Lag að leggja í endurskoðun á búvörukerfinu Þorgils Jónsson skrifar 17. janúar 2014 07:00 Guðlaugur Þór Þórðarson útilokar ekki að leggja fram frumvörp til breytinga á búvörukerfinu og er bjartsýnn á að þar sé hægt að taka skref fram á við. Fréttablaðið/Stefán
Nú er lag, í ljósi breyttra viðhorfa, að endurskoða búvörukerfið. Þetta segir Guðlaugur Þór Þórðarson, þingmaður Sjálfstæðisflokksins, sem opnaði á þingi í gær á umræðu um málaflokkinn. Guðlaugur innti landbúnaðarráðherra þar svara við sex spurningum, meðal annars um upprunamerkingar landbúnaðarvara, úthlutun tollkvóta til innflutnings á landbúnaðarvöru og ekki síst stöðu samkeppnismála þar sem hluti mjólkuriðnaðar sé meðal annars undanþeginn samkeppnislögum. Í samtali við Fréttablaðið sagðist Guðlaugur vilja horfa til allra þátta samkeppnissjónarmiða.Guðlaugur Þór Guðlaugsson„Því hefur verið haldið fram, með réttu eða röngu, að verslunarkeðjur og framleiðendur séu að halda öðrum frá samkeppni, en það þarf að skoða þessa hluti vel, vegna þess að það er afar mikilvægt að stíga ekki á vaxtarbrodda á þessu sviði frekar en öðrum. Þar má til dæmis nefna Beint frá býli og fleira, en í framkvæmd er slíkt besta byggðastefnan.“Sigurður Ingi Jóhannsson landbúnaðarráðherra svaraði spurningum Guðlaugs meðal annars þannig til, að vinna við innleiðingu reglugerðar um upprunamerkingar stæði nú yfir. Hún taki gildi í desember næstkomandi. Hann ætli þó ekki að breyta úthlutun tollkvóta. Ekki hafi verið rætt um meiri sveigjanleika til frekari innflutnings á hvítu kjöti en það geti breyst í samningaviðræðum við ESB. Varðandi samkeppnissjónarmið í mjólkuriðnaði sagði Sigurður að slíkt gæti komið til tals við boðaða heildarendurskoðun á búvörusamningum. „En það er rétt að benda á að fyrirkomulagið hefur skilað mikilli hagræðingu sem skilar sér til neytenda og bænda.“ Í umræðunum var talað fyrir bættum upprunamerkingum og góðri samkeppnisstöðu íslenskra búvara, þar séu mörg sóknarfæri. Margir töluðu fyrir frjálsari innflutningi, meðal annars á hvítu kjöti, svínakjöti og kjúklingi. „Við verðum að standa vörð um hefðbundinn landbúnað, en varðstaða um hvítt kjöt er varðstaða um iðnaðarfyrirtæki, en ekki íslenskar fjölskyldur,“ sagði Helgi Hjörvar, þingmaður Samfylkingar. Guðlaugur segist bjartsýnn á framhald málsins: „Nú er lag og tækifæri sem við höfum ekki haft lengi. Ef umræðan verður áfram með sama hætti er enginn vafi á að við eigum að geta stigið skref til hagsbóta bæði fyrir neytendur og bændur.“
Mest lesið Bein útsending: Marco Rubio heimsækir Ísland Innlent Skora á borgina að bæta ekki við beygjuvasa Innlent Rubio: Ísland í miðjunni Innlent Verði að gera fyrirvara við rannsókn um karlmennsku Innlent Bjarni segir ekkert hæft í að verið sé að úthýsa Aþenu Innlent Umdeildur metsöluhöfundur látinn Erlent Portúgalsfarinn á bak við lás og slá Innlent Þurfa að hætta við mótorakaup fáist ekki fé frá ríkinu Innlent Bíði og bíði eftir Bjarna Innlent Afgerandi niðurstaða um að slíta kjarasamningum Innlent Fleiri fréttir Óþolinmæði að fylla Læknavaktina Ekkert leyndarmál að herinn sé önnum kafinn Greinir skýran vilja til meira samstarfs Leggja fram þingmál um að draga umsóknina til baka Engar leyniskyttur gættu Rubio Hafnar sælgætis- og fæðingarorlofsmálum sem rökum fyrir bókun 35 Bíði og bíði eftir Bjarna Leita manna sem grunaðir eru um hópárás Hafi þegar tryggt fjármögnun varamótoranna Guðmundur Fertram og Fanney opna nýsköpunarsetur Segir gjald fyrir túlkun eftir þrjú ár sanngjarna kröfu „Viljum ekki að það sé verið að leika sér að fullveldi Íslands“ Ný skýrsla Umhverfis- og orkustofnunar: Hverfandi líkur á að olía finnist á Drekasvæðinu Rubio farinn af landi brott Verði að gera fyrirvara við rannsókn um karlmennsku Leit að eftirmanni Harðar hefði hafist í haust eða vetur Bjarni segir ekkert hæft í að verið sé að úthýsa Aþenu Samtalið efnismeira en áður þó talsverð gjá sé á milli Einn í framboði til varaformanns enn sem komið er Ögurstund í kjaramálum og Marco Rubio í heimsókn Skora á borgina að bæta ekki við beygjuvasa Rubio: Ísland í miðjunni Þurfa að hætta við mótorakaup fáist ekki fé frá ríkinu Bein útsending: Marco Rubio heimsækir Ísland Tvær líkamsárásir á borði lögreglu Brotist inn í fjóra bíla í þremur hverfum Afgerandi niðurstaða um að slíta kjarasamningum Auglýsingatekjur Rúv undir fyrirhuguðu þaki þrjú ár í röð Fengu heimild til þess að segja upp kjarasamningum Öflugur jarðskjálfti í Bárðarbungu Sjá meira