Einstakar fálkamyndir E.Ól. Jakob Bjarnar skrifar 7. febrúar 2014 00:01 Einar Ólason ljósmyndari var að elda dögurð fyrir kærustuna þegar hún rak augu í fálka á miðri götu – sem var að gæða sér á svartbaki.
Einar Ólason ljósmyndari náði einstökum myndum af fálka sem var að gæða sér á svartfugli. „Þetta var mjög sérstakt. Þetta var í byrjun janúar, í Hólastekk þar sem ég bý, tilheyrir Breiðholtinu. Ég er að elda „bröns“ (dögurð) handa mér og kærustunni á sunnudagsmorgni. Og henni var litið út um gluggann og spyr; hvaða fugl er þetta Einar? Þarna úti á götu, með annan fugl í kjaftinum? Ég rauk til, sá að þetta var fálki og fór út þó það væri dimmt og ekki góð skilyrði fyrir myndatöku. En ég náði þarna skemmtilegum myndum af fuglinum þar sem hann var að gæða sér á svartbak,“ segir Einar. Hann segir svo frá að skömmu síðar komu fjórir hrafnar á vettvang og hröktu fálkann í burtu. Þrír þeirra flugu við svo búið á braut en einn þeirra varð eftir og gerði sér svartbakinn, sem Einar telur víst að fálkinn hafi veitt sér til matar, neyddist til að skilja eftir. Einar, sem er einn af okkar elstu og virtustu (blaða)ljósmyndurum, og merkti myndir sínar ávallt E.Ól., segist ekki hafa verið mikið í að mynda fugla. „En, ég er mikill fuglaáhugamaður.“ Einar segir lífið leika við sig, hann sé bullandi hamingjusamur enda var hann að opna sýningu síðastliðinn laugardag. „Í Art 67, Laugavegi 67. Þetta er önnur einkasýningin. Ég var með sýningu í ráðhúsinu í janúar í fyrra. Þetta eru 18 myndir. Í sama stíl og ég var með í fyrra; lítil smáatriði í náttúrunni sem flestir sjá ekki þegar þeir eru að ferðast um landið.“ En, lesendur Vísis geta virt fyrir sér myndirnar sem Einar náði af fálkanum, bara beint fyrir utan heimili sitt.
Mest lesið Ekki 270 ferkílómetrar heldur 26 Erlent Fái að ráðast í húsleit og spyrja svo Innlent Ætluðu að vinna skemmdarverk í Danmörku Erlent Vonast til að geta haldið árásum í lágmarki fram yfir kosningar Erlent Trump um Harry og Meghan: „Ég var enginn aðdáandi“ Erlent Stúlkan frá Írlandi en búsett hér á landi Innlent Segir skattahækkun á baðlón bíta fastast á landsbyggðinni Innlent Rúmur helmingur flugmannanna hafi sofnað við störf Innlent Líklega á yfir tvö hundruð kílómetra hraða Innlent Stytta gjaldskyldu og opna bílahús allan sólarhringinn Innlent Fleiri fréttir Fái að ráðast í húsleit og spyrja svo Bændum brugðið og skoði frekari öryggisbúnað Segir skattahækkun á baðlón bíta fastast á landsbyggðinni Rúmur helmingur flugmannanna hafi sofnað við störf Svona voru aðstæður við svínabú Stjörnugríss Stytta gjaldskyldu og opna bílahús allan sólarhringinn Sonur þingmannsins í áframhaldandi gæsluvarðhald Rúvarar verði einir eftir í Efstaleitinu Stefnan tengist ekki þjóðaratkvæðagreiðslu Talsvert tjón og týndar tennur Eigendur Santé neita sök Samfélagið syrgir ungmennin sem létust Sex svín drápust eftir annað innbrot „Þetta er smjörklípa“ Minningarstundir og ESA undirbýr dómsmál Stúlkan frá Írlandi en búsett hér á landi Skoða að stefna Íslandi vegna bókunar 35 Aðild að ESB hafi aldrei verið markmið í sjálfu sér Einn grunaður um íkveikju á Center Hotel Skjaldbreið Bruninn mikið áfall og tjónið líklega verulegt í versluninni Um þriðjungur þjóðarinnar horfði á síðasta fréttatímann Flúði hótelherbergið vegna brunans og gleymdi tönnunum Vinnuframlag Skúla Tómasar afþakkað Eldri borgarar fái sanngjarnari tekjur þrátt fyrir aukin gjöld Gestir fluttir á önnur hótel vegna skemmda eftir brunann Enginn handtekinn vegna hótana í garð Þorgerðar Lægð nálgast og hviður geta orðið bílum skeinuhættar Líklega á yfir tvö hundruð kílómetra hraða „Hér var enginn glæpur og ekki heldur gáleysi“ Tveir á slysadeild í kjölfar bruna á hóteli í miðbænum Sjá meira