Næstbesti lýsir yfir vantrausti á bæjarstjórann Heimir Már Pétursson skrifar 17. janúar 2014 13:11 Oddvitar Samfylkingar og Næstbesta flokksins saka bæjarstjórann í Kópavogi um dómgreindarbrest og segja einsdæmi að bæjarstjóri tali niður fjárhag bæjarfélags.
Oddviti Samfylkingarinnar segir bæjarstjórann í Kópavogi hafa sýnt af sér dómgreindarleysi með því að tala niður fjárhag bæjarins vegna tillögu minnihlutans í húsnæðismálum. Þá lýsir oddviti Næstbesta flokksins yfir vantrausti á bæjarstjórann.Ármann Kr. Ólafsson oddviti Sjálfstæðismanna í Kópavogi og bæjarstjóri hefur fullyrt að tillaga minnihlutans í bæjarstjórn með stuðningi Gunnars Birgissonar bæjarfulltrúa Sjálfstæðisflokksins, kosti bæinn um þrjá milljarða króna. Hann kallaði eftir lánshæfismati fyrir bæinn hjá Reitun sem breytti horfum bæjarins í neikæðar vegna þessa. Í tilkynningu frá Guðríði Arnardóttur, oddvita Samfylkingarinnar í bænum, segir að með þessu hafi dómgreindarskortur bæjarstjóra náði nýjum hæðum. Það hljóti að vera einsdæmi að bæjarstjóri standi á torgum úti og tali niður fjárhag bæjarins, sem engin ástæða sé til. Bæjarstjórinn vinni beinlínis gegn hag bæjarins og keyrir sjálfur niður lánhæfismatið.Hjálmar Hjálmarsson oddviti Næstbesta flokksins tekur í svipaðan streng. Tillaga minnihlutans stefni fjárhag bæjarins ekki í voða. „Nei, það er ekki mín skoðun og mér finnst þetta mjög ábyrgðarlausar yfirlýsingar hjá bæjarstjóra Kópavogs, Ármanni Kr. Ólafssyni, að vaða í fjölmiðla með tölur sem ekki er búið að greina og engar ákvarðanir hafa verið teknar um breytingar á fjárhagsáætlun Kópavogsbæjar 2014. Það hafa ekki verið gerðar neinar kostnaðaráætlanir varðandi byggingu leiguíbúða á almennum markaði,“ segir Hjálmar. Bygging fjölbýlishúsanna sé ekki hugsuð á kennitölu bæjarins heldur í samvinnu við leigufélög og bærinn kæmi að því með einhvers konar aðstoð. En eitthvað kostar að kaupa íbúðir eins og tillagan gerir ráð fyrir líka? „Já, á fjárhagsáætlun 2014 er gert ráð fyrir að kaupa 10 til 15 íbúðir. Ef keyptar yrðu 15 í viðbót þyrfti að taka lán fyrir því og þau lán sem bjóðast til kaupa á félagslegum íbúðum eru hagstæðustu lán sem eru í boði á markaðnum,“ segir Hjálmar. Heildarkostnaðurinn sé nær 1,8 milljarði sem dreifist á nokkur ár og hafi ekki áhrif á fjárhag bæjarins á þessu ári. Ekki sé um pólitíst upphlaup að ræða heldur tillögu til að mæta miklum og vaxandi vanda í bænum. Hjálmar telur að Gunnar Birgisson standa að heilindum á bak við tillöguna og vilja leysa þann vanda sem er í félagslegum húsnæðismálum. „Ég lýsi yfir fullkomnu vantrausti á bæjarstjóra, hvernig hann hefur hegðað sér í þessum málum og farið fram í fjölmiðlum með óábyrgum hætti og fara með þetta mál í þetta lánshæfismatsfyrirtæki með þeim hætti sem hann gerði. Hann er einfaldlega að veita villandi upplýsingar til þessa fyrirtækis,“ segir Hjálmar Hjálmarsson.
Mest lesið Lífið umturnaðist í kjölfar slyssins Innlent Höfðinginn átti sig ekki á lokuninni Innlent „Dapurlegt pólitískt útspil“ Innlent Sendi ekki reikning og fær því ekki greitt Innlent Þetta sé bæjarstjórn Kópavogs til skammar Innlent Banaslys í Skorradalsvatni Innlent Ofurölvi reyndi að opna bíla í akstri Innlent Safna í sérstakt sjóherlið á Norðurslóðum Erlent Langhæsti styrkurinn fer til Eyja Innlent Vasaþjófnaður aukist að undanförnu Innlent Fleiri fréttir Meirihlutinn fallinn og VG á þingi Farfuglar koma marktækt fyrr til landsins en áður „Dapurlegt pólitískt útspil“ Höfðinginn átti sig ekki á lokuninni Myndaveisla: Verkalýðsdagurinn haldinn hátíðlegur Sinueldur í Grafarvogi Þetta sé bæjarstjórn Kópavogs til skammar Framboðum Miðflokksins fjölgar um átta milli kosninga Lífið umturnaðist í kjölfar slyssins Bein útsending: Verkalýðsdagurinn haldinn hátíðlegur Sendi ekki reikning og fær því ekki greitt Langhæsti styrkurinn fer til Eyja Vasaþjófnaður aukist að undanförnu „Bjóða fram“ Biðlistann í Reykjavík Ofurölvi reyndi að opna bíla í akstri „Við erum með lengri óskalista heldur en þetta“ Segist ekkert hafa fengið greitt: „Pólitískur hráskinnaleikur“ „Þetta er bara eins og að missa vini sína“ Andar köldu milli Viðreisnar- og Miðflokksmanna Föst í umferð í tæpa fjóra sólarhringa á ári og kostnaðurinn yfir hundrað milljarðar Banaslys í Skorradalsvatni Glæný könnun gæti varpað ljósi á meirihlutamyndun Hlaðvarpsstjórnendur fá nýjar leiðbeiningar Urðu eftir í Flatey á meðan Baldur sigldi suður Halla fagnaði áttræðum Karli Gústafi Sömdu um stækkun á Fylkisseli Kannast ekki við meint rán í Lágafellskirkju Ákærður fyrir að eitra fyrir samstarfsfélaga með kannabis Tjáir sig ekki um greiðslur frá Rúv en boðar yfirlýsingu Skipulagt niðurbrot á réttindum launafólks hafi náð til Íslands Sjá meira