NBA í nótt: Frábær endurkoma hjá Houston Eiríkur Stefán Ásgeirsson skrifar 29. janúar 2014 08:54
Houston Rockets hafði betur gegn San Antonio Spurs í Texas-slag í NBA-deildinni í körfubolta í nótt. San Antonio komst mest fimmtán stigum yfir í fyrri hálfleik en Houston sneri leiknum sér í vil með því að skora 33 stig í þriðja leikhluta.Dwight Howard skoraði 23 stig fyrir Houston og Terrence Jones 21. Jeremy Lin lagði einnig sitt af mörkum á lokasprettinum. Boris Diaw var stigahæstur hjá San Antonio með 22 stig auk þess sem hann tók ellefu fráköst. Sigur Houston var ekki síst sætur í því ljósi að stigahæsti leikmaður liðsins í vetur, James Harden, missti af leiknum vegna meiðsla. Þetta var annað tap San Antonio í röð en liðið er í öðru sæti Vesturdeildarinnar, þremur sigurleikjum á eftir Oklahoma City.Portland hefði getað komist í annað sætið en liðið tapaði fyrir Memphis á heimavelli, 98-81.Zach Randolph skoraði 23 stig og tók tíu fráköst fyrir Memphis sem hefur nú unnið þrjá leiki í röð og sjö af síðustu átta. Randolph, sem lék áður með Portland, var með sína 27. tvöföldu tvennu á tímabilinu.LA Lakers tapaði enn einum leiknum, í þetta sinn gegn Indiana - toppliði austurdeildarinnar. David West skoraði nítján stig í tólf stiga sigri, 104-92.Lance Stephenson var með fimmtán stig og fjórtán fráköst en Paul George náði sér ekki á strik. Hann nýtti aðeins fjögur af 21 skoti sínum utan af velli og var alls með þrettán stig.Pau Gasol var með 21 stig og þrettán fráköst fyrir Lakers sem er í næstneðsta sæti vesturdeildarinnar með aðeins sextán sigra. Indiana er eina liðið sem hefur tapað færri en tíu leikjum allt tímabilið.Úrslit næturinnar: Cleveland - New Orleans 89-100 Detroit - Orlando 103-87 New York - Boston 114-88 Houston - San Antonio 97-90 Portland - Memphis 81-98 Golden State - Washington 85-88 LA Lakers - Indiana 92-104
NBA Mest lesið Ný rangstöðutækni á HM Fótbolti Leyfislaus CrossFit-dómari og keppandinn hans í tveggja ára bann Sport Vardy sýnir myndir frá innbrotinu á heimilið Fótbolti Guðjón Valur ósáttur því lið gæti grætt á tapi Handbolti „Allar spár kolrangar og vitlausar“ Íslenski boltinn „Það er tilfinningaþrungið að kveðja Old Trafford“ Enski boltinn Samkomulag náðst milli Iraola og Liverpool Fótbolti Manchester United kaupir Ederson Fótbolti Á að endurvekja þungarokksfótboltann og ánægjuna á Anfield Enski boltinn John Barnes greindist með krabbamein Fótbolti Fleiri fréttir Bjóða upp á áfanga í körfuboltadómgæslu á Króknum næsta vetur Sjáðu sigurkörfuna í óvæntum sigri Elvars og félaga á Real Madrid Elvar og félagar komnir yfir á móti deildarmeisturunum Búinn að vinna titilinn fyrir fyrsta leik Mála neðanjarðarkerfið í litum Knicks Steph Curry gerir risasamning við kínverskt íþróttamerki Heiðurshallarþjálfarinn Rick Adelman látinn Björgvin Hafþór snýr aftur í Skallagrím Einn efnilegasti leikmaður landsins áfram í Haukum Martin frábær og einum sigri frá úrslitaeinvíginu Ingvi tekur slaginn áfram með Ármanni „Vissi ekki að þetta væri svona alvarlegt“ Sló út meistarana eftir áskorun þjálfarans Aðstoðaði Baldur en tekur nú við í Þorlákshöfn Martin og félagar tóku fyrsta skref að úrslitum Kane handtekinn fyrir að skulda meðlag Óvíst hvað Hilmar Smári gerir: „Fyrstu símtölin voru í þá“ Tryggvi tryggði sigur á móti Elvari Rétt unnu botnliðið í lokaumferðinni Doncic flytur félag til Rómar Hjalti stýrir Skagamönnum Spurs knúðu fram oddaleik Martin valinn mikilvægastur Emil Barja tekur við Stjörnunni Pétur Már tekur við Grindavík Gerir ekki ráð fyrir heimkomu Martin magnaður í oddaleik Ægir hjá Stjörnunni næstu tvö tímabil Collin Pryor í Álftanes Meistararnir einum sigri frá úrslitaeinvíginu Sjá meira