Eyjamenn verja sinn gráa her Jakob Bjarnar skrifar 10. janúar 2014 12:41 Elliði Vignisson vill allt til vinna svo eldri borgarar geti verið sem lengst heima hjá sér.
Innanríkisráðuneytið taldi á síðasta ári að bæjarstjórn Vestmannaeyja væri óheimilt að fella niður fasteignagjöld á íbúðarhúsnæði 70 ára og eldri. Það var fyrst gert árið 2012, aftur á síðasta ári og í fjárhagsáætlun fyrir nýbyrjað ár er stefnt að þessu þrátt fyrir athugasemd ráðuneytisins. Þetta kemur fram í Eyjafréttum. Málið er enn til skoðunar í ráðuneytinu en bæjarstjóri segir að bæjarstjórn fari að lögum um málefni aldraðra. Elliði Vignisson bæjarstjóri í Eyjum segir að ekki liggi fyrir úrskurður heldur ábending frá ráðuneytinu um að það leiki vafi á lögmæti þessarar ákvörðunar. Eyjamenn ætla að bíða úrskurðar, segjast munu hlíta honum en vissulega veki það ákveðnar spurningar þegar sveitarfélagi er ekki heimilt að styðja eldri borgara við búsetu í eigin húsnæði á þennan máta. „Við ætlum að láta reyna á það. Við teljum okkur vera í fullum rétti. Og höfum sent svar til ráðuneytisins þar sem við bendum á að það séu til önnur lög og reglugerðir sem við styðjumst við.“Hver er hugmyndafræðin á bak við þetta? „Fyrst og fremst sú að gera öldruðum kleift að búa í eigin húsnæði eins lengi og mögulegt er. Við erum illu heilli með biðlista inn á dvalarheimili aldraðra og viljum styðja aldraða í auknu frelsi til búsetuvals, með að létta álögum af þeim; með að þeir greiði ekki fasteignagjöld af sínu íbúðahúsnæði hafi þeir möguleika á að búa lengur í eigin húsnæði.“
Mest lesið Bein útsending: Marco Rubio heimsækir Ísland Innlent Skora á borgina að bæta ekki við beygjuvasa Innlent Rubio: Ísland í miðjunni Innlent Verði að gera fyrirvara við rannsókn um karlmennsku Innlent Bjarni segir ekkert hæft í að verið sé að úthýsa Aþenu Innlent Umdeildur metsöluhöfundur látinn Erlent Þurfa að hætta við mótorakaup fáist ekki fé frá ríkinu Innlent Portúgalsfarinn á bak við lás og slá Innlent Bíði og bíði eftir Bjarna Innlent Afgerandi niðurstaða um að slíta kjarasamningum Innlent Fleiri fréttir Ólíklegt að pestin berist til Íslands Óþolinmæði að fylla Læknavaktina Ekkert leyndarmál að herinn sé önnum kafinn Greinir skýran vilja til meira samstarfs Leggja fram þingmál um að draga umsóknina til baka Engar leyniskyttur gættu Rubio Hafnar sælgætis- og fæðingarorlofsmálum sem rökum fyrir bókun 35 Bíði og bíði eftir Bjarna Leita manna sem grunaðir eru um hópárás Hafi þegar tryggt fjármögnun varamótoranna Guðmundur Fertram og Fanney opna nýsköpunarsetur Segir gjald fyrir túlkun eftir þrjú ár sanngjarna kröfu „Viljum ekki að það sé verið að leika sér að fullveldi Íslands“ Ný skýrsla Umhverfis- og orkustofnunar: Hverfandi líkur á að olía finnist á Drekasvæðinu Rubio farinn af landi brott Verði að gera fyrirvara við rannsókn um karlmennsku Leit að eftirmanni Harðar hefði hafist í haust eða vetur Bjarni segir ekkert hæft í að verið sé að úthýsa Aþenu Samtalið efnismeira en áður þó talsverð gjá sé á milli Einn í framboði til varaformanns enn sem komið er Ögurstund í kjaramálum og Marco Rubio í heimsókn Skora á borgina að bæta ekki við beygjuvasa Rubio: Ísland í miðjunni Þurfa að hætta við mótorakaup fáist ekki fé frá ríkinu Bein útsending: Marco Rubio heimsækir Ísland Tvær líkamsárásir á borði lögreglu Brotist inn í fjóra bíla í þremur hverfum Afgerandi niðurstaða um að slíta kjarasamningum Auglýsingatekjur Rúv undir fyrirhuguðu þaki þrjú ár í röð Fengu heimild til þess að segja upp kjarasamningum Sjá meira