr kjaradeilu kennara við ríkið. Ekki dugi að hagræða þegar búið sé að kreista 12 milljarða út úr framhaldsskólakerfinu á undanförnum árum.Illugi Gunnarsson menntamálaráðherra sagði í fréttum okkar í gær að hann væri reiðubúinn að ræða um kerfisbreytingar á framhaldsskólunum, m.a. með því að stytta framhaldsnámið í þrjú á sem skapaði hagræðingu sem nýta mætti til að bæta kjör kennara. Aðalheiður Steingrímsdóttir formaður Félags framhaldsskólakennara segir þetta ekki liðka til í samningaviðræðum við ríkið „Okkar skoðun er að menntamálaráðherra sé algerlega á villigötum með þessar hugmyndir sínar. Ég vil benda á að frá hruni er búið að kreista út úr framhaldsskólakerfinu 12 milljarða. Kjörin hafa drabbast niður og rekstur skólanna. Margir framhaldsskólar eru komnir hættulega nálægt gjaldþroti. Þannig að þetta eru algerlega hugmyndir sem við botnum ekkert í,“ segir Aðalheiður Samninganefndir Félags framhaldsskólakennara og ríkisins komu saman til fundar hjá ríkissáttasemjara klukkan hálf ellefu í morgun. En kennarar telja að þeir hafi dregist verulega aftur úr sambærilegum stéttum hjá hinu opinbera og segir Aðalheiður hugmyndir menntamálaráðherra um enn frekari hagræðingu innan framhaldsskólanna ekki auka líkur á að samningar takist. „Það þarf miklu frekar að setja fjármuni inn í kerfið. Og þessi barátta sem við eigum núna í, þessar samningaviðræður, er barátta fyrir almannahagsmunum,“ segir formaðurinn. Baráttan snúist um að bæta rekstur framhaldsskólanna svo þeir geti sinnt hlutverki sínu og veitt nemendum almennilega þjónustu og nám og kjör kennara verði bætt. „Þannig að ég vil segja að þessar hugmyndir eru mjög slæmt innlegg inn í þessar erfiðu samningaviðræður sem eru núna í gangi,“ sagði Aðalheiður Steingrímsdóttir rétt fyrir samningafund með samninganefnd ríkisins í morgun. Ef ekkert breytist í þeim viðræðum á allra næstu dögum má búast við að framhaldsskólakennarar fari að undirbúa aðgerðir.
Mest lesið Lést í slysi á Hálsasveitarvegi Innlent „Þetta er kannski dýrasta tækið sem barnið á“ Innlent Handtökur í vændisrannsókn lögreglu Innlent Áhöfnin hlúði að Hólmsteini á siglingunni til Hvalfjarðar Innlent Trúði ekki að siglt yrði úr höfninni: „Mér leið svo illa, ég fór að hágráta“ Innlent Hættu skyndilega við viðræðurnar í Sviss Erlent „Virðist vera einhverskonar gamaldags sjómennskuhefndaraðgerð“ Innlent Lögreglustjóri braut meðalhófsreglu Innlent „Það verða engir konungar“ Erlent Einn vildi sýkna þegar dómur fyrir sérlega sársaukafulla nauðgun var staðfestur Innlent Fleiri fréttir „Ég hef verið kölluð þingmaður dauðans“ Segir Reykjavík að verða að Mekka vændisiðnaðar Trúði ekki að siglt yrði úr höfninni: „Mér leið svo illa, ég fór að hágráta“ Höfuðvígi vændismansals, mótmælandi sem brotnaði niður og Þingvellir Björgunarsveitir sóttu göngumann við Háafoss Þingið komið í sumarfrí Samþykkja úrræði fyrir fólk sem sæta þarf öryggisráðstöfunum Óljós um tilganginn en þekktu hvert egg Allt eftirlit matvæla undir einni stofnun Boltinn sé hjá fjarskiptafélögunum Fresta opnun Sundhallar Reykjavíkur Áhöfnin hlúði að Hólmsteini á siglingunni til Hvalfjarðar Vetur í íslenskri kvikmyndagerð Handtökur í vændisrannsókn lögreglu Hjartaljósin ekki sloppin „Virðist vera einhverskonar gamaldags sjómennskuhefndaraðgerð“ Stór mál á dagskrá síðasta þingfundar fyrir þingfrestun Lést í slysi á Hálsasveitarvegi Hvalavinurinn í tunnunni og Kaleo undirbýr Þingvallakonsert Inga ræddi við fulltrúa Tiktok um að hækka aldursmörk Halda í opinbera heimsókn til Færeyja Dómur burðardýrs mildaður Starmer ætlar ekki að láta í minni pokann fyrir Burnham strax Einn vildi sýkna þegar dómur fyrir sérlega sársaukafulla nauðgun var staðfestur Ólafur Þ. Harðarson sakaður um fánaslugs „Þetta er kannski dýrasta tækið sem barnið á“ Tveir á slysadeild eftir eld í Jörfabakka Stefna á að ljúka þingi í dag Loka Reykjanesbraut við Kaplakrika í kvöld Lögreglustjóri braut meðalhófsreglu Sjá meira