Viðskipti innlent

Kerecis stefnir á Bandaríkjamarkað innan 18 mánaða

Jón Júlíus Karlsson skrifar
Ísfirska lækningavörufyrirtækið Kerecis stefnir að því að komast inn á bandarískan markað með vörur sínar á næstu 18 mánuðum. Fyrirtækið undirritaði samkomulag við Landspítalann um samstarf við klínískar rannsóknir á þrálátum sárum. Kerecis hefur sérhæft sig í þróun á plástri úr roði á íslenskum þorski sem hefur gefið góða raun í baráttunni við þrálát sár.

Þorskurinn hefur í gegnum tíðina skapað íslenskum ríkissjóð gríðarlegar tekjur og þær gætu aukist talsvert. Sérfræðingar í sjávarútvegi tala um að seinni hluti þorsksins sé nú orðinn verðmætari en sá hluti sem notaður er til matvælaframleiðslu. Seinni hlutanum var á árum áður fargað en upp hafa sprottið nýsköpunarfyrirtæki í sjávarútvegi sem vinna að framsæknum og spennandi verkefnum sem eru líkleg til að gera þorskinn að enn verðmætari afurð.

Eitt slíkt fyrirtæki er lækningafyrirtækið Kerecis frá Ísafirði sem þróað hefur vöru úr þorskroði. Kerecis fær roð úr þorski sem aflað er á fyrstitogaranum Júlíusi Geirmundssyni ÍS. Aflaverðmæti skipsins var um 1,8 milljarðar króna á síðasta ári. „Úr þessu roði sem kastað er á skipinu getum við selt vörur fyrir um þrjá milljarða og það er mikil aukning á verðmæti,“ segir Guðmundur F. Sigurjónsson, framkvæmdastjóri Kerecis.

Vinsælt í Mið-Austurlöndum

Í dag skrifaði fyrirtækið undir samning við Landspítalann um samstarf við klínískar rannsóknir. Kerecis fékk nýverið einkaleyfi og hóf sölu á stoðefninu MariGen Omega 3 sem hjálpað hefur mörgum í baráttunni við þrálát sár eða ör. Vörur fyrirtækisins eru komnar í sölu utan landsteinanna og hafa náð athyglisverðum árangri í Mið-Austurlöndum og það af trúarlegum ástæðum.

„Samkeppnisvörurnar okkar eru búnar til úr svínaþörmum og múslimar eru ekki mikið fyrir að nota vörur sem unnar eru úr svínum. Því eru okkar vörur vinsælar,“ segir Guðmundur. Stefan er sett á Bandaríkjamarkað á næstu mánuðum.

„Bandaríkjamarkaður er stærsti markaðurinn fyrir okkar vörur. Í þessum flokki seljast vörur fyrir um 700 milljónir dala á ári og það er 22% vöxtur. Það þarf að huga vel að þessum málum og finna réttan samstarfsaðila. Við stefnum að því að vera komin inn á Bandaríkjamarkað eftir 12 til 18 mánuði.“






Fleiri fréttir

Sjá meira


×