Ungir drengir hvattir til lestrar Sunna Karen Sigurþórsdóttir skrifar 17. janúar 2014 12:12 Vísir/Valli
Kátt var á hjalla þegar rithöfundurinn vinsæli Andri Snær Magnason ræddi vítt og breitt um bækur, bóklestur, persónuleg ástarljóð og fleira við drengi í 9. og 10. bekkjum Valhúsaskóla á Seltjarnarnesi í Bókasafni Seltjarnarness fyrr í morgun. Andri Snær var sérstakur gestur Bókasafnsins í vitundarvakningu sem starfsfólk safnsins hleypti af stað í dag meðal unglingsdrengja til að hvetja og stuðla að lestri bóka. Andri Snær ræddi um mátt bókarinnar og tóku drengirnir virkan þátt í spjallinu. Í tilefni af lestrarvakningunni hafa starfsmenn Bókasafnsins komið upp stórri sýningu sem gæti fallið ungum drengjum í geð. Íslensku kennarar Valhúsaskóla, sem fylgdu drengjunum í morgun, hafa ákveðið í kjölfarið að skipuleggja heimsóknir annarra ungmenna við skólann á Bókasafnið til að kynna þeim þann bókakost sem settur hefur verið fram í tilefni af vitundarvakningunni, en þess má geta að nánast öll grunnskólabörn á Seltjarnarnesi hefja alla skóladaga á yndislestri á íslenskum bókum sem stendur yfir í 20 mínútur. Starfsfólk Bókasafns Seltjarnarness hvetur alla til að kíkja við en það er von þeirra að vitundarvakningin stuðli að því að æ fleiri bækur sjáist á náttborðum ungra drengja í framtíðinni.
Mest lesið „Í einu tilviki var talað um nauðgunarleik“ Innlent „Ég varð bara reiður, endalaust reiður“ Innlent Boða róttækar breytingar: Ari íhugar tilboð sem Líf vildi fá Innlent Ellefu taldir af eftir að efnatankur gaf sig Erlent Arnarnesvegi ætlað að stytta bílaraðir Innlent Aukaþingfundur boðaður: Miðflokksmenn fá að halda áfram í fyrramálið Innlent Ósáttur við skilyrðin Erlent „Viðreisnarbottar“ skýrt dæmi um erlend áhrif Innlent Konan komin í leitirnar Innlent Meirihlutanum liggur á í kvöld en ekki Miðflokknum Innlent Fleiri fréttir „Í einu tilviki var talað um nauðgunarleik“ „Ég varð bara reiður, endalaust reiður“ Aukaþingfundur boðaður: Miðflokksmenn fá að halda áfram í fyrramálið „Höfum þegar tekið upp tólið og heyrt í fjármálaráðherra“ Konan komin í leitirnar Arnarnesvegi ætlað að stytta bílaraðir Meirihlutanum liggur á í kvöld en ekki Miðflokknum „Viðreisnarbottar“ skýrt dæmi um erlend áhrif Lögregla kölluð til þegar slegist var um bílastæði Boða róttækar breytingar: Ari íhugar tilboð sem Líf vildi fá Hjónasjálfa, gleði og faðmlög í Viðey Nýr borgarstjóri mætir í beina útsendingu Landsnet lagði landeigendur í Hæstarétti Býr sig undir það versta en vonar það besta Fótbolti.net legið niðri í á annan sólarhring Krefjast þess að bankarnir dragi hækkanir til baka Hallgrímur kom í þáttinn sem mótvægi við oflof um Davíð Breytingum fórnað fyrir starfsfrið: „Friðjónslínan“ hafi ráðið för Bókstafir verði að tölustöfum Draugagangur, búrtíkur og öngull í rassi „Þetta vita Einar og Björg“ Skotið fór í gegnum handlegg og endaði í öxl Hafa þegar rætt við Daða Má um samgöngusáttmálann Taka ásýnd Varmár alvarlega og stöðva borframkvæmdir Mun dæma meirihlutann af verkunum Sjálfstæðismenn og Framsókn í eina sæng í Múlaþingi „Orð hennar og þessar upphrópanir ekki til sóma“ Reyndi að fá Miðflokk með og segir stöðu Ara ekki friðþægingu „Ákveðin svik við úrslit kosninganna“ Kolbeinn tekur við af Bryndísi sem ráðuneytisstjóri Sjá meira