Lærisveinar Patreks töpuðu fyrir Þjóðverjum Tómas Þór Þórðarson skrifar 4. mars 2014 21:02 Patrekur varð bikarmeistari um helgina en tapaði í kvöld. Vísir/Getty
Patrekur Jóhannesson, þjálfari Hauka og landsliðs Austurríkis, fékk ekki mikinn tíma til að fagna bikarmeistaratitlinum með Haukum um síðustu helgi því hann stýrði Austurríki í vináttulandsleik gegn Þýskalandi í kvöld. Lærisveinar Patreks, sem komu svo skemmtilega á óvart á EM í Danmörku, töpuðu leiknum, 22:26, en Þjóðverjar, sem ekki komust á Evrópumótið, höfðu forystuna nær allan leikinn. Staðan í hálfleik var 10-12 fyrir Þýskalandi og í byrjun þess síðari náðu gestirnir sex marka forskoti, 14-20. Þá tók Patrekur Jóhannesson leikhlé sem skilaði sér í 5-1 spretti heimamanna og munurinn aðeins tvö mörk, 19-21, þegar rétt rúmar átta mínútur voru eftir. Þjóðverjar voru þó sterkari á lokametrunum með SilvioHenevetter öflugan í markinu og hornamanninn PatrickGroetzki í miklu stuði en hann skoraði þrjú mörk í röð fyrir Þýskaland á lokasprettinum og átta mörk alls. Lokatölur, 22-26.MaximillianHermann var markahæstur Austurríkismanna með fimm mörk en Robert Weber skoraði fjögur mörk. Hjá Þýskalandi var Groetzki markahæstur eins og áður segir með átta mörk en MichaelAllendorf, leikmaður Melsungen og næstmarkahæsti leikmaður þýsku 1. deildarinnar, skoraði fimm mörk. Það er skammt stórra högga á milli hjá Patreki því nú drífur hann sig upp í flugvél og heldur heim á leið. Hans bíður annar Hafnafjarðarslagur gegn FH í Olís-deildinni á fimmtudagskvöldið.
Handbolti Mest lesið Rasísk ummæli þingmanns um Mbappé harðlega gagnrýnd Fótbolti Kallar Infantino trúð: „Sleikjandi rassgatið á ríku köllunum“ Fótbolti Frakkar áfrýja spjaldi til FIFA Fótbolti Infantino gefur út yfirlýsingu vegna afskipta Trumps Fótbolti Maður dagsins á HM: Atvinnulaus hetja Noregs hætti við handbolta og skíði Fótbolti Spá því að ferðamennskan blómstri á eyjunum eftir HM Fótbolti Rann til á skilti og spilar ekki meira á HM Fótbolti FIFA segir Belga ekki hafa rétt til að áfrýja Fótbolti Martínez hættur með portúgalska landsliðið Fótbolti Trump um símtalið til Infantino: „Ég fékk þá til að gera þetta“ Fótbolti Fleiri fréttir Bjarki Már til franska stórveldisins Sjokkið breyttist í ævintýri Ásthildur Jóna með tíu mörk á HM og Ísland í undanúrslit Forsetabikarsins Segja Breka á leiðinni til Benfica Børge Lund tekur við stórliði Kiel Díana tekur dóttur sína með sér yfir í Fram Fjórar heiðraðar sem spiluðu fyrsta landsleikinn fyrir sjötíu árum Einar hjá Fram næstu þrjú árin Miðar í sölu á HM í handbolta í dag Þrír íslenskir landsliðsmenn tilnefndir til virtra verðlauna Viktor Gísli vann Meistaradeildina með Barcelona Magdeburg fékk bronsið Viktor Gísli í úrslitaleik Meistaradeildarinnar Magdeburg tapaði í undanúrslitum Strákarnir okkar stálheppnir með riðil á HM Benedikt verður lærisveinn Arnórs Engin Ungverjagrýla á HM Orri Freyr hetjan og Sporting bikarmeistari Valskonur styrkja sig Markakóngurinn endaði tímabilið með látum Lið Blæs bjargaði lærisveinum Rúnars „Hann breytti kúlturnum“ Örn tekur við karlaliði Selfoss Guðjón Valur þjálfari ársins í Þýskalandi Löðrandi sveittur Donni þurfti að sætta sig við silfur Silfurdrengurinn Ingimundur þjálfar Aftureldingu ásamt Hrannari Stórt tap tryggði sæti í Meistaradeildinni Lovísa og Arnór Snær best í Olís deildinni Missti af dýrmætum stigum gegn meisturunum Jafnir leikir hjá Íslendingunum Sjá meira