"Störfum saman þótt kaktusar séu í hópnum“ Elimar Hauksson skrifar 15. janúar 2014 23:45 Oddvitar flokkanna sem mynda meirihlutann í bæjarstjórn Kópavogsbæjar segja meirihlutann halda þrátt fyrir að Gunnar I. Birgisson hafi gengið til liðs við minnihlutann í atkvæðagreiðslu á bæjarráðsfundi í gær. Mynd/Vilhelm
Formenn framsóknarfélaganna í Kópavogi og formaður fulltrúaráðsins funduðu í kvöld ásamt Ómari Stefánssyni, bæjarfulltrúa flokksins í Kópavogi. Ómar segir niðurstöðu fundarins hafi verið að halda meirihlutasamstarfinu í bæjarstjórn gangandi. „Ég talaði við helstu trúnaðarmenn okkar og það var ekki vilji til þess að slíta samstarfinu. Við höfum ákveðnar óskir og væntingar sem við gerum til áframhaldandi samstarfs en við munum fara yfir þau mál á morgun, ég, Ármann og Rannveig,“ segir Ómar. Undir þetta tóku bæði Ármann Kr., bæjarstóri Kópavogsbæjar og Rannveig H. Ásgeirsdóttir. Rannveig segir samstarfið hafa gengið vel hingað til og ekki sé ástæða til að slíta samstarfinu núna. „Við getum öll sammælst um það að meirihlutinn heldur áfram að starfa saman þrátt fyrir kaktusa í hópnum,“ segir Rannveig. Gunnar I. Birgisson hefur reynst meirihlutanum erfiður en hann samþykkti í gær tillögu minnihluta bæjarstjórnar á bæjarráðsfundi um íbúðarkaup og framkvæmdir á tveimur fjölbýlishúsum í Kópavogi og fór þar með gegn sitjandi meirihluta. Ármann Kr. Ólafsson, bæjarstóri, segir samstarf meirihlutans vera traust og segir það ekki hafa komið sér að óvart að Gunnar hafi gengið til liðs við minnihlutann enda hafi hann og Guðríður Arnardóttir, bæjarfulltrúi Samfylkingar, áður náð saman. „Gunnar og Guðríður hafa áður náð saman þannig að þetta er ekkert nýtt fyrir mér. Samstarf þessara flokka (meirihlutans) er traust en ég leyni því ekki að svona uppákomur eiga ekki að eiga sér stað,“ segir Ármann.
Mest lesið Veggur af fólki mætti svöngum tónleikagestum Innlent Hafði fé af mótsgesti Innlent Níu í lífshættu og einn látinn eftir lestarslys í Englandi Erlent Rútum ekið í forgangsakstri fram fyrir bílaröðina Innlent Slysið austan við Vík var alvarlegt Innlent Maður á rafskútu rassskellti hlaupakonur Innlent HR útskrifaði rúmlega sjö hundruð í dag Innlent „Þetta er stórmerkilegur áfangi“ Innlent Bíll við bíl að Þingvöllum og umferð hreyfist hægt Innlent Skora á Bubba að taka sér pásu frá laxveiði og mæta Innlent Fleiri fréttir Hafði fé af mótsgesti HR útskrifaði rúmlega sjö hundruð í dag Veggur af fólki mætti svöngum tónleikagestum „Þetta er stórmerkilegur áfangi“ Rútum ekið í forgangsakstri fram fyrir bílaröðina Maður á rafskútu rassskellti hlaupakonur Slysið austan við Vík var alvarlegt Bíll við bíl að Þingvöllum og umferð hreyfist hægt Aukin hætta á skriðum og grjóthruni Segjast hafa lokað Hormússundi á ný Flugmaður féll í yfirlið við lendingu í Keflavík Til skammar að málið hafi sofnað í meðferð þingsins Fjöldi bíður niðurstöðu og stór stund á Þingvöllum Jensína Edda er Reykvíkingur ársins Sektaður fyrir að aka á göngugötu Hvalveiðibátarnir haldnir til veiða Mikið tjón eftir eld á Klapparstíg Flækt í kafkaískt stjórnsýslulegt helvíti Undrast „leiðinlega“ Íslendinga Skora á Bubba að taka sér pásu frá laxveiði og mæta „Ég hef verið kölluð þingmaður dauðans“ Segir Reykjavík að verða að Mekka vændisiðnaðar Trúði ekki að siglt yrði úr höfninni: „Mér leið svo illa, ég fór að hágráta“ Höfuðvígi vændismansals, mótmælandi sem brotnaði niður og Þingvellir Björgunarsveitir sóttu göngumann við Háafoss Þingið komið í sumarfrí Samþykkja úrræði fyrir fólk sem sæta þarf öryggisráðstöfunum Óljós um tilganginn en þekktu hvert egg Allt eftirlit matvæla undir einni stofnun Boltinn sé hjá fjarskiptafélögunum Sjá meira