Formaður VG telur umhverfisráðherra ætla á svig við rammaáætlun Heimir Már Pétursson skrifar 14. janúar 2014 12:56 Sérstök umræða hefst á Alþingi klukkan tvö þar sem formaður VG mun krefja umhverfisráðherra svara við framkvæmd hans á rammaáætlun varðandi virkjanakosti. vísir/gva/vilhelm
Formaður Vinstri grænna segir brýnar spurningar vakna eftir að umhverfisráðherra gaf rými fyrir nýjan virkjanakost með breytingum á mörkum friðlands Þjórsárvera. Náttúruverndarmál verði fyrirferðarmikil á vorþingi eftir að ráðherra ákvað að afturkalla ný náttúruverndarlög. Alþingi kemur saman í dag að loknu jóleyfi og klukkan tvö fer fram sérstök umræða um stöðu verndarflokks rammaáætlunar um virkjanakosti að beiðni Katrínar Jakobsdóttur formanns Vinstri grænna. „Það eru auðvitað mjög margar brýnar spurningar sem hafa vaknað eftir að umhverfisráðherra kynnti þau áform sín að breyta mörkum friðlands Þjórsárvera og gefa þannig rými fyrir nýjan virkjanakost. Það er mikilvægt að hann skýri tilurð þessarar tillögu, sem er breytt frá því sem Umhverfisstofnun lagði til við undirbúning friðlýsingar svæðisins,“ segir Katrín Þá sé líka mikilvægt að ráðherra skýri hvernig hann hyggist almennt fara með þá virkjanakosti sem settir voru í verndarflokk í gildandi rammáætlun. „Því lögum samkvæmt á að friðlýsa þau svæði. Það er auðvitað mikilvægt að við áttum okkur á því hvort ráðherrann telji að þessir kostir séu áfram undir í einhverri umræðu. Að það sé til umræðu að breyta þessari flokkun eitthvað í kjölfar þess sem gerst hefur á síðustu dögum,“ segir Katrín. Það liggi fyrir að með byggingu Norðlingaölduveitu yrði farið á svig við gildandi rammaáætlun. Það hafi komið fram að hálfu fræðimanna og fagmanna sem unnu að undirbúningi gildandi rammaáætlunar. Verkefnisstjórn hafi lagt til að Norðlingaölduveita yrði í verndarflokki. Það sé rangt að hugmyndir um þennan nýja virkjanakost stangist ekki á við gildandi rammaáætlun. „Það stangast á við mat þessara fagmanna sem unnu þessa áætlun. Og ráðherra hefur nú sagst ætla að fylgja því sem fagmenn segja í þessu máli,“ áréttar Katrín. Rammaáætlun og náttúruverndarmál reyndust síðustu ríkisstjórn erfið vegna andstöðu núverandi stjórnarflokka. Katrín segir þetta hápólitísk mál og þegar umhverfisráðherra hafi boðað að náttúruverndarlög sem taka áttu gildi í vor verði afturkölluð, hljóti að þurfa að ræða þau mál ítarlega. „Umsagnaraðilar lýsa miklum áhyggjum af því að það eigi í raun og veru að fara að hverfa aftur í lagaumhverfi náttúruverndar frá árinu 1999 á þeim tíma sem viðhorf manna hafa breyst og það hefur orðið breyting á þróun umhverfisréttar. Þannig að ég held að þetta verði auðvitað stórt mál á vorþinginu sem og auðvitað meðhöndlun rammaáætlunar,“ segir Katrín Jakobsdóttir.Umræður um málið hefjast á Alþingi klukkan 14:00.
Mest lesið Líst ekki á breytingar Ingu á útivistartíma barna að vetri Innlent Ekki 270 ferkílómetrar heldur 26 Erlent „Það er að verða til kynslóðaójöfnuður“ Innlent Ætluðu að vinna skemmdarverk í Danmörku Erlent Fái að ráðast í húsleit og spyrja svo Innlent Eldur í þaki Rimaskóla í nótt Innlent Minnist dóttur sinnar sem lést á Íslandi Innlent NATO og ESB ætli að bregðast við auknu gáleysi Rússa Erlent Stúlkan frá Írlandi en búsett hér á landi Innlent Vonast til að geta haldið árásum í lágmarki fram yfir kosningar Erlent Fleiri fréttir Minnist dóttur sinnar sem lést á Íslandi Áfram stelpur verða að félagasamtökum: Margir gerendur um hvern og einn þolanda „Það er að verða til kynslóðaójöfnuður“ Víðáttumikil lægð fyrir sunnan land Líst ekki á breytingar Ingu á útivistartíma barna að vetri Eldur í þaki Rimaskóla í nótt Þjófnaður í þremur verslunum Fái að ráðast í húsleit og spyrja svo Bændum brugðið og skoði frekari öryggisbúnað Segir skattahækkun á baðlón bíta fastast á landsbyggðinni Rúmur helmingur flugmannanna hafi sofnað við störf Svona voru aðstæður við svínabú Stjörnugríss Stytta gjaldskyldu og opna bílahús allan sólarhringinn Sonur þingmannsins í áframhaldandi gæsluvarðhald Rúvarar verði einir eftir í Efstaleitinu Stefnan tengist ekki þjóðaratkvæðagreiðslu Talsvert tjón og týndar tennur Eigendur Santé neita sök Samfélagið syrgir ungmennin sem létust Sex svín drápust eftir annað innbrot „Þetta er smjörklípa“ Minningarstundir og ESA undirbýr dómsmál Stúlkan frá Írlandi en búsett hér á landi Skoða að stefna Íslandi vegna bókunar 35 Aðild að ESB hafi aldrei verið markmið í sjálfu sér Einn grunaður um íkveikju á Center Hotel Skjaldbreið Bruninn mikið áfall og tjónið líklega verulegt í versluninni Um þriðjungur þjóðarinnar horfði á síðasta fréttatímann Flúði hótelherbergið vegna brunans og gleymdi tönnunum Vinnuframlag Skúla Tómasar afþakkað Sjá meira