Skortur á hágæðaull þrátt fyrir ríkisstyrk Ingibjörg Bára Sveinsdóttir skrifar 17. janúar 2014 12:00 Guðjón Kristinsson, framkvæmdastjóri Ístex, segir ekki um annað að ræða en að flytja inn erlenda ull og blanda við þá íslensku fáist ekki nóg af fyrsta flokks ull. Fréttablaðið/GVA „
Magnið af fyrsta flokks ull sem bændur skila hefur minnkað frá ári til árs. Ég sé fram á hráefnisskort á næsta ári ef fram fer sem horfir en við náum endum saman núna.“ Þetta segir Guðjón Kristinsson, framkvæmdastjóri Ístex. Hann segir muninn á verðinu sem bændur fá frá ríkinu fyrir fyrsta flokks og annars flokks ull lítinn. „Munurinn er ef til vill ekki nógu mikill. Þeir fá 558 krónur fyrir kíló af fyrsta flokks ull í ríkisstuðning en 489 krónur fyrir kíló af annars flokks ull. Að mínu mati er greiðslum frá ríkinu ekki beint nægilega á bestu ullina og mögulega er hvatinn til þess að flokka hana ekki nægur.“ Verði skortur innanlands er ekki um annað að ræða en að flytja inn erlenda ull og blanda við þá íslensku, að því er Guðjón greinir frá. Ullin sem ekki er hægt að nýta í lopaframleiðslu innanlands er seld til Bretlands, Danmerkur og Þýskalands eða þangað þar sem besta verðið fæst. „Þar er hún fyrst og fremst nýtt í framleiðslu á gólfteppum en markaðsverðið á svona mengaðri ull er mjög lágt.“Sigurður Eyþórsson.Sigurður Eyþórsson, framkvæmdastjóri Landssamtaka sauðfjárbænda, segir það spurningu hvort menn vilji auka muninn á greiðslunum samkvæmt sauðfjársamningnum enn meira og markaðsverðinu sjálfu. „Það er allavega hvati en stundum ræðst ekki við þetta út af náttúrulegum aðstæðum. Það kemur fyrir að taka þurfi fé á hús með skömmum fyrirvara og ekki er alltaf hægt að rýja strax. Ef það er ekki gert er ullin fljót að spillast.“ Að sögn Sigurðar var gert átak fyrir tveimur árum til þess að menn sinntu betur ullargæðum. „Við héldum námskeið í ullarmati út um allt land. Það bar nokkurn árangur en það er engin patentlausn til.“ Ullarmagnið sem kom til Ístex í fyrra nam 765 tonnum. 370 tonn voru unnin hjá Ístex. 395 tonn voru flutt úr landi.
Mest lesið Líst ekki á breytingar Ingu á útivistartíma barna að vetri Innlent Ekki 270 ferkílómetrar heldur 26 Erlent „Það er að verða til kynslóðaójöfnuður“ Innlent Ætluðu að vinna skemmdarverk í Danmörku Erlent Minnist dóttur sinnar sem lést á Íslandi Innlent Fái að ráðast í húsleit og spyrja svo Innlent Eldur í þaki Rimaskóla í nótt Innlent NATO og ESB ætli að bregðast við auknu gáleysi Rússa Erlent Stúlkan frá Írlandi en búsett hér á landi Innlent Vonast til að geta haldið árásum í lágmarki fram yfir kosningar Erlent Fleiri fréttir Minnist dóttur sinnar sem lést á Íslandi Áfram stelpur verða að félagasamtökum: Margir gerendur um hvern og einn þolanda „Það er að verða til kynslóðaójöfnuður“ Víðáttumikil lægð fyrir sunnan land Líst ekki á breytingar Ingu á útivistartíma barna að vetri Eldur í þaki Rimaskóla í nótt Þjófnaður í þremur verslunum Fái að ráðast í húsleit og spyrja svo Bændum brugðið og skoði frekari öryggisbúnað Segir skattahækkun á baðlón bíta fastast á landsbyggðinni Rúmur helmingur flugmannanna hafi sofnað við störf Svona voru aðstæður við svínabú Stjörnugríss Stytta gjaldskyldu og opna bílahús allan sólarhringinn Sonur þingmannsins í áframhaldandi gæsluvarðhald Rúvarar verði einir eftir í Efstaleitinu Stefnan tengist ekki þjóðaratkvæðagreiðslu Talsvert tjón og týndar tennur Eigendur Santé neita sök Samfélagið syrgir ungmennin sem létust Sex svín drápust eftir annað innbrot „Þetta er smjörklípa“ Minningarstundir og ESA undirbýr dómsmál Stúlkan frá Írlandi en búsett hér á landi Skoða að stefna Íslandi vegna bókunar 35 Aðild að ESB hafi aldrei verið markmið í sjálfu sér Einn grunaður um íkveikju á Center Hotel Skjaldbreið Bruninn mikið áfall og tjónið líklega verulegt í versluninni Um þriðjungur þjóðarinnar horfði á síðasta fréttatímann Flúði hótelherbergið vegna brunans og gleymdi tönnunum Vinnuframlag Skúla Tómasar afþakkað Sjá meira