Hreinleikinn er staðreynd – ekki goðsögn Sigurborg Daðadóttir skrifar 20. mars 2014 07:00 Í leiðara Fréttablaðsins 11. mars sl. „Hreinleikinn reynist goðsögn“ er fjallað um niðurstöðu úttektar Eftirlitsstofnunar EFTA (ESA) á opinberu eftirliti með alifuglasláturhúsum og -afurðastöðvum. Það sem fram kemur í leiðaranum er rétt varðandi úttektina en því miður dregur leiðarahöfundur ranga ályktun í lok leiðarans þegar hann skrifar „Skýrsla ESA er hins vegar enn ein staðfesting þess að hreinleiki íslenzka ofurkjúklingsins er bara goðsögn“. Hér að neðan eru færð rök fyrir því að þessi fullyrðing er röng. Ísland hefur tekið upp matvælalöggjöf ESB og því gilda sömu reglur hér og í ESB um sláturhús og afurðastöðvar. ESA kemur fimm til sex sinnum á ári til Íslands og kannar hvort opinberir aðilar framfylgi matvælareglum ESB. Úttektirnar koma misvel út og ætíð er brugðist við athugasemdum ESA og hefur Matvælastofnun þegar lagt fram aðgerðaráætlun þar um. Almenn regla við innleiðingar ESB-reglugerða er að landið getur nýtt sér að setja eða viðhalda strangari reglum en ESB-reglurnar kveða á um og það gerði Ísland þegar matvælalöggjöfin var innleidd að fullu 1. nóvember 2011. Varðandi framleiðslu alifuglaafurða gilda hér á landi strangari reglur um salmonellu og kampýlóbakter og stuðla þær að öruggari alifuglaafurðum á markaði en tíðkast hjá ESB. Þessar séríslensku reglur færa vöktun og varnir vegna súnusjúkdóma (sjúkdómar sem berast milli dýra og manna) framar í framleiðslukeðjuna, þ.e. betur er fylgst með uppeldi kjúklinganna á búunum og harðari viðbrögð eru við uppkomu smits en reglur ESB gera ráð fyrir. Af þessari ástæðu var minni áhersla lögð á heilbrigðisskoðun kjúklinga hér á landi síðar í framleiðslukeðjunni (alifuglasláturhúsum og –afurðastöðvum), því tekið hefur verið á málum varðandi matvælaöryggi framar í keðjunni. Þetta skýrir flestar athugasemdir sem ESA gerði í sinni úttekt, en afsakar þær ekki. Hér fyrir neðan er gerð grein fyrir hvers vegna það er staðreynd, að íslenskur kjúklingur er öruggari matvara en ESB framleiddur kúklingur, en ekki bara goðsögn.Kampýlóbakter Hjá ESB gilda engar reglur um kampýlóbakter í kjúklingum sem þó er algengasta orsök iðrasýkinga í fólki í Evrópu, en vitað er að smitaðir kjúklingar eru helsta orsök sýkinga. Á Íslandi eru mjög strangar reglur um kampýlóbakter og sýkingar í fólki hér á landi eru fátíðar. Kampýlóbakter í íslenskum kjúklingum hefur verið vel undir 5% undanfarin ár en er yfirleitt 30–50% og allt upp í 80% í kjúklingum á markaði í Evrópu. Áður en íslensku reglurnar voru settar var íslenskur kjúklingur álíka smitaður og ESB-kjúklingur og mikill fjöldi fólks sýktist, minni í því sambandi á faraldurinn 1999. Íslensku reglurnar eru einfaldar, allir eldishópar kjúklinga eru rannsakaðir fyrir slátrun, ef hópur reynist smitaður af kampýlóbakter þá verður að frysta allar afurðir þess hóps því frysting fækkar bakteríunni um 90%. Íslendingar vilja hins vegar kaupa ófrysta kjúklinga, því gera alifuglabændur allt sem þeir geta til að framleiða