Fara fram á fund vegna MP banka Elimar Hauksson skrifar 17. janúar 2014 07:00 Árni Páll vill að fundað verði sérstaklega um hækkun skattleysismarka bankaskattsins.
Fulltrúar Vinstri grænna, Bjartrar framtíðar og Samfylkingar vilja fund í efnahags- og viðskiptanefnd um skattleysismörk bankaskatts en mörkin voru hækkuð í 50 milljarða við aðra umræðu málsins á þingi auk þess sem skatturinn var hækkaður í 0,376 prósent. Vegna þessa munu greiðslur MP banka lækka um 78 prósent, úr 241 milljón niður í 53 milljónir. Þetta gagnrýna fulltrúarnir og kalla eftir rökstuðningi. Árni Páll Árnason, þingmaður Samfylkingar og nefndarmaður, hefur sent formanni nefndarinnar, Frosta Sigurjónssyni, bréf þar sem hann fer fram á að fundað sérstaklega um málið í nefndinni. Bréfið sendi Árni að höfðu samráði við Steingrím J. Sigfússon og Guðmund Steingrímsson en þar kemur fram að skilningur nefndarmanna á breytingartillögu meirihluta efnahags- og viðskiptanefndar, sem fól í sér gríðarlega hækkun frískuldamarksins, hafi verið sá að frískuldamarkið væri byggt á efnislegri greiningu á þörfum minni fjármálafyrirtækja. Í bréfinu segir ennfremur að í fjölmiðlaumræðu hafi komið fram að frískuldamarkið virðist sérsniðað að hagsmunum einnar fjármálastofnunar, MP banka, sem virðist vera tengd forystu stjórnarflokkanna fjölþættum fjölskyldu- og vinaböndum. Bankinn tengdur ríkisstjórninni Í Fréttablaðinu á miðvikudaginn var farið yfir tengsl helstu stjórnenda MP banka við ríkisstjórnina. Þar kemur fram að Sigurður Hannesson, einn af framkvæmdastjórum MP banka, sé tengdur Sigmundi Davíð vinaböndum, auk þess að vera hans helsti ráðgjafi. Þá var Sigurður formaður nefndar um skuldaniðurfellingar sem bankaskatturinn á að fjármagna. Því til viðbótar er Sigurður Atli Jónsson, forstjóri MP banka, mágur Sigmundar Davíðs Gunnlaugssonar. Að lokum er nefndur Benedikt Gíslason en hann er nýráðinn ráðgjafi Bjarna Benediktssonar og fyrrum framkvæmdastjóri bankasviðs MP banka.Fundað verður á mánudag Frosti Sigurjónsson, formaður efnahags- og viðskiptanefndar, vísaði því á bug í samtali við fréttastofu á sunnudag að breytingin hefði verið klæðskerasniðin fyrir MP banka en sagði að í raun hefði mátt færa rök fyrir því að MP banki greiddi engan bankaskatt þar sem bankinn hafi ekki verið meðal þeirra sem ollu ríkissjóði tjóni í bankahruninu. Frosti sagði í samtali við fréttastofu Vísis að fundað yrði í nefndinni á mánudag og að óskað hefði verið eftir því að einhver úr Fjármála- og efnahagsráðuneytinu kæmi fyrir nefnd til að svara fyrirspurnum. „Það er ekki hefð fyrir því að nefnd fari að breyta tölum sem koma frá ráðuneyti. Við treystum ráðuneytunum því þar eru sérfræðingar sem hugsa fyrir hlutunum. Nefndin er ekki með tæki eða aðstöðu til þess að reikna þetta út,“ sagði Frosti. Hann bætti við að Samband sparisjóða hefði veitt nefndinni umsagnir þar sem fram kom að hækkun skattprósentu yrði mjög þungbær fyrir lítil fjármálafyrirtæki.Nefndin einblíndi á lagarammannFrosti segir nefndina hafa eitt miklum tíma í að skoða lagalega umgjörð skattsins þar sem búast mætti við að mikið myndi á hana reyna. Við ákvörðun prósentutölu og skattleysismarka hafi hins vegar verið treyst á tillögur ráðuneytis. „Við vorum mjög upptekin af því að búið yrði sem tryggilegast um þennan skatt. Meðal annars vegna gagnrýni á lagalegri umgjörð skattsins. Öll okkar athygli var á því að allt væri sem best frágengið. Slitastjórnir gerðu miklar athugasemdir við frumvarpið eins og það var fyrst,“ sagði Frosti.
Mest lesið Líst ekki á breytingar Ingu á útivistartíma barna að vetri Innlent Ekki 270 ferkílómetrar heldur 26 Erlent „Það er að verða til kynslóðaójöfnuður“ Innlent Ætluðu að vinna skemmdarverk í Danmörku Erlent Fái að ráðast í húsleit og spyrja svo Innlent Eldur í þaki Rimaskóla í nótt Innlent Minnist dóttur sinnar sem lést á Íslandi Innlent NATO og ESB ætli að bregðast við auknu gáleysi Rússa Erlent Stúlkan frá Írlandi en búsett hér á landi Innlent Vonast til að geta haldið árásum í lágmarki fram yfir kosningar Erlent Fleiri fréttir Minnist dóttur sinnar sem lést á Íslandi Áfram stelpur verða að félagasamtökum: Margir gerendur um hvern og einn þolanda „Það er að verða til kynslóðaójöfnuður“ Víðáttumikil lægð fyrir sunnan land Líst ekki á breytingar Ingu á útivistartíma barna að vetri Eldur í þaki Rimaskóla í nótt Þjófnaður í þremur verslunum Fái að ráðast í húsleit og spyrja svo Bændum brugðið og skoði frekari öryggisbúnað Segir skattahækkun á baðlón bíta fastast á landsbyggðinni Rúmur helmingur flugmannanna hafi sofnað við störf Svona voru aðstæður við svínabú Stjörnugríss Stytta gjaldskyldu og opna bílahús allan sólarhringinn Sonur þingmannsins í áframhaldandi gæsluvarðhald Rúvarar verði einir eftir í Efstaleitinu Stefnan tengist ekki þjóðaratkvæðagreiðslu Talsvert tjón og týndar tennur Eigendur Santé neita sök Samfélagið syrgir ungmennin sem létust Sex svín drápust eftir annað innbrot „Þetta er smjörklípa“ Minningarstundir og ESA undirbýr dómsmál Stúlkan frá Írlandi en búsett hér á landi Skoða að stefna Íslandi vegna bókunar 35 Aðild að ESB hafi aldrei verið markmið í sjálfu sér Einn grunaður um íkveikju á Center Hotel Skjaldbreið Bruninn mikið áfall og tjónið líklega verulegt í versluninni Um þriðjungur þjóðarinnar horfði á síðasta fréttatímann Flúði hótelherbergið vegna brunans og gleymdi tönnunum Vinnuframlag Skúla Tómasar afþakkað Sjá meira