Innlent

Megrunartískubólur verða til á samfélagsmiðlum

Þórhildur Þorkelsdóttir skrifar
Megrunarhegðun ungra kvenna hefur breyst mikið síðustu ár. Algengt er orðið að megrunartískubólur verði til á samfélagsmiðlum og bloggsíðum á borð við Twitter, Instagram og Tumblr.

Dæmi um slíkt er svokölluð bikiní-brú, eða ,,bikini bridge", en það felur í sér að buxnastrengur snerti aðeins mjaðmabein en ekki maga.

Annað dæmi er megrunartískubóla þar sem stúlkur keppast við að vera með eins mikið bil á milli læranna og hægt er og kallast það ,,thigh gap". Á Tumblr eru þúsundir síðna tileinkaðar slíku.

Fréttastofa ræddi í dag við nokkra fagaðila sem annast ungmenni með lélega sjálfsmynd, átröskunar- og geðsjúkdóma. Flestir könnuðust við þessar megrunartískubólur og höfðu orðið vör við að ungu fólki þætti slíkt eftirsóknarvert.

Sigurlaug María Jónsdóttir, teymisstjóri átröskunarteymis Landspítalans segir mikilvægt fyrir foreldra að vera vakandi fyrir breytingum á þyngd og líðan barna sinna.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×