Segir höfund Rocky Horror föður sinn Adda Soffía Ingvarsdóttir skrifar 25. nóvember 2014 09:00 Margrét í hlutverki Riff Raff. mynd/einkasafn „
Mamma og vinkona hennar fóru til London í byrjun árs 1997 og þar hitti mamma Richard O'Brien, höfund Rocky Horror, en hann lék einmitt Riff Raff í myndinni,“ segir Margrét Vera Mánadóttir. Hún vill meina, samkvæmt því sem móðir hennar segir, að O'Brien sé faðir hennar.„Ég er búin að reyna að ná sambandi við hann en fæ engin svör. Mamma segir að það sé gagnslaust að reyna, en mig langar að reyna að ná sambandi við hann,“ segir hún. Fjölskylda hennar vissi strax að það þýddi lítið að reyna að hafa samband við hann. Hann hafi passað að skilja ekki eftir neina slóð eftir þessi skyndikynni. Þessa dagana er Margrét einmitt að æfa fyrir sýninguna Rocky Horror, sem leikfélag Menntaskóla Borgarfjarðar setur upp. Sýningar fara fram í húsakynnum skólans í Borgarnesi. Þar fer hún með hlutverk Riff Raff, sama hlutverk og meintur faðir hennar sló í gegn í fyrir fjörutíu árum.Richard O'Brien.vísir/getty„Ég var ekkert smá glöð að fá að vita að ég fengi þetta hlutverk,“ segir hún. Aðspurð hvort fólk haldi ekki bara að þetta sé uppspuni hjá henni, segir hún svo ekki vera þótt einhverjir trúi henni ekki. „Þetta er auðvitað mjög skrítið. Ég hef haldið þessu frekar leyndu, en eftir að ég var valin í hlutverkið þá fór þetta að spyrjast út,“ segir Margrét og bætir við að flestir taki vel í þetta. Margrét hefur alltaf haft gaman af því að leika og hefur verið að leika frá því hún var lítil. Henni finnst líklegt að leiklistarbakterían komi frá meintum föður hennar. „Afi var eitthvað að leika en annars enginn í fjölskyldunni nema ég. Mér finnst þetta svo ótrúlega skemmtilegt og draumurinn er að fara út að læra leiklist,“ segir Margrét og telur líklegt að London verði fyrir valinu. Hún segist ekki gera sér miklar vonir um að hitta „föður“ sinn nokkurn tímann en leyfir sér að dreyma um að hann komi að horfa á hana leika sama hlutverk og hann sló í gegn í. „Ef einhver þekkir til hans eða gæti hjálpað mér að komast í samband við hann þá væri ég mjög þakklát,“ segir Margrét. Þeir sem vilja berja meinta laundóttur O‘Brien augum, geta mætt á frumsýningu leikritsins næstkomandi föstudag.Uppfært: Saga Margrétar reyndist vera útsmogið grín af hálfu leikfélags Menntaskóla Borgarfjarðar. Richard O'Brien er ekki faðir Margrétar heldur Kristófer Máni Hraundal. Frásögn af kynnum O'Brien og móður Margrétar, Guðrúnar Smáradóttur, er heldur ekki rétt. Þá var O'Brien í upphaflegu fréttinni sagður samkynhneigður. Það hefur einnig verið leiðrétt.
Mest lesið Gylfi seldi sumarbústaðinn á 85 milljónir Lífið Sjóðheit hjúkka selur skvísuíbúð Lífið Þess vegna þurfa Íslendingar að leyfa þessum þjófum að halda áfram að stela Lífið Ólétt 52 ára Lífið Ugla yfirgefur borgina Lífið Sigga Beinteins í suðrænni sveiflu með kæró Lífið Stigu trylltan dans á Saint Pete Lífið Siggi Chaplin allur Lífið Berglind Alda og Auddi keppa í Taskmaster Lífið Berrössuð hjón og endurtekið efni Gagnrýni Fleiri fréttir Siggi Chaplin allur Sigga Beinteins í suðrænni sveiflu með kæró Berglind Alda og Auddi keppa í Taskmaster Patrekur og Binni tilheyra fimm minnihlutahópum Gylfi seldi sumarbústaðinn á 85 milljónir Ólétt 52 ára Sjóðheit hjúkka selur skvísuíbúð Þess vegna þurfa Íslendingar að leyfa þessum þjófum að halda áfram að stela Ugla yfirgefur borgina Stigu trylltan dans á Saint Pete „Þannig þú ert ekki bara dóni heldur líka lygari“ Taskmaster Ísland snýr aftur Óskar Hrafn og Laufey selja á Nesveginum Píanóleikari selur huggulega íbúð á Ásvallagötu Bassi mætti með granítharðar geirvörtur Ekkert offors hjá Fors „Ég vel þig núna, alltaf og ennþá“ „Ég mun sakna þín, sonur“ Bombur á Barokki á klúbbnum Tjaldaði á umferðareyju eftir að hafa tapað í fantasy RJ Mitte er látinn Legally Blonde-stjarna handtekin sökuð um að hafa bitið flugfreyju Hvað veistu um... árið 1986? Össur stendur með sundmönnunum Umdeild sjálfsvíg frægustu hryðjuverkamanna Þýskalands Inga Lind selur rauða einbýlishúsið Ísland Bandaríkjanna komið í kennslubækur Stjörnulífið: Ástin blómstrar hjá Rakel, Evu og Birnu Lifði árum saman með ótta sem enginn skildi Er eðlilegt að langa í kynlíf eftir makamissi? Sjá meira