Ekki veiðigjaldinu að kenna Hemir Már Pétursson skrifar 7. febrúar 2014 14:22 Varaformaður Vinstri grænna segir eftirspurn á markaði eftir ferskum fiski valda fækkun frystitogara, ekki veiðigjaldið. Gjaldið aðeins rúmar 7 krónur á kílóið.
Varaformaður Vinstri grænna segir að veiðigjaldið geti ekki verið ástæða þess að útgerðir hætti rekstri frystitogara og færi veiðarnar yfir til ísfisktogara. Þar ráði markaðurinn mestu en meiri eftirspurn sé eftir ferskum fiski en frystum á erlendum mörkuðum og verðið betra. Dregið hefur úr útgerð frystitogara á undanförnum árum og veiðarnar færst yfir á ísfisktogara sem landa aflanum ferskum til vinnslu í landi sem síðan flytur hann út ófrosin. En afli frystitogaranna er unnin um borð og frystur þar til útflutnings.Guðmundur Kristjánsson útgerðarmaður sagði í fréttum Stöðvar tvö á miðvikudag að rekstrargrundvöllur frystitogaranna væri erfiður vegna veiðigjalda en hann hefur ákveðið að hætta starfsemi tveggja slíkra togara, Skálabergs og Brimness og var 40 sjómönnum á síðarnefnda skipinu sagt upp á dögunum. „Þetta er eitt besta skipið sem við eigum og sorglegt að við Íslendingar skulum búa svo um hnútana að við getum ekki gert út almennileg skip á Íslandi. Það sem gerir eiginlega rothöggið er þetta veiðigjald af því það leggst svo ósanngjarnt á rekstrareiningar og sum fyrirtæki og Brimnesið lendir mjög illa í þessum veiðigjöldum,“ sagði Guðmundur á miðvikudag. Hann reiknaði með að kvóti Brimnessins og Skálabergsins yrði færður yfir á ísfisktogara fyrirtækisins, en aðrar tekjur fyrstitogaranna sem aflað væri með veiðum utan lögsögunnar hyrfu.Björn Valur Gíslason varaformaður Vinstri grænna og sjómaður, segir ekki hægt að kenna veiðigjöldunum um þessa þróun. „Nei, ekki að öllu leiti. Veiðigjaldið á botnfiskútgerðir í dag, þetta sérstaka veiðigjald, er 7 krónur og 38 aurar. Sem telst tæplega hátt. Frá því er síðan dregið að fyrstu 100 tonnunin eru að hluta til frí eða á afslætti,“ segir Björn Valur. Breytingarnar á veiðunum hafi verið að eiga sér stað á undanförnum árum og hafist áður en veiðigjöldin komu til. „Fyrst og fremst vegna þess að það borgar sig orðið að vinna fisk í landi og flytja hann ferskan út,“ segir Björn Valur.Þannig að það hefur hreinlega átt sér stað breyting á markaðnum?„Já, já. Þetta er ekkert að gerast bara í dag. Til dæmis norður í Eyjafirði og víðar er þessi breyting löngu gengin í gegn. Þar er unnið mikið af fiski í landi og hann er fluttur út í flökum, bitum og hnökkum og alla vega handeraður fyrir neytendur. Þetta þótti ekki mikil frétt þegar þetta gerðist þar,“ segir Björn Valur Gíslason.
Mest lesið Ekki 270 ferkílómetrar heldur 26 Erlent Fái að ráðast í húsleit og spyrja svo Innlent Ætluðu að vinna skemmdarverk í Danmörku Erlent Vonast til að geta haldið árásum í lágmarki fram yfir kosningar Erlent Trump um Harry og Meghan: „Ég var enginn aðdáandi“ Erlent Stúlkan frá Írlandi en búsett hér á landi Innlent Segir skattahækkun á baðlón bíta fastast á landsbyggðinni Innlent Rúmur helmingur flugmannanna hafi sofnað við störf Innlent Líklega á yfir tvö hundruð kílómetra hraða Innlent Stytta gjaldskyldu og opna bílahús allan sólarhringinn Innlent Fleiri fréttir Fái að ráðast í húsleit og spyrja svo Bændum brugðið og skoði frekari öryggisbúnað Segir skattahækkun á baðlón bíta fastast á landsbyggðinni Rúmur helmingur flugmannanna hafi sofnað við störf Svona voru aðstæður við svínabú Stjörnugríss Stytta gjaldskyldu og opna bílahús allan sólarhringinn Sonur þingmannsins í áframhaldandi gæsluvarðhald Rúvarar verði einir eftir í Efstaleitinu Stefnan tengist ekki þjóðaratkvæðagreiðslu Talsvert tjón og týndar tennur Eigendur Santé neita sök Samfélagið syrgir ungmennin sem létust Sex svín drápust eftir annað innbrot „Þetta er smjörklípa“ Minningarstundir og ESA undirbýr dómsmál Stúlkan frá Írlandi en búsett hér á landi Skoða að stefna Íslandi vegna bókunar 35 Aðild að ESB hafi aldrei verið markmið í sjálfu sér Einn grunaður um íkveikju á Center Hotel Skjaldbreið Bruninn mikið áfall og tjónið líklega verulegt í versluninni Um þriðjungur þjóðarinnar horfði á síðasta fréttatímann Flúði hótelherbergið vegna brunans og gleymdi tönnunum Vinnuframlag Skúla Tómasar afþakkað Eldri borgarar fái sanngjarnari tekjur þrátt fyrir aukin gjöld Gestir fluttir á önnur hótel vegna skemmda eftir brunann Enginn handtekinn vegna hótana í garð Þorgerðar Lægð nálgast og hviður geta orðið bílum skeinuhættar Líklega á yfir tvö hundruð kílómetra hraða „Hér var enginn glæpur og ekki heldur gáleysi“ Tveir á slysadeild í kjölfar bruna á hóteli í miðbænum Sjá meira