Sigmundur Davíð heiðursgestur á herrakvöldi Jakob Bjarnar skrifar 17. janúar 2014 15:42 Sigmundur Davíð verður í góðum félagsskap í kvöld, í herlegri veislu þar sem meðal annars verða málverk boðin upp. Víðir páll þorgrímsson
Lionsklúbburinn Njörður er einhver öflugasti klúbbur landsins og þó víðar sé leita. „Þú mátt fullyrða það að þetta er flottasti klúbbur landsins,“ segir Sigurður Sumarliðason ritari og glaðbeittur. Hann segir að herrakvöld klúbbsins séu rómuð, þau hafa verið haldin árlega allt frá árinu 1961. „Og fljótlega, nánast strax, komst á sá siður að halda málverkauppboð. Og það telst vera elsta málverkauppboð landsins,“ segir Sigurður; sú hefð hefur jafnframt myndast að glæsilegar og léttklæddar meyjar sýna gestum myndirnar. Og verkin sem boðin eru upp eru eftir ýmsa af fremstu myndlistarmönnum þjóðarinnar: Tolla Sigurð Örlygsson, Pétur Gaut, Gunnellu, Húbert Nóa, Sossu og fleiri og fleiri. Sá hagnaður sem myndast fer allur í að safna fyrir nýjum endurhæfingartækjum sem sárlega vantar á Grensáss. Veislan er í Súlnasalnum, verð aðgöngumiða er 16 þúsund og í glæsilegum bæklingi þar sem kvöldið er kynnt gefa menn ekkert eftir: „Herrakvöld Njarðar hefur fyrir löngu skipað sér sess sem stórkostleg veisla og skemmtun í upphafi árs, sem um 200 manns sækja að jafnaði.“ Jafnframt kemur fram að veislustjórar eru þeir Ari Edwald forstjóri og Helgi Jóhannesson lögfræðingur. „Þeir voru báðir í klúbbnum á árum áður,“ segir Sigurður og kynnir til sögunnar ræðumann kvöldsins sem er Sindri Sigurgeirsson formaður Bændasamtakanna. Sigurður segir að ekki sé ætlast til þess að Sigmundur Davíð taki til máls, en á Sigurði er þó að heyra að hann reikni frekar með því að forsætisráðherra ávarpi samkunduna.
Mest lesið Lífið umturnaðist í kjölfar slyssins Innlent Banaslys í Skorradalsvatni Innlent Nafn mannsins sem lést í fallhlífastökki í Danmörku Innlent Urðu eftir í Flatey á meðan Baldur sigldi suður Innlent Sendi ekki reikning og fær því ekki greitt Innlent „Dapurlegt pólitískt útspil“ Innlent Höfðinginn átti sig ekki á lokuninni Innlent Tjáir sig ekki um greiðslur frá Rúv en boðar yfirlýsingu Innlent Þetta sé bæjarstjórn Kópavogs til skammar Innlent Safna í sérstakt sjóherlið á Norðurslóðum Erlent Fleiri fréttir Fjöldi viðbragðsbíla kom á vettvang falsboðs Meirihlutinn fallinn og VG á þingi Farfuglar koma marktækt fyrr til landsins en áður „Dapurlegt pólitískt útspil“ Höfðinginn átti sig ekki á lokuninni Myndaveisla: Verkalýðsdagurinn haldinn hátíðlegur Sinueldur í Grafarvogi Þetta sé bæjarstjórn Kópavogs til skammar Framboðum Miðflokksins fjölgar um átta milli kosninga Lífið umturnaðist í kjölfar slyssins Bein útsending: Verkalýðsdagurinn haldinn hátíðlegur Sendi ekki reikning og fær því ekki greitt Langhæsti styrkurinn fer til Eyja Vasaþjófnaður aukist að undanförnu „Bjóða fram“ Biðlistann í Reykjavík Ofurölvi reyndi að opna bíla í akstri „Við erum með lengri óskalista heldur en þetta“ Segist ekkert hafa fengið greitt: „Pólitískur hráskinnaleikur“ „Þetta er bara eins og að missa vini sína“ Andar köldu milli Viðreisnar- og Miðflokksmanna Föst í umferð í tæpa fjóra sólarhringa á ári og kostnaðurinn yfir hundrað milljarðar Banaslys í Skorradalsvatni Glæný könnun gæti varpað ljósi á meirihlutamyndun Hlaðvarpsstjórnendur fá nýjar leiðbeiningar Urðu eftir í Flatey á meðan Baldur sigldi suður Halla fagnaði áttræðum Karli Gústafi Sömdu um stækkun á Fylkisseli Kannast ekki við meint rán í Lágafellskirkju Ákærður fyrir að eitra fyrir samstarfsfélaga með kannabis Tjáir sig ekki um greiðslur frá Rúv en boðar yfirlýsingu Sjá meira