Staða safnstjóra á nýju safni auglýst Samúel Karl Ólason skrifar 15. janúar 2014 09:42 Vísir/Stefán
Staða safnstjóra hjá nýju safni í eigu Reykjavíkur hefur verið auglýst til umsóknar af menningar- og ferðamálasviði borgarinnar. Starfið mun fela í sér samruna og samþættingu starfsemi Minjasafns Reykjavíkur, Víkurinnar – Sjóminjasafnsins í Reykjavík, Ljósmyndasafns Reykjavíkur og Viðeyjar. Safnið mun verða eitt stærsta safn Íslands og hafa umsjón með menningarminjum í Reykjavík og ber ábyrgð á söfnum, skráningu, rannsóknum og miðlun á fjölbreyttum safnkosti, samkvæmt tilkynningu frá menningar- og ferðamálasviði Reykjavíkur. ,,Þetta er einstaklega spennandi verkefni fyrir þann sem velst til að leiða nýtt safn“, segir Svanhildur Konráðsdóttir, sviðsstjóri Menningar- og ferðamálasviðs, í tilkynningunni, en vinna við undirbúning samruna áðurnefndra menningarstofnana er komin á fulla ferð. ,,Markmiðið með sameiningunni er að búa til sterkari einingu, bæði faglega og rekstrarlega, og sækja fram eftir margra ára samdrátt í rekstrarumhverfi safnanna í borginni. Við sjáum mikil tækifæri í að móta nútímalega og metnaðarfulla menningarstofnun sem hefur fjölmarga snertifleti við borgarbúa og gesti.“ Jafnframt mun safnið bera ábyrgð á skráningu fornleifa, húsa og mannvirkja, rannsóknum og eftirliti þeirra og vera ráðgjafi borgaryfirvalda um verndun menningarminja í Reykjavík og um önnur menningarsöguleg verkefni.Umsóknarfrestur rennur út þann 19. janúar nk. og gert er ráð fyrir að viðkomandi hefji störf eigi síðar en 15. mars nk.
Mest lesið Hjólhýsabyggð færist í Gufunes þrátt fyrir aðfinnslur Innlent „Í einu tilviki var talað um nauðgunarleik“ Innlent „Ég varð bara reiður, endalaust reiður“ Innlent Ellefu taldir af eftir að efnatankur gaf sig Erlent Áframhald á árásum og Trump hefur í hótunum við Óman Erlent Boða róttækar breytingar: Ari íhugar tilboð sem Líf vildi fá Innlent Fagnar því að allir þingmenn fái að kynna sér ESB-gögnin Innlent Arnarnesvegi ætlað að stytta bílaraðir Innlent Líkur á hlýjum og votum vetrum á norðurslóðum Erlent Aukaþingfundur boðaður: Miðflokksmenn fá að halda áfram í fyrramálið Innlent Fleiri fréttir Líta stöðuna í Varmá mjög alvarlegum augum Fagnar því að allir þingmenn fái að kynna sér ESB-gögnin Steinum kastað í bifreiðar og rúða brotin í skóla Hjólhýsabyggð færist í Gufunes þrátt fyrir aðfinnslur „Í einu tilviki var talað um nauðgunarleik“ „Ég varð bara reiður, endalaust reiður“ Aukaþingfundur boðaður: Miðflokksmenn fá að halda áfram í fyrramálið „Höfum þegar tekið upp tólið og heyrt í fjármálaráðherra“ Konan komin í leitirnar Arnarnesvegi ætlað að stytta bílaraðir Meirihlutanum liggur á í kvöld en ekki Miðflokknum „Viðreisnarbottar“ skýrt dæmi um erlend áhrif Lögregla kölluð til þegar slegist var um bílastæði Boða róttækar breytingar: Ari íhugar tilboð sem Líf vildi fá Hjónasjálfa, gleði og faðmlög í Viðey Nýr borgarstjóri mætir í beina útsendingu Landsnet lagði landeigendur í Hæstarétti Býr sig undir það versta en vonar það besta Fótbolti.net legið niðri í á annan sólarhring Krefjast þess að bankarnir dragi hækkanir til baka Hallgrímur kom í þáttinn sem mótvægi við oflof um Davíð Breytingum fórnað fyrir starfsfrið: „Friðjónslínan“ hafi ráðið för Bókstafir verði að tölustöfum Draugagangur, búrtíkur og öngull í rassi „Þetta vita Einar og Björg“ Skotið fór í gegnum handlegg og endaði í öxl Hafa þegar rætt við Daða Má um samgöngusáttmálann Taka ásýnd Varmár alvarlega og stöðva borframkvæmdir Mun dæma meirihlutann af verkunum Sjálfstæðismenn og Framsókn í eina sæng í Múlaþingi Sjá meira