Kærkomin viðbót fyrir lesblinda 16. desember 2014 13:00 Snævar Ívarsson, formaður Félags lesblindra á Íslandi, segir marga lesblinda hafa góða reynslu af því að lesa af ljósgulu eða ljósbláu. Litirnir skapa hagstæð skerpuskil á milli bakgrunns og texta. MYND/GVA
Litaðar tússtöflur eru nýjung sem gagnast lesblindum og auðvelda þeim lestur. Formaður Félags lesblindra segir töflurnar kærkomna viðbót við litaglærur og lituð blöð sem hafa reynst lesblindum vel í lestri og skólastarfi. Litaður grunnur skapar hagstæðari skerpuskil á milli bakgrunns og texta en hvítur gunnur og auðveldar lesblindum lestur. Nýlega hóf fyrirtækið PROARC framleiðslu á lituðum tússtöflum sem gegna sama hlutverki og litaglærur og lituð blöð. Hefðbundnar hvítar tússtöflur eru fremur skítsælar og voru lituðu töflurnar upphaflega hugsaðar sem snyrtilegri valkostur. Fljótlega kom í ljós að þær gætu jafnframt gagnast lesblindum og hentað í hvers kyns skólastarf. Snævar Ívarsson, framkvæmdastjóri Félags lesblindra á Íslandi, fagnar viðbótinni. „Það er vel þekkt að litaglærur og lituð blöð gagnast lesblindum. Mér finnst þetta kærkomin viðbót.“ Bækur eru í flestum tilfellum prentaðar á hvítan pappír og hefur mörgum lesblindum reynst erfitt að lesa svart letur af hvítu blaði. „Sé lögð litaglæra yfir mýkist skerpan og lesblindum gengur betur að lesa. Að sama skapi hafa margir skólar tekið upp á því að bjóða lesblindum að fá verkefni og próf á lituð blöð. Litaðar tússtöflur virka svipað,“ útskýrir Snævar. Oftast eru ljósgulir og ljósbláir litatónar notaðir en það er þó að sögn Snævars einstaklingsbundið hvað hverjum þykir best. „Ég hef vanið mig á gula litinn en sumum finnst líka gott að skipta á milli lita.“ Snævar er með gula tússtöflu á skrifstofu Félags lesblindra á Íslandi. „Við notum hana á fundum og til að skrifa minnisatriði og setja upp markmið. Hér ríkir mikil ánægja með töfluna og ég sem lesblindur finn mun. Ég gat valið nákvæmlega þann lit sem ég vildi og fékk töfluna merkta félaginu.“ Snævar myndi vilja sjá litaðar tússtöflur í skólastofum. „Töflurnar vinna með lesblindum. Þær vinna hins vegar ekki gegn öðrum nemendum. Ég tek stundum dæmi af því að lyftur eru settar í hús svo fólk í hjólastólum komist á milli hæða. Þær nýtast hins vegar mörgum ófötluðum líka.“ Hægt er að fá töflurnar línustrikaðar og með ýmiss konar bakgrunni eftir því hvaða tilgangi þær eiga að þjóna. Til dæmis með skýjum – með vísun í máltækið skrifað í skýin. Um er að ræða íslenska framleiðslu. Nánar á proarc.is.
Mest lesið Berrössuð hjón og endurtekið efni Gagnrýni Óskar Hrafn og Laufey selja á Nesveginum Lífið Píanóleikari selur huggulega íbúð á Ásvallagötu Lífið „Þannig þú ert ekki bara dóni heldur líka lygari“ Lífið „Ég vel þig núna, alltaf og ennþá“ Lífið Stigu trylltan dans á Saint Pete Lífið Taskmaster Ísland snýr aftur Lífið Tryggðu þér nýtt rafhjól fyrir 2027 á hagstæðari kjörum Lífið samstarf Stelpurnar snúa aftur Bíó og sjónvarp Ugla yfirgefur borgina Lífið Fleiri fréttir Ugla yfirgefur borgina Stigu trylltan dans á Saint Pete „Þannig þú ert ekki bara dóni heldur líka lygari“ Taskmaster Ísland snýr aftur Óskar Hrafn og Laufey selja á Nesveginum Píanóleikari selur huggulega íbúð á Ásvallagötu Bassi mætti með granítharðar geirvörtur Ekkert offors hjá Fors „Ég vel þig núna, alltaf og ennþá“ „Ég mun sakna þín, sonur“ Bombur á Barokki á klúbbnum Tjaldaði á umferðareyju eftir að hafa tapað í fantasy RJ Mitte er látinn Legally Blonde-stjarna handtekin sökuð um að hafa bitið flugfreyju Hvað veistu um... árið 1986? Össur stendur með sundmönnunum Umdeild sjálfsvíg frægustu hryðjuverkamanna Þýskalands Inga Lind selur rauða einbýlishúsið Ísland Bandaríkjanna komið í kennslubækur Stjörnulífið: Ástin blómstrar hjá Rakel, Evu og Birnu Lifði árum saman með ótta sem enginn skildi Er eðlilegt að langa í kynlíf eftir makamissi? Eftirminnilegir gullmolar úr fjörutíu ára sögu Leiðinleg frekja segist hvorki leiðinleg né frek Sendum Möggu Stínu í Eurovision Aðdáendur ítrekað farið yfir mörk Krakkatía vikunnar: Vatn, Hefnendurnir og fyndin dýr Aníta Briem og Hafþór ólétt á ný Vala mótmælti gömlum venjum í upphafi Segir soninn þann sem bundinn var á höndum og fótum Sjá meira