kampýlóbakterfría kjúklinga. Það er erfitt verk. Alifuglabændum hefur tekist svo vel upp að Ísland er fyrirmynd annarra Evrópuþjóða. Leitað er í íslenska smiðju um hvernig í ósköpunum við höfum farið að þessu, okkur er boðið til annarra landa til að kynna íslensku „frystiregluna“ sem skilað hefur svo miklum árangri í að fækka sýkingum í fólki.Salmonella Hjá ESB gilda viðamiklar reglur um salmonellu, í Skandinavíu gilda enn strangari reglur og hér á landi eru reglurnar strangastar hvað varðar kjúklinga. Ísland fylgir sömu sýnatökuáætlunum og ESB-reglur segja til um, en mismunurinn liggur í viðbrögðum við niðurstöðum rannsóknanna. Yfir tvö þúsund tegundir eru þekktar af salmonellu, sumar hættulegri en aðrar. ESB-reglurnar fyrirskipa viðbrögð við aðeins tveimur tegundum í kjúklingum (S. typimurium og S. enteritidis), en þær eru taldar valda um 70% salmonellusýkinga í fólki. Finnist þessar tegundir í ESB-sláturhúsi eða afurðastöð þá ber að leita skýringa, þrífa og sótthreinsa, en finnist þær í kjúklingum á markaði ber að innkalla (nýlega tekið gildi). Hér á landi er hins vegar brugðist við öllum tegundum salmonellu (ekki bara tveimur) og brugðist hart við á öllum stigum framleiðslunnar. Finnist salmonella í eldishópi hér á landi er óheimilt að senda hann til slátrunar og öllum fuglum í hópnum er fargað og allt urðað. Finnist salmonella í sýnum teknum í sláturhúsi hérlendis eru afurðir hópsins innkallaðar og það sama gildir ef salmonella finnst á markaði. Svipaðar reglur eru í skandinavísku löndunum en ekkert þeirra bannar þó slátrun salmonellusmitaðra hópa eins og tíðkast hér. Það er rétt að aukning hefur orðið á salmonellu í alifuglum undanfarin ár, en íslensku reglurnar koma að mestu í veg fyrir að hóparnir komist alla leið á markað, en aldrei er hægt að koma algerlega í veg fyrir það. Með vísan til þess sem að ofan greinir þá er hreinleiki íslenska kjúklingsins engin goðsögn, það er einfaldlega staðreynd sem Íslendingar ættu að standa vörð um. Að framleiða örugg matvæli sparar þjóðarbúinu kostnað sem til fellur vegna sýkinga í fólki, að ónefndum þjáningum sem fólk verður fyrir. Fyrir áhugasama er nánari upplýsingar að finna í ársskýrslum Matvælastofnunar og ársskýrslum EFSA um súnur (Matvælaöryggisstofnun Evrópu). Viltu birta grein á Vísi? Sendu okkur póst. Senda grein Mest lesið Halldór 12.07.25 Halldór Tjaldið fellt í leikhúsi fáránleikans Vésteinn Ólason Skoðun Áform um að eyðileggja Ísland! Jóna Imsland Skoðun Málþófs klúður Sægreifa-flokkanna Jón Þór Ólafsson Skoðun Sóvésk sápuópera Franklín Ernir Kristjánsson Skoðun Græna vöruhúsið setur svartan blett á íslenskt samfélag Davíð Aron Routley Skoðun Heilbrigðisreglugerð WHO: Hagsmunir eða heimska? Júlíus Valsson Skoðun Dæmt um efni, Hörður Árni Finnsson,Elvar Örn Friðriksson,Snæbjörn Guðmundsson Skoðun Flugnám - Annar hluti: Menntasjóður námsmanna og ECTS einingar Matthías Arngrímsson Skoðun Að koma út í lífið með verri forgjöf, hvernig tilfinning er það? Davíð Bergmann Skoðun Skoðun Skoðun Hvaða einkunn fékkst þú á bílprófinu? Grétar