SPRON-liðar lýstu yfir sakleysi Sunna Karen Sigurþórsdóttir skrifar 13. október 2014 14:43 Ari Bergmann og Guðmundur Örn Hauksson ásamt verjendum sínum við þingfestingu málsins í dag. vísir/vilhelm
Þingfesting í máli sérstaks saksóknara á hendur fyrrverandi forstjóra SPRON og fjórum stjórnarmönnum SPRON fór fram í Héraðsdómi Reykjavíkur í dag. Guðmundur Örn Hauksson, fyrrverandi forstjóri SPRON og stjórnarmennirnir Margrét Guðmundsdóttir og Ari Bergmann Einarsson lýstu yfir sakleysi sínu en Rannveig Rist og Jóhann Ásgeir Baldurs mættu ekki við þingfestingu málsins en koma þau til með að lýsa afstöðu sinni 29. október næstkomandi. Þeim er gefið að sök að hafa misnotað aðstöðu sína hjá sparisjóðnum og stefnt fé hans í verulega hættu með því að fara út fyrir heimildir til lánveitinga. Í ákærunni segir að brot þeirra sé stórfellt en málið snýr að tveggja milljarða lánveitingu sparisjóðsins til Exista skömmu fyrir hrun, eða 30. september 2008. Brot þeirra er jafnframt sagt óvenjulegt í ákærunni að því leiti að lánið var það eina sem samþykkt var á árunum 2007-2008. Lánið var framlengt fjórum sinnum og var síðasti gjalddagi þess 16.mars 2009. Það var ekki greitt til baka og í ákærunni segir að það verði að telja það sparisjóðnum að fullu eða að verulegu leyti glatað. Í ákærunni segir jafnframt að full ástæða hafi verið fyrir meðlimi stjórnarinnar að fara varlega við ákvörðun sína og og fara eftir öllum reglum vegna slíkra lánveitinga, ekki síst í ljósi þeirrar stöðu sem upp var komin á fjármálamörkuðum á þessum tíma. Því hafi hins vegar farið fjarri að ákærðu færu eftir þeim varúðarreglum sem þeim bar skylda til í störfum sínum. Þvert á móti hafi lánið verið veitt án nokkurra trygginga og ekki farið fram mat á stöðu Existu og greiðslugetu. Í ljósi þess sé óhjákvæmilegt að líta svo á að brot ákærðu hafi verið stórfelld.
Tengdar fréttir N1 skoðar ákæru á hendur Margréti Ein ákærðu í SPRON-málinu er Margrét Guðmundsdóttir stjórnarformaður N1. 6. október 2014 14:56 Lánið til Exista mjög óvenjulegt Tveggja milljarða lán það eina sem veitt var á árunum 2007-2008. 9. október 2014 16:39 Rannveig Rist ákærð af sérstökum Svikin varða tveggja milljarða króna lánveitingu til Exista aðeins nokkrum dögum fyrir hrun. 5. október 2014 23:39 Rannveig áfram í forstjórastólnum Rannveig Rist, sem hefur verið ákærð af sérstökum saksóknara fyrir umboðssvik, verður áfram forstjóri Rio Tinto Alcan á Íslandi. 6. október 2014 13:51 Verður áfram í stjórn N1 Stjórn N1 hf. hefur yfirfarið hæfi Margrétar Guðmundsdóttur stjórnarformanns félagsins með tilliti til útgáfu ákæru embættis sérstaks saksóknara á hendur henni. 8. október 2014 11:39 Tveir af hinum ákærðu sitja í stjórnum skráðra félaga Kauphöll Íslands leggur mikla áherslu á að stjórnarmenn í félögum sem skráð eru á hlutabréfamarkað eigi ekki feril að baki sem geti lagt orðspor viðkomandi félags í hættu eða dregið úr trausti á markaðnum. 