Stjórnunarkostnaður tekur stóran hluta tekna Svavar Hávarðsson skrifar 7. febrúar 2014 07:00 Í Súðavíkurhreppi renna 39% útsvarstekna í rekstur skrifstofu. 71% tekna kemur aftur úr Jöfnunarsjóði. mynd/súðavík.is mynd/sudavík.is
Stjórnunarkostnaður og skrifstofuhald minni sveitarfélaga nær allt að 40% af heildar útsvarstekjum. Kostnaður 74 sveitarfélaga var 8,2 milljarðar króna, samkvæmt nýjustu skilum ársreikninga. Karl Björnsson, framkvæmdastjóri Sambands íslenskra sveitarfélaga, leggur ekki mat á hvort stjórnunarkostnaður sveitarfélaga á Íslandi sé óeðlilega hár í samhengi við um 220 milljarða tekjur. Hann segir að reynslan sýni hins vegar að sameiningar sveitarfélaga skili verulegum sparnaði í yfirstjórn þeirra. Sá sparnaður sé aftur nýttur til að jafna þjónustuna á milli byggðakjarna og oft skili það ávinningi fyrir íbúa. Karl bendir jafnframt á að öll sveitarfélög á Íslandi hafi á undanförnum árum unnið af kappi við hagræðingu, sem ekki kom til af góðu. Sérstaklega hafi verið litið til yfirstjórnunar sveitarfélaganna í því sambandi. „Þetta á við alls staðar. Af hverju sameinast fyrirtæki? Menn líta til hagkvæmni stærðarinnar þar eins og innan sveitarfélaganna,“ segir Karl og bætir við að þó verði að hafa í huga önnur rök eins og þau tilfinningalegu sem rík eru víða og vinna gegn sameiningahugmyndum. Karl segir litla hreyfingu vera í frekari sameiningum sveitarfélaga, en fyrir árið 2007 gengu menn myndarlega til verka og hafði sveitarfélögum fækkað úr 105 í 79 árin á undan. Þau eru í dag 74, eins og áður sagði. En þarf ekki að þvinga frekari sameiningar fram, og hafa að viðmiði þúsund manns hið minnsta eins og talað hefur verið um. Karl segir það skýra afstöðu Sambands sveitarfélaga að ákvörðun um sameiningar fari fram samkvæmt vilja íbúanna. „Hér kemur ekki til greina lagasetning eða fyrirskipun að ofan. Sú afstaða kemur fram í sameiginlegri stefnumörkun sveitarstjórnarmanna sem samþykkt hefur verið ítrekað á landsþingum þeirra.“ Rætt hefur verið um að nauðsynlegt að sameina minnstu sveitarfélögin, einfaldlega svo þau séu í stakk búin til að axla verkefni sem nú eru á ábyrgð ríkisins. Hefur kjörtalan fyrir Ísland verið nefnd á milli 30 og 40 sveitarfélög en áður var talan 17 mikið í umræðunni. Á þetta hefur t.d. Halldór Halldórsson, formaður Sambands sveitarfélaga, bent. Önnur rök fyrir sameiningum sveitarfélaga er að gera fleiri þeirra sjálfbær. Skrifstofuhald er allt að 40% útsvarstekna hjá þeim fámennustu. Hins vegar hafa þau sömu jafnframt mestan hluta tekna sinna frá Jöfnunarsjóði sveitarfélaga, svo hlutfall af útsvarstekjum segir bara hálfa söguna. Eitt af hverjum fjórum sveitarfélögum á Íslandi hefur yfir 40% af tekjum sínum frá sjóðnum og einstök sveitarfélög fá allt að 70% af tekjum sínum úr sjóðnum.
Mest lesið Ekki 270 ferkílómetrar heldur 26 Erlent Fái að ráðast í húsleit og spyrja svo Innlent Ætluðu að vinna skemmdarverk í Danmörku Erlent Vonast til að geta haldið árásum í lágmarki fram yfir kosningar Erlent Trump um Harry og Meghan: „Ég var enginn aðdáandi“ Erlent Stúlkan frá Írlandi en búsett hér á landi Innlent Segir skattahækkun á baðlón bíta fastast á landsbyggðinni Innlent Rúmur helmingur flugmannanna hafi sofnað við störf Innlent Líklega á yfir tvö hundruð kílómetra hraða Innlent Stytta gjaldskyldu og opna bílahús allan sólarhringinn Innlent Fleiri fréttir Fái að ráðast í húsleit og spyrja svo Bændum brugðið og skoði frekari öryggisbúnað Segir skattahækkun á baðlón bíta fastast á landsbyggðinni Rúmur helmingur flugmannanna hafi sofnað við störf Svona voru aðstæður við svínabú Stjörnugríss Stytta gjaldskyldu og opna bílahús allan sólarhringinn Sonur þingmannsins í áframhaldandi gæsluvarðhald Rúvarar verði einir eftir í Efstaleitinu Stefnan tengist ekki þjóðaratkvæðagreiðslu Talsvert tjón og týndar tennur Eigendur Santé neita sök Samfélagið syrgir ungmennin sem létust Sex svín drápust eftir annað innbrot „Þetta er smjörklípa“ Minningarstundir og ESA undirbýr dómsmál Stúlkan frá Írlandi en búsett hér á landi Skoða að stefna Íslandi vegna bókunar 35 Aðild að ESB hafi aldrei verið markmið í sjálfu sér Einn grunaður um íkveikju á Center Hotel Skjaldbreið Bruninn mikið áfall og tjónið líklega verulegt í versluninni Um þriðjungur þjóðarinnar horfði á síðasta fréttatímann Flúði hótelherbergið vegna brunans og gleymdi tönnunum Vinnuframlag Skúla Tómasar afþakkað Eldri borgarar fái sanngjarnari tekjur þrátt fyrir aukin gjöld Gestir fluttir á önnur hótel vegna skemmda eftir brunann Enginn handtekinn vegna hótana í garð Þorgerðar Lægð nálgast og hviður geta orðið bílum skeinuhættar Líklega á yfir tvö hundruð kílómetra hraða „Hér var enginn glæpur og ekki heldur gáleysi“ Tveir á slysadeild í kjölfar bruna á hóteli í miðbænum Sjá meira