Tveir árgangar af síld ófundnir Samúel Karl Ólason skrifar 14. janúar 2014 11:18 Vísir/Vilhelm
Vegna frétta um síld inn á Hvammsfirði í Breiðafirði, rétt fyrir jól fór Hafrannsóknastofnun til rannsókna þangað og í nágrenni á rannsóknaskipinu Dröfn í síðustu viku. Niðurstöður mælinga sýndu að umtalsvert magn af smásíld úr 2012 árganginum var í firðinum, en hins vegar var ekkert af veiðistofninum eins og vænst hafði verið. Í framhaldi af því voru hefðbundin veiðisvæði í sunnanverðum Breiðafirði skoðuð sem og Kolgrafafjörður. „Það er skemmst frá því að segja að bráðabirgða niðurstöður þessara mælinga gáfu sambærilegar niðurstöður og mælingar sem gerðar voru á þessum slóðum fyrir jól eða um 60 þús. tonn af veiðistofninum. Nánast öll þessi síld var í innri hluta Kolgrafafjarðar,“ segir í frétt á vef Hafrannsóknastofnunar. Þá segir einnig að endanlegir reikningar muni ekki liggja fyrir strax, en ljóst sé að ekkert hafi bæst við magn veiðistofns í Breiðafirðinum frá mælingum í haust. Enn vanti töluvert magn í bergmálsmælingar vetrarins miðað við mælingar síðasta árs, eða um 140.000 tonn. Aldursgreining sýnir að árgangana 2007 og 2008 vantar einkum í fjörðinn, í samanburði við mælingar í fyrra. „Í vetur virðast þessir árgangar hinsvegar hafa vetursetu á nýjum og enn sem komið er óþekktum slóðum. Framhald síldarrannsókna og leita þessa vetrar verða ákveðnar á næstu dögum.“ Við mælingar í Kolgrafafirði var botn fjarðarins skoðaður og var enga dauða síld þar að finna, enda hafi súrefnismettun í firðinum verið góð það sem af er vetri.
Mest lesið Líst ekki á breytingar Ingu á útivistartíma barna að vetri Innlent Ekki 270 ferkílómetrar heldur 26 Erlent „Það er að verða til kynslóðaójöfnuður“ Innlent Ætluðu að vinna skemmdarverk í Danmörku Erlent Fái að ráðast í húsleit og spyrja svo Innlent Eldur í þaki Rimaskóla í nótt Innlent Minnist dóttur sinnar sem lést á Íslandi Innlent NATO og ESB ætli að bregðast við auknu gáleysi Rússa Erlent Stúlkan frá Írlandi en búsett hér á landi Innlent Vonast til að geta haldið árásum í lágmarki fram yfir kosningar Erlent Fleiri fréttir Minnist dóttur sinnar sem lést á Íslandi Áfram stelpur verða að félagasamtökum: Margir gerendur um hvern og einn þolanda „Það er að verða til kynslóðaójöfnuður“ Víðáttumikil lægð fyrir sunnan land Líst ekki á breytingar Ingu á útivistartíma barna að vetri Eldur í þaki Rimaskóla í nótt Þjófnaður í þremur verslunum Fái að ráðast í húsleit og spyrja svo Bændum brugðið og skoði frekari öryggisbúnað Segir skattahækkun á baðlón bíta fastast á landsbyggðinni Rúmur helmingur flugmannanna hafi sofnað við störf Svona voru aðstæður við svínabú Stjörnugríss Stytta gjaldskyldu og opna bílahús allan sólarhringinn Sonur þingmannsins í áframhaldandi gæsluvarðhald Rúvarar verði einir eftir í Efstaleitinu Stefnan tengist ekki þjóðaratkvæðagreiðslu Talsvert tjón og týndar tennur Eigendur Santé neita sök Samfélagið syrgir ungmennin sem létust Sex svín drápust eftir annað innbrot „Þetta er smjörklípa“ Minningarstundir og ESA undirbýr dómsmál Stúlkan frá Írlandi en búsett hér á landi Skoða að stefna Íslandi vegna bókunar 35 Aðild að ESB hafi aldrei verið markmið í sjálfu sér Einn grunaður um íkveikju á Center Hotel Skjaldbreið Bruninn mikið áfall og tjónið líklega verulegt í versluninni Um þriðjungur þjóðarinnar horfði á síðasta fréttatímann Flúði hótelherbergið vegna brunans og gleymdi tönnunum Vinnuframlag Skúla Tómasar afþakkað Sjá meira