Birgisson skrifar Skoðun Að koma út í lífið með verri forgjöf, hvernig tilfinning er það? Davíð Bergmann skrifar Skoðun Tjaldið fellt í leikhúsi fáránleikans Vésteinn Ólason skrifar Skoðun Heilbrigðisreglugerð WHO: Hagsmunir eða heimska? Júlíus Valsson skrifar Skoðun Málþófs klúður Sægreifa-flokkanna Jón Þór Ólafsson skrifar Skoðun Græna vöruhúsið setur svartan blett á íslenskt samfélag Davíð Aron Routley skrifar Skoðun Dæmt um efni, Hörður Árni Finnsson,Elvar Örn Friðriksson,Snæbjörn Guðmundsson skrifar Skoðun Flugnám - Annar hluti: Menntasjóður námsmanna og ECTS einingar Matthías Arngrímsson skrifar Skoðun Sóvésk sápuópera Franklín Ernir Kristjánsson skrifar Skoðun Á hvaða vegferð er ríkisstjórn Kristrúnar Frostadóttur gagnvart sjávarútvegssveitarfélögunum? Anton Guðmundsson skrifar Skoðun Dæmir sig sjálft Jón Pétur Zimsen skrifar Skoðun Mega blaðamenn ljúga? Páll Steingrímsson skrifar Skoðun Ákall um nægjusemi í heimi neyslubrjálæðis Hólmfríður Jennýjar Árnadóttir skrifar Skoðun Hvað hefur áunnist á 140 dögum? Heiða Björg Hilmisdóttir,Dóra Björt Guðjónsdóttir,Sanna Magdalena Mörtudóttir,Helga Þórðardóttir,Líf Magneudóttir skrifar Skoðun Samstarf er lykill að framtíðinni Magnús Þór Jónsson skrifar Skoðun Kjarnorkuákvæði? Dagur B. Eggertsson skrifar Skoðun Hver erum við? Hvert stefnum við? Arnar Þór Jónsson skrifar Skoðun Í skugga virkjana, þegar náttúran fær ekki að tala: Hvammsvirkjun lamin í gegn með góðu og illu Gunnar Þór Jónsson,Svanborg R. Jónsdóttir skrifar Skoðun Fjármálalæsi í fríinu – fjárfesting sem endist lengur en sólbrúnkan! Íris Björk Hreinsdóttir skrifar Skoðun Hugtakið valdarán gengisfellt Hjörtur J. Guðmundsson skrifar Skoðun Ábyrgðin er þeirra Vilhjálmur Árnason skrifar Skoðun Dæmt um form, ekki efni Hörður Arnarson skrifar Skoðun Að þröngva lífsskoðun upp á annað fólk Sævar Þór Jónsson skrifar Skoðun Um fundarstjórn forseta Bryndís Haraldsdóttir skrifar Skoðun Hjálpartæki – fyrir hverja? Júlíana Magnúsdóttir skrifar Skoðun Flugnám - Fyrsti hluti: Menntasjóður námsmanna og ECTS einingar Matthías Arngrímsson skrifar Skoðun Áform um að eyðileggja Ísland! Jóna Imsland skrifar Skoðun Í 1.129 daga hefur Alþingi hunsað jaðarsettasta hóp samfélagsins Grímur Atlason skrifar Skoðun Tekur ný ríkisstjórn af skarið? Árni Einarsson skrifar Skoðun Strandveiðar í gíslingu – Alþingi sveltir sjávarbyggðir Árni Björn Kristbjörnsson skrifar Sjá meira
Skoðun Á hvaða vegferð er ríkisstjórn Kristrúnar Frostadóttur gagnvart sjávarútvegssveitarfélögunum? Anton Guðmundsson skrifar
Skoðun Hvað hefur áunnist á 140 dögum? Heiða Björg Hilmisdóttir,Dóra Björt Guðjónsdóttir,Sanna Magdalena Mörtudóttir,Helga Þórðardóttir,Líf Magneudóttir skrifar
Skoðun Í skugga virkjana, þegar náttúran fær ekki að tala: Hvammsvirkjun lamin í gegn með góðu og illu Gunnar Þór Jónsson,Svanborg R. Jónsdóttir skrifar
Skoðun Fjármálalæsi í fríinu – fjárfesting sem endist lengur en sólbrúnkan! Íris Björk Hreinsdóttir skrifar
Skoðun Flugnám - Fyrsti hluti: Menntasjóður námsmanna og ECTS einingar Matthías Arngrímsson skrifar