7. október 2014 10:15 Mest lesið Samherji gæti tvöfaldast Viðskipti innlent Hámark tvær vikur í heilsutengd áramótaheit með eiginkonunni Atvinnulíf Húðflúrari fór frá hálfkláruðum fugli á hálsi Neytendur Range Rover Sport er lúxusjeppi sem tekið er eftir Samstarf Gert að afhenda búslóðina eftir að hafa haldið henni í gíslingu Neytendur Bandaríkjamenn banna innflutning dróna Viðskipti erlent Komst ekki á toppinn og bótakröfunni hafnað Neytendur Fær íshellaferð ekki endurgreidda Neytendur Ný tækni, ný kynslóð, ný viðhorf: Yngsti sölumaðurinn eins árs Atvinnulíf Flogin frá Icelandair til Nova Viðskipti innlent Fleiri fréttir Samherji gæti tvöfaldast Bíóstólarnir í Álfabakka til sölu Bærinn bótaskyldur og þarf að bjóða líkamsræktarstöð út aftur Flogin frá Icelandair til Nova Virðist ekki vera hægt á Íslandi Minni líkur á vaxtalækkun: „Þeim verður vandi á höndum, seðlabankafólkinu“ Skattleysismörk barna yngri en 16 ára hækka Frosti og Arnþrúður fá styrki Verðbólga eykst verulega Hefja sölu á fyrstu hliðstæðu við Simponi í heiminum Stefán útvarpsstjóri gáttaður á Stefáni útvarpsstjóra Framkvæmdastjóri Lyfjavals hættur Eyða óvissu á lánamarkaði strax á mánudag Ljúka kaupum á Hreinsitækni og HRT þjónustu Gréta María um starfslokin: „Ég geng stolt frá borði“ Síminn fær heimild til að reka áfram 2G og 3G þjónustu Breyta nafni Ölgerðarinnar Jón Ingi nýr forstjóri PwC Tekur við sem hagfræðingur Viðskiptaráðs Gréta María óvænt hætt hjá Prís Ráðinn nýr fjármála- og rekstrarstjóri Lyfja og heilsu Þrír eða færri skoða eign í fyrstu viku á sölu Byrjunarverð hjá NiceAir tæplega sextíu þúsund krónur Leigan rukkuð mánaðarlega en ekki í lokin Frá Logos til Samtaka fyrirtækja í sjávarútvegi Alcoa stefnir Eimskip að nýju í samráðsmáli Aron Kristinn stofnar goðsagnakennt fyrirtæki Vill verða stjórnarformaður Íslandsbanka: „Hvaða sirkus er þetta?“ Geta þurft að greiða hátt verð fyrir póstsendar gjafir Segja ráðherra fórna íslenskum hagsmunum í makrílsamningi Sjá meira
N1 skoðar ákæru á hendur Margréti Ein ákærðu í SPRON-málinu er Margrét Guðmundsdóttir stjórnarformaður N1. 6. október 2014 14:56
Lánið til Exista mjög óvenjulegt Tveggja milljarða lán það eina sem veitt var á árunum 2007-2008. 9. október 2014 16:39
Rannveig Rist ákærð af sérstökum Svikin varða tveggja milljarða króna lánveitingu til Exista aðeins nokkrum dögum fyrir hrun. 5. október 2014 23:39
Rannveig áfram í forstjórastólnum Rannveig Rist, sem hefur verið ákærð af sérstökum saksóknara fyrir umboðssvik, verður áfram forstjóri Rio Tinto Alcan á Íslandi. 6. október 2014 13:51
Verður áfram í stjórn N1 Stjórn N1 hf. hefur yfirfarið hæfi Margrétar Guðmundsdóttur stjórnarformanns félagsins með tilliti til útgáfu ákæru embættis sérstaks saksóknara á hendur henni. 8. október 2014 11:39
Tveir af hinum ákærðu sitja í stjórnum skráðra félaga Kauphöll Íslands leggur mikla áherslu á að stjórnarmenn í félögum sem skráð eru á hlutabréfamarkað eigi ekki feril að baki sem geti lagt orðspor viðkomandi félags í hættu eða dregið úr trausti á markaðnum. 7. október 2014 10:15