Innlent

Æskudraumur sem rættist í dag

María Lilja Þrastardóttir skrifar
Keppnin hefur alla tíð notið mikillar hylli og segir annar tveggja vinningshafa dagsins einmitt að æskudraumur hafi ræst í dag við þáttökuna. 

Akstursbrautin lætur ef til vill ekki mikið yfir sér, en þrátt fyrir það þurfa þáttakendur að leggja töluverða vinnu í hönnun á fjölhæfu tæki sem getur tekist á við vatn, rimla, sprengt blöðru og komið tennisbolta í gegnum holu.

Tólf lið tóku þátt og það var ekki að sjá á vinningshöfunum að þeir væru annað en hæstánægðir með árangur græjunnar sem heitir Megatronic.

Í meðfylgjandi myndskeiði, úr kvöldfréttum Stöðvar 2 má sjá tækið að störfum og viðtal við sigurvegarana.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×