Hópur hettuklæddra manna réðst á Benna Ólsara 11. desember 2014 15:43 Hér má sjá hversu illa útleikinn Benjamín var eftir árásina.
Ráðist var á Benjamín Þór Þorgrímsson, sem er einnig þekktur sem Benni Ólsari, fyrir utan Sporthúsið í gærkvöldið. Gilbert Sigurðsson, einnig þekktur sem Gilbert Soberman, birti mynd af Benjamín illa förnum í andlitinu. Gilbert segir þetta tengjast uppgjöri hans við Hilmar Leifsson. Hann segir að fimm hettuklæddir menn hafi ráðist á Benjamín og barið hann með kylfum. Gilbert og Hilmar hafa deilt undanfarna tíu mánuði eða svo. Neðst í fréttinni má sjá tvö myndbönd af slagsmálum á milli þeirra og manna sem þeim tengjast. Hið fyrra var tekið fyrir utan World Class í Laugardalnum og hið síðara á Café Milano. Benjamín segir að ástæðan að baki árásinn sé líklega sú að hann sé vinur Gilberts. Benjamín segist annars enga tengingu eiga að málinu. „Ég er bara að reyna halda vinnunni og er í dag einkaþjálfari í Sporthúsinu. Það er bara verið að reyna skemma fyrir mér. Ég er einn vinsælasti einkaþjálfarinn á Íslandi í dag og þegar vel gengur hjá manni á að reyna eyðileggja. Þeir þola bara ekki að ég sé edrú og að lifa góðu lífi. Það er verið að reyna draga mig inn í myrkrið.“ Í fyrradag birti Gilbert pistil á Facebook-síðu sinni þar sem hann vonaðist til að þessari langvinnu deilu á milli hans og Hilmars myndi ljúka. Gilbert sagði þetta hafa haft áhrif á líf sitt og vonaðist til þess að geta grafið stríðsöxina. En svo varð ekki raunin: „Á þriðjudag hendi ég inn hvítum fána og lýsi þessu stríði lokið af minni hálfu og þeim sem hafa stutt mig og fórnalömb þín!Þitt svar er mjög augljóst og það er að ráðast á vin minn í gær daginn eftir að ég skrifa statusinn. 5 menn hettuklæddir, hálft fótboltalið með kylfur réðst aftan að honum og reyndu þeir að berja hann eins og þeir gátu og honum tekst að verjast höggum lang flestum sem töldu yfir 50 -70 högg og nær að koma sér inn í bílinn sinn og bregst á það ráð að reyna keyra þessar hetjur niður!“Sjá einnig: Rafbyssu beitt í slagsmálum í Laugardal Gilbert segir að þessu verði ekki svarað í sömu mynt: „Vitni varð af árásinni! Og mun ég ítreka og vitna í fyrri status! Og þessu verður ekki svarað með ofbeldi því ég og mínir menn sem staðið hafa á bakvið og verndað fórnalömb þín erum ekki í stríði við þig!Lögreglan mun sjá um að klára þessi mál og erum við yfir þetta hafnir!Guð mun fyrirgefa þer syndir þínar þegar þú ferð á hnén í fangelsi og biður hann um það!Greinilega átti að brjota öll bein í líkama hans því höggin og kylfurnar bentu augljóslega til þess! Og slapp hann vel með glóðurauga og brákað nef og einhverjar bólgur eftir þessa hetjur þínar!Þessi skilaboð voru skýr um að greinilega vilt þú halda áfram þínum ógeðfellda leik og ræðst á mann sem mer er næst og ég hef litið upp til og hjálpað mer td með að verða að betri manni! Og hjálpað mer með mína edrúmensku og styrkt mig, og stllit mínar skrúfur þegar þær hafa átt til að losna!Þetta átti hann engan veginn skilið. En þessi leið sem þu ert að fara sem er að fara í mína nánustu til að buga mig og vini mína til að kærur falli niður og þú fáir að vera áfram við þína iðju á götum bæjarins eru bara alls ekki að virka!“Sjá einnig: Myndband af slagsmálunum á Café Milano komið á netið Gilbert segir að hann viti til þess að fagnað hafi verið heima hjá Hilmari eftir árásina:„Menn frá okkur fylgdust með fagnaðarsamkomu á heimili þínu stuttu eftir árásina og mátti sja mörg andlit og bíla saman komna heima hja þer!Þú ert margfaldur afi og fjöskyldan þín hlýtur að vera stolt af þer og ykkar hyski!Þú virtir ekki mína beiðni um að hætta! og svarið frá þer augljóst!Ítreka ég og vitna í fyrri status sem ég skrifa á þriðjudag daginn fyrir árásina, að engir samningar verða gerðir og ekkert verður dregið til baka! þetta er í höndum lögreglunar og verður þar til yfir líkur!“ Veistu meira um málið? Sendu okkur línu á ritstjorn@visir.is.
