Tæpur helmingur nemenda Fellaskóla nær ekki grunnstigi Bjarki Ármannsson skrifar 27. júní 2014 11:57 Hæsta hlutfall nemenda undir fyrsta þrepi í stærðfræðihæfni í Reykjavík er í Fellaskóla. Vísir/Stefán
Tæplega helmingur nemenda Fellaskóla í Breiðholti getur aðeins leyst mjög einföld stærðfræðidæmi, að því er fram kemur í niðurstöðum PISA-rannsóknarinnar sem Reykjavíkurborg birti í dag. Samkvæmt samantekt á stærðfræðihæfni nemenda í Reykjavík náðu um 45 prósent nemenda Fellaskóla ekki fyrsta þrepi af sex. Þetta er hæsta hlutfall nemenda undir fyrsta þrepi í Reykjavík en næst á eftir fylgir Klébergsskóli á Kjalarnesi með 37 prósent. Enginn skóli er með hærra hlutfall nemenda á efsta þrepi en Húsaskóli í Grafarvogi, þar sem um átta prósent náðu þrepi sex. Sjö prósent nemenda náðu því í Háteigsskóla og Foldaskóla. Samkvæmt skilgreiningu Námsgagnastofnunar geta nemendur undir þrepi eitt „mögulega leyst mjög einföld stærðfræðiverkefni, eins og að lesa einfalt gildi út úr skýringarmynd sem er skýrt merkt eða töflu þar sem merkingar samsvara orðum í kynningartextanum og spurningunni ... einnig geta þeir leyst stærðfræðidæmi með heilum tölum með því að fylgja skýrum og greinilegum leiðbeiningum.“
Mest lesið Tilkynntur til barnaverndar eftir að hann deildi mynd af syni sínum með byssu Innlent Gistiheimili Sverris í Grímsnesi innsigluð Innlent Fleiri þingmenn segja nei en já og aðrir vilja ekki svara Innlent Rýnt í stöðuna í Úkraínu: Rekinn vegna viðvörunar um „samfélagskrísu“ í Rússlandi Erlent Eldur kviknaði við Stálhellu Innlent Bílasali gerður að prinsi eftir faðernispróf Erlent Ný meðferð gegn sortuæxlum lofar góðu Erlent Hver er „mennski prentari“ Trumps? „Þú ert það eina sem skiptir mig máli“ Erlent Fór úr landi af ótta um öryggi dóttur sinnar Innlent Ísraelsher viðurkennir að hafa skotið fimm ára stúlku Erlent Fleiri fréttir Ákærði hafði afskipti af vitnisburði í gegnum fjarfundarbúnað Fór úr landi af ótta um öryggi dóttur sinnar Kjartan Hreinn aftur aðstoðarmaður Ölmu Tekjulágir borga minna fyrir matinn og borgarfulltrúar meira Hvað ætti ungt fólk að kjósa 29. ágúst? Skóli hefst á ný í Grindavík og þingmenn efast um fullyrðingar Rússa Ókeypis strætó-skutlur á Menningarnótt og tæming frá Sólfarinu Gistiheimili Sverris í Grímsnesi innsigluð Tilkynntur til barnaverndar eftir að hann deildi mynd af syni sínum með byssu Ráðast í byltingarkenndar endurbætur í Kvosinni „Tengsl Íslands og Eistlands eiga sér sérstaka sögu“ Fleiri þingmenn segja nei en já og aðrir vilja ekki svara Eldur kviknaði við Stálhellu Vaxtahækkunin geti gert illt verra Þessi voru tekjuhæsta sveitarstjórnarfólkið í fyrra Settu saman fyrsta íslenska fjölerfðamengið Sammála því að erfitt haust sé í vændum Aðstoða grunnskólabörn Reykjavíkur við heimanám Betur fór en á horfðist þegar flutningabíll valt „Við höfum ekki náð þeim árangri sem við hefðum viljað“ Samþykkti samninginn: „Lágmark að láta fjármagn fylgja“ Með nefið í flugbrautinni eftir harkalega lendingu Fjármálaráðherra og vinnumarkaðurinn bregðast við vaxtahækkun SVÞ og netáfengisverslanir skora á Alþingi Lýsir áfalli vegna vinnubragða gamla meirihlutans Gæsluvarðhald framlengt yfir meintum Kársnesmorðingjum Ránfugl gæddi sér á smáfugli í Vesturbænum Gæti séð fyrir sér að kjarasamningar haldi Hafi byrlað tólf ára fósturdóttur og nauðgað ítrekað Vilja banna frjáls ferðalög ísraelskra ferðamanna á Íslandi Sjá meira