"Höfum ekki efni á atvinnubótavinnu" Birta Björnsdóttir skrifar 7. febrúar 2014 20:00
Eins og fram kom í kvöldfréttum Stöðvar 2 í gær hefur fyrirtækið Hagar sent formlega beiðni á atvinnuvega- og nýsköpunarráðuneytið að svokallaðir ofurtollar verði felldir niður við innflutning á nokkrum tegundum af ostum. Samkvæmt upplýsingum frá ráðuneytinu var málið tekið fyrir á fundi þar fyrr í dag. Engin niðurstaða lá fyrir að honum loknum en nefndin mun funda aftur í næstu viku. Beiðni af þessu tagi er þó ekki einsdæmi, Neytendasamtökin sendu álíka fyrirspurn á ráðuneytið árið 2011 en án árangurs. „Þessi barátta heldur áfram þar til meira frelsi ríkir hér á landi með viðskipti á landbúnaðarvörum," segir Jóhannes Gunnarsson, formaður Neytendasamtakanna. Tilgangur hinna títtnefndu ofurtolla er að vernda innlenda landbúnaðarframleiðslu. En þá má spyrja hvers vegna þeir eru lagðir á vörur á borð við frostpinna sem innihalda enga mjólk eða á paramessanost, sojamjólk og parmaskinku, því ekkert af því er framleitt hér á landi. „Það er verið að gæta sérhagsmuna nokkurra einstaklinga á kostnað almennings. Svona mega stjórnmálamenn ekki hugsa," segir Jóhannes. En geta innlend framleiðsla og innflutningur á erlendum landbúnaðarvörum ekki þrifist vel saman? „Ég sé ekki fyrir mér að það muni halla á innlenda framleiðslu þó tollarnir verði aflagðir. En ef innlendir framleiðendur eru ekki samkeppnishæfir verða þeir að hagræða eða bara hætta framleiðslu. Við höfum ekki efni á að halda uppi atvinnubótavinnu," segir Jóhannes. „Ef við viljum selja okkar góðu vörur á erlendum mörkuðum þurfum við að opna okkar markað fyrir erlendum vörum."
Mest lesið Bein útsending: Marco Rubio heimsækir Ísland Innlent Rubio: Ísland í miðjunni Innlent Umdeildur metsöluhöfundur látinn Erlent Skora á borgina að bæta ekki við beygjuvasa Innlent Bjarni segir ekkert hæft í að verið sé að úthýsa Aþenu Innlent Afgerandi niðurstaða um að slíta kjarasamningum Innlent Portúgalsfarinn á bak við lás og slá Innlent Þurfa að hætta við mótorakaup fáist ekki fé frá ríkinu Innlent Ætlar að borga fyrir umdeildar auglýsingar úr eigin sjóðum Erlent Leit að eftirmanni Harðar hefði hafist í haust eða vetur Innlent Fleiri fréttir Segir gjald fyrir túlkun eftir þrjú ár sanngjarna kröfu „Viljum ekki að það sé verið að leika sér að fullveldi Íslands“ Ný skýrsla Umhverfis- og orkustofnunar: Hverfandi líkur á að olía finnist á Drekasvæðinu Rubio farinn af landi brott Verði að gera fyrirvara við rannsókn um karlmennsku Leit að eftirmanni Harðar hefði hafist í haust eða vetur Bjarni segir ekkert hæft í að verið sé að úthýsa Aþenu Samtalið efnismeira en áður þó talsverð gjá sé á milli Einn í framboði til varaformanns enn sem komið er Ögurstund í kjaramálum og Marco Rubio í heimsókn Skora á borgina að bæta ekki við beygjuvasa Rubio: Ísland í miðjunni Þurfa að hætta við mótorakaup fáist ekki fé frá ríkinu Bein útsending: Marco Rubio heimsækir Ísland Tvær líkamsárásir á borði lögreglu Brotist inn í fjóra bíla í þremur hverfum Afgerandi niðurstaða um að slíta kjarasamningum Auglýsingatekjur Rúv undir fyrirhuguðu þaki þrjú ár í röð Fengu heimild til þess að segja upp kjarasamningum Öflugur jarðskjálfti í Bárðarbungu Meiri líkur en minni á að kjarasamningum verði sagt upp Rubio lentur á Íslandi Hafna ásökunum um svik og benda á stjórnvöld Portúgalsfarinn á bak við lás og slá Opnuðu Arnarnesveg að hluta Tvöföld árekstrarhætta þegar flugumferðarstjóri missti yfirsýn Meirihlutinn sprakk aftur vegna vallarmála Segir Aþenu í andarslitrunum Rubio spenntur að hitta Þorgerði Skakkur á stolnum strætó Sjá meira