Tengdar fréttir „Þetta er svo lúalegt og subbulegt“ „Hann ætlaði að afgreiða þetta með einu til tveimur höggum og rota mig, en það þarf fleiri en þennan grísling til að vinna mig,“ segir Hilmar Leifsson um líkamsárás sem hann varð fyrir um miðjan dag í gær. 28. mars 2014 11:42 Segist hafa starfað með Hilmari Leifssyni í Hells Angels Þingfesting í máli Hilmars Þórs Leifssonar sem höfðar mál gegn núverandi og fyrrverandi ritstjóra DV fór fram í Héraðsdómi Reykjavíkur í dag. 16. júní 2014 16:20 Mest lesið „Hann var sagður heimskur, ljótur og að enginn annar gæti elskað hann“ Fréttir Líbanon viðurkenni Ísrael sem ríki Erlent Hóta höfnum eftir árás á „krúnudjásnið“ Erlent Lokuðu aftur Rammagerðinni þrátt fyrir úrskurð um greiðsluskjól Innlent Vildu helst Asíubúa í flug til Grænlands Innlent Brynja Dan slítur öll tengsl við flokkinn Innlent Reyndu að vísa manninum í burtu en það gekk ekki Innlent Gular viðvaranir á norðvesturhorninu: Rýma atvinnuhúsnæði og loka vegum Veður John Alford fannst látinn í fangelsi Erlent Nemendur MR afhentu rektor undirskriftalista Innlent Fleiri fréttir Snjóflóð þveraði veginn þegar opið var fyrir umferð Nemendur MR afhentu rektor undirskriftalista Reyndu að vísa manninum í burtu en það gekk ekki Vildu helst Asíubúa í flug til Grænlands Lokuðu aftur Rammagerðinni þrátt fyrir úrskurð um greiðsluskjól Tollmiðlari í stafni S-listans í Hveragerði Kosningar hafnar um sameiningu hreppanna Hefur ekki minnstu áhyggjur af bænum sem þurfti að rýma „Nú getum við sagt það fullum hálsi“ Flutningstakmarkanir kosti samfélagið milljarða árlega Pítsan sem kostaði 7.740 krónur „Þetta er ekkert grín“ Eyþór leiðir en vill ekki stólinn Hætta við flutninga á Skólavörðuholtið „Undarlegt að það hafi ekki orðið mannslát þarna“ Reykt þorskhrogn og handgerð páskaegg í Hörpu Gestir geti spókað sig í þjóðbúningi á samstöðufundi Ótrúlegt að ekki hafi orðið mannslát og óþolandi sóun raforku Brynja Dan slítur öll tengsl við flokkinn Stórt snjóflóð við Siglufjörð og veginum lokað Ákvörðunin stærri en núverandi ríkisstjórn Einn réðst á dyravörð og um tíu voru grunaðir um akstur undir áhrifum Matthías leiðir Framsókn í Árborg „Ekki rétt með farið að einkareknu stöðvarnar séu að skara fram úr“ Svona lítur nýja skólaþorpið í Laugardal út Samfélag sem hugsi svona þurfi líka endurhæfingu Kjartan Kjartansson hlaut blaðamannaverðlaun ársins Útför áhrifamanns, átök um úttekt Viðskiptaráðs og upphitun fyrir Laufeyju Lín Stofna framboð fyrir þá sem leggjast gegn sameiningu Bein útsending: Blaðamennska ársins verðlaunuð Sjá meira
„Þetta er svo lúalegt og subbulegt“ „Hann ætlaði að afgreiða þetta með einu til tveimur höggum og rota mig, en það þarf fleiri en þennan grísling til að vinna mig,“ segir Hilmar Leifsson um líkamsárás sem hann varð fyrir um miðjan dag í gær. 28. mars 2014 11:42
Segist hafa starfað með Hilmari Leifssyni í Hells Angels Þingfesting í máli Hilmars Þórs Leifssonar sem höfðar mál gegn núverandi og fyrrverandi ritstjóra DV fór fram í Héraðsdómi Reykjavíkur í dag. 16. júní 2014 16:20