Fjölskyldum stúlknanna nóg boðið Hanna Rún Sverrisdóttir skrifar 14. janúar 2014 22:30 Lögreglan lýsti eftir Daða með þessari mynd úr eftirlitsmyndavél Krónunnar.
Daði Freyr Kristjánsson sem dæmdur var í þriggja ára fangelsi fyrir að nema tvær sjö ára stúlkur á brott úr strætóskýli við verslun Krónunnar í Árbæ í janúar á síðasta ári hefur áfrýjað dómnum til Hæstaréttar. Daði Freyr var jafnframt dæmdur til þess að greiða hvorri stúlku fyrir sig 800 þúsund krónur í bætur. Foreldrar stúlknanna fengu þessar upplýsingar í dag en þeim voru birtar áfrýjunarstefnur í dag. Þar kemur fram að Daði Freyr gerir þær kröfur að refsing hans verði milduð og einkaréttarkröfur verði lækkaðar. Faðir annarrar stúlkunnar segir að fjölskyldunum sé brugðið. Þau hafi ákveðið að tjá sig ekkert um málið, hvorki á meðan á rannsókn stóð né eftir að dómur féll. En fyrst hann gat ekki unað dómnum og fari nú fram á að refsing hans verði lækkuð, þá sé maðurinn að biðja um leiðindi. Hann sé bara að hringla í þeim og kerfinu og nú hafi þau fengið nóg. Daði Freyr er 33 ára. Hann kom að máli við stúlkurnar í janúar í fyrra og sagðist hafa séð þær hnupla sælgæti og þær yrðu að koma með honum, annars myndi hann hringja á lögregluna. Hann ók svo með stúlkurnar á afvikinn stað við Rauðavatn þar sem hann settist aftur í hjá þeim. Hann kyssti aðra stúlkuna á kinnina og þuklaði á þeim báðum utan klæða. Þegar þær brugðust illa við ók hann með þær til baka og hleypti þeim úr bílnum.Daði Freyr var ákærður fyrir frelsissviptingu, kynferðisbrot gegn börnum og brot gegn 193. ákvæði hegningarlaga, sem kveður á um barnsrán. Hann játaði sök skýlaust og var sakfelldur fyrir alla ákæruliði. Stúlkurnar hafa glímt við misalvarlegar afleiðingar vegna brotanna. Faðir annarrar stúlkunnar segir hana ekki geta sofið eina í herbergi, hún fái martraðir og verði skelkuð í myrkri. Hún hefur þurft að sækja meðferð hjá Barnahúsi og Barna- og unglingageðdeild vegna þessa.
Tengdar fréttir Þarf meðferð og fær martraðir Önnur stúlknanna sem Daði Freyr Kristjánsson rændi í Árbæ í janúar hefur þurft að glíma við alvarlegar afleiðingar brotsins. Daði hlaut í gær þriggja ára fangelsi fyrir brotið. 9. október 2013 07:00 "Hún er virkilega hrædd" Faðir sjö ára stúlku sem var rænt og káfað á henni, er ósáttur við að maðurinn sé ekki í varðhaldi. Hann segir dóttur sína hrædda við manninn, sem býr í næstu götu við þau. 25. janúar 2013 18:34 Mest lesið Fleiri bílar á vettvangi og hraðakstur til skoðunar Innlent SÁÁ missir forstjóra og yfirlækni Innlent Einn fluttur á slysadeild eftir eld í Holtagörðum Innlent Öll hin látnu um og undir tvítugu Innlent Segir af og frá að hann hafi veitt stórfé í Brexit-baráttuna Innlent „Ef ég hefði ekki farið upp á heilsugæslu þá hefði ég ekki fengið heilablóðfall“ Lífið „Engin orð ná utan um slíkan missi“ Innlent Svekktir og reiðir stjórnendur komu saman við Ráðhúsið Innlent Ungum Pólverja best treyst til forystu í Langanesbyggð Innlent Komugjald lagt á: „Þetta er auðvitað ekkert annað en skattlagning“ Innlent Fleiri fréttir Þorgerður sinnir starfi sveitarstjóra í eitt ár Andarnefja í andarslitrunum á Djúpavogi Báðar fylkingar eyddu milljónum í samfélagsmiðlaauglýsingar Skúli Tómas ekki sloppinn eftir allt saman Byrjað að leggja Borgarlínu við Nauthólsveg Svekktir og reiðir stjórnendur komu saman við Ráðhúsið Komugjald lagt á: „Þetta er auðvitað ekkert annað en skattlagning“ SÁÁ missir forstjóra og yfirlækni Norðausturland fær loks langþráðan veg Tjón vegna skemmdarverka hlaupi á milljónum Rætt við vitni að banaslysinu og eldri borgarar ósáttir með skattahækkun Fleiri bílar á vettvangi og hraðakstur til skoðunar Rún frá Veitum til Þorgerðar Katrínar Einn fluttur á slysadeild eftir eld í Holtagörðum Hlaup af þessari stærðargráðu vel þekkt í Múlakvísl Kviknaði í jeppa á Reykjanesbraut Leggja til að Evrópusambandsumsóknin verði formlega dregin til baka Segir af og frá að hann hafi veitt stórfé í Brexit-baráttuna Sakborningur í Kársnesmáli sóttur til Spánar Sinntu hávaðatilkynningum í heimahúsum „Engin orð ná utan um slíkan missi“ Enn óljóst hvað verður um umsóknina Ungum Pólverja best treyst til forystu í Langanesbyggð Þurfi að hækka laun og fjölga frídögum Öll hin látnu um og undir tvítugu „Við segjum ekki bless, við segjum takk“ Síðasti kvöldfréttatími Sýnar „Ríkið á stóra sök á þessu“ Líka slæmar fréttir fyrir Rúv Á morgun mega hommar gefa blóð Sjá meira
Þarf meðferð og fær martraðir Önnur stúlknanna sem Daði Freyr Kristjánsson rændi í Árbæ í janúar hefur þurft að glíma við alvarlegar afleiðingar brotsins. Daði hlaut í gær þriggja ára fangelsi fyrir brotið. 9. október 2013 07:00
"Hún er virkilega hrædd" Faðir sjö ára stúlku sem var rænt og káfað á henni, er ósáttur við að maðurinn sé ekki í varðhaldi. Hann segir dóttur sína hrædda við manninn, sem býr í næstu götu við þau. 25. janúar 2013